Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Page 38
50 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006
Helgin DV
Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir tækniteiknari lenti í bílslysi þegar hún var 19 ára. í kjölfarið byrjaði
hún að fitna og bætti svo enn á sig þegar hún hætti að reykja. í dag hefur hún misst 19 kíló með hjálp
danska kúrsins og stefnir á að missa 15 kíló í viðbót.
Fyrir danska kúrinn
Ragnheiður fitnaði um
átta kiló þegar hún hætti
að reykja og hugsaði með
séraðnú yrði hún að gera
eitthvað í sínum málum.
Ragnheiður Harpa
Ragnheiður hefur misst 19
kllóslðan l.janúarog
ætlar að missa 34 kíló l
heildina fyrir september.
Æðislegur kjúklingur
að hætti Ragnheiðar
og danska kúrsins:
FYRIR2
240-340 gr kjúklingabringur
1 laukur
300 gr gulrætur
1 dolla af niðursoðnum tómötum
100 gr sýrður rjómi
kryddað með salti, pipar, paprikukryddi
og tandori 3
„Ég er ábyggilega
hundleiðinleg þessa
dagana en ég held
að heilsan sé meira
virði en að fara út
að djamma."
við, á ponnu. Laukurinn, gulrætum;
(skornar í ræmur eða tættar í múlin(
£?.t1°1matarnir er s°ðið saman í potti
Kjuklmgnum bætt saman við og svo
s^-ða rjómanum. Kryddað að vild P,
að nafa sterkt en samt ekki of sterkt.
„Ég hef alltaf verið þétt en byrj-
aði að fitna fyrir alvöru þegar ég var
19 ára eftir að ég lenti í bílslysi," seg-
ir Ragnheiður Harpa Sveinsdótt-
ir, 27 ára tækniteiknari. Ragnheiður
Harpa hefur verið á danska matar-
æðinu síðan 1. janúar og hefur nú
misst 19 kíló.
Hún segist hafa barist við auka-
kílóin öll unglingsárin en að sam-
kvæmt vinkonunum hafi hún misst
tökin eftir bflslysið enda hafi hún
slasast í baki og hálsi og því lítið get-
að hreyft sig. Þegar Ragnheiður hætti
svo að reykja í nóvember bætti hún á
sig heilum átta kílóum á einum mán-
uði.
„Ég tútnaði algjörlega út, sem
gerði punktinn yfir i-ið. Ég varð að
gera eitthvað í mínum málum," segir
hún og bætír við að hún hafi kynnst
danska kúrnum í þættinum Fólk með
Sirrý sem sýndur var á Skjá einum.
Hætti að reykja og blés út
„Ég hélt alltaf að hreyfing og gott
mataræði myndi virka en það gerði
aldrei neitt gagn fyrir mig. í fyrstu
leist mér ekkert á danska kúrinn enda
þurfti ég að hætta að borða nammi
og drekka áfengi og það fannst mér
svolítið erfitt tilhugsunar. En eftír
að ég hætti að reykja og blés út vissi
ég að ég yrði að taka á mínum mál-
um," segir Ragnheiður og bætír við
að systír hennar hafi hringt í hana og
beðið um að koma með sér í átak.
„Systír mín vildi losna við nokkur
kfló og við ákváðum að fara saman á
danska kúrinn. Henni gengur mjög
vel, hefur misst jafn mörg kíló og ég
og er eiginlega komin í kjörþyngd."
15 kíló í markmiðið
Eins og áður segir hefur Ragn-
heiður misst 19 kíló frá því í byrjun
ársins. Markmið hennar er að missa
34 og hún ætlar að taka þessi 15 kfló
sem eftír eru fyrir september eða
október.
„Mér fannst þetta mataræði mjög
flókið til að byrja með en eftír smá
tíma verður þetta ekkert mál. Fyrst
þurftí ég að hugsa fram í tímann
hvað ég ætíaði að borða og hvern-
ig ég ætlaði að elda matínn og mér
fannst ég alltaf vera inni í eldhúsi. f
dag er þetta ekkert meira mál en að
elda hvem annan mat."
Hætt að drekka í bili
Ragnheiður segir að það hafi
reynst mun auðveldara að hætta að
drekka en hún hefði ímyndað sér.
Hún hafi tekið þá ákvörðun að hætta
að fara út á lífið á meðan húnværi að
ná markmiðum sínum.
„Ég er ábyggilega hundleiðinleg
þessa dagana en ég held að heils-
an sé meira virði en að fara út að
djamma. Vinkonur mínar sýna mér
líka skilning og ég hef ýtt nokkrum
þeirra út í þetta með mér. Fólk smit-
ast nefnilega þegar það sér árangur-
inn." Hún segist þó ætla að lyfta sér
upp þegar markmiðinu er náð.
„Þegar ég verð komin í kjörþyngd
ætla ég að halda áfram á þessu matar-
æði en ætla að leyfa mér eitthvað
aukalega og mun örugglega halda
upp á árangurinn með djammi með
vinkonunum."
Fær hrós á hverjum degi
Aðspurð segist Ragnheiður finna
fyrir andlegri velh'ðan ekki síður en
líkamlegri. „Maður verður svo stolt-
ur og ánægður með sig. Þetta var svo
fljótt að gerast og í rauninni hafði ég
sætt mig við mig eins og ég var. Það
er erfitt að breyta hugsununum og
gera sér grein fyrir árangrinum þótt
ég fái hrós á hverjum degi og fái að
heyra hvað ég líti vel út. Það tekur
bara tíma að venjast þessu," segir
hún glöð í bragði að lokum.
indiana@dv.is
Tengir þú mat við tilfinningar?
1. Égborðaþegar
ég er ekki svöng:
a. Sjaldan
b. Stundum
c. Oft
2. Ég missi stjórn
á átinu:
a. Sjaldan
b. Stundum
c. Oft
3. Ég reyni að létt-
ast en tekst það
aldrei:
a. Sjaldan
b. Stundum
c. Oft
4. Ég sný mér að
mat þegar ég er
stressuð:
a. Oft
b. Stundum
c. Sjaldan
5. Égverðlauna
migmeð mat:
a. Stundum
b. Sjaldan
c. Oft
6. Ég hugsa um
mat:
a. Oft
b. Sjaldan
c. Stundum
7. Ég held út
átaksnámskeið:
a. Sjaldan
b. Oft
c. Stundum
8. Ég borða yfir
mig:
a. Oft
b. Sjaldan
c. Stundum
9. Ég skammast
mín fyrir mig og
át mitt:
a. Sjaldan
b. Stundum
c. Oft
10. Matur hjálpar
mér tilfinninga-
lega:
a. Stundum
b. Sjaldan
c. Oft
10-15 stig: Þú tengir ekki mat við
tílfinningar og drekkir ekki sorgum
þínum í óhollustu. Þeir sem tengja
mat við tilfinningalíf sitt borða und-
ir andlegu álagi en ekki aðeins þeg-
ar hungrið kallar. Haltu áfram þínu
striki.
16-21 stig: Þú átt á hættu að borða
þegar þér h'ður illa. Ef þú telur
að þú stofnir heilsu þinni í hættu
skaltu tala við lækni. Við leitum lík-
lega öh í mat þegar á okkur reynir
á einhvern hátt en passaðu að láta
átið ekki fara út í öfgar. Reyndu að
dreifa huganum með hreyfingu eða
slökun í stað þess að ráðast á ís-
skápinn þegar þér líður Ula.
22-30 stig: Þú leitar í mat þegar þér
líður Ula og skalt því tala við lækni
sem fyrst. Flestír tengja mat við
vanlíðan að einhverju leytí, hvort
sem það er ofát eða skortur á nær-
ingu. Tengingin verður að vanda-
máli þegar átíð er farið að stofna
heUsu og hamingju þinni í hættu.
Gerðu eitthvað í þínum málum!