Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 40
52 FÖSTUDAGUR 2. JÚN/2006
Menning DV
Væri ég almáttugur, skyldi
ég gefa tárum þeim sem hinn
hryggi grætur það undraafl,
að þau væru það kynjalyf sem
græddi öll sár. Nú megna ég
ekkert...
- Jóhann Sigurjónsson í
bréfi til bróður 1903.
Vorblær Björns
Hinn kunni gítarleikari og
drifkraftur úr Garðabænum
Bjöm Thoroddsen hefur dregið
saman á disk þjóðkunn vorlög,
lokkað Andreu Gylfadóttur með
sína alkunnu og dáðu rödd til að
syngja þau og fengið þá félaga Jón
Rafnsson bassaleikara og Jóhann
Hjörleifsson slagverksmann til að
slá taktinn. Þess utan er Kristján
Valdimarsson með í fáum lögum
ánikkuna.
Á disknum eru þrettán lög og
ber hann heitið Vorvindar. Þar
syngur Andrea til dæmis lagið
Vorvindar glaðir, Draum hjarð-
sveinsins, Hlíðin mín ffíða, Sveit-
in milli sanda, Blátt lítið blóm eitt
er og ömmubæn. öll lögin em
sungin á íslensku og fylgir texta-
bók með.
Bjöm Thoroddsen gítarleikari
hefur verið fremstur meðal jafn-
ingja í íslenskum djassi í meira
en 20 ár og Andrea Gylfadóttir
hefitr verið ein af okkar fremsm
söngkonum til margra ára. Jón
Rafnsson bassaleikari hefur verið
atkvæðamikill í íslensku tónlistar-
lífi síðastliðin ár, og er hann með •
Bimi í tríóinu Guitar Islancio. Jó-
hann Hjörleifsson hefur verið einn
af okkar eftirsóttusm trommuleik-
urum, leikur með Sálinni, en er
einnig fastur trommari Stórsveitar
Reykjavíkur. Vorvindar er gefin út
hjá Senu og er komin í verslanir.
LÍRA
WTGN
Þögn Láru
Lára Rúnarsdóttir hefur sent
frá sér disk sem hún kallar Þögn.
Það er Dennis Records sem gef-
ur út en það er sprotamerki Senu.
Þetta er önnur sólóplata Lám.
Diskurinn geymir 12 fmmsamin
lög viðljóð Láru.
Hún hefur úrvalsflokk hljóð-
færaleikara sér til fulltingis; þá
Börk Hrafn og Daða Birgissyni,
Kristin Snæ Agnarsson og Pétur
Sigurðsson. Hinn heimsfrægi
söngvari Damien Rice kemur
lfam í einu laginu með Lám sem
ber heitið Why. Fjögur laganna
era sungin á ensku. Þau em allt
frá því að vera ljúf og angurvær en
svo má líka heyra kraftmikinn takt
sem hristir upp í hlustandanum.
Stemningin á plötunni minnir um
margt á upphafsverk kvenna sem
fram komu seint á sjöunda ára-
tugnum, Joni Mitchell í upphafi
ogjanis Ian.
Stórglæsileg bók er komin út sem rekur leikmunasmíði Listvinahússins frá 1930 til
1956 meðan Guðmundar Einarssonar frá Miðdal naut við. í bókinni eru öll kunn
leirverk hans frá tímabilinu.
Merk heimild
um frumkvöðul
Það hlýtur að hafa verið talsvert
átakað koma saman verkaskrá yfir
helstu leirmyndir Listvinahússins
frá 1930 til 1956, verk Guðmund-
ar Einarssonar frá Miðdal og sam-
starfsmanna hans, finna óskemmd
eintök af öllum þeim fjölda verka
sem langt fram eftir síðustu öld
voru stáss á hundruðum íslenskra
heimila en eru óðum að týna töl-
unni. Slíkt heildaryfirlit hefur ekki
verið til fyrr en nú.
Það er Ari Trausti Guðmunds-
son sem hefur ráðist í þetta þarfa-
verk og nýtur til þess aðstoðar Ei-
ríks Rögnvaldssonar listfræðings
og Ragnars Th. Sigurðssonar ljós-
myndara, auk fjölda annarra sem
hafa lagt hönd á plóginn.
Brautryðjandi
Guðmundur var um flest ein-
stakur maður. Hann var skólað-
ur í teikniskólanum hjá Stefáni
Eiríkssyni, rétt eins og Ásmund-
ur Sveinsson og Ríkarður Jónsson.
Skóli og ferill Stefáns er ein af gát-
um íslenskrar listasögu og hafði
gríðarleg áhrif.
Héðan fór Guðmundur svo til
náms í Danmörku og síðan Þýska-
landi. Hann varð síðan brautryðj-
andi í mörgu: hélt hér fyrstu grafík-
sýninguna, ruddi leirlistinni braut
og var um áratugaskeið helsti leir-
listamaður landsins, málaði og
gerði höggmyndir.
Hann þótti, þegar skeið mód-
emismans rann upp, helst til gam-
aldags, en margir gripa af verk-
stæði hans hafa reynst lífseigir, þótt
brotgjamir séu og eru eftirsóttir og
mikils metnir í dag, ekki síst hjá
yngra fólki sem sér í rómantískum
stíl verkanna og þjóðlegum eitt-
hvert brot af sjálfu sér.
Frá kreppu til kalda stríðsins
Bók sína kalla þeir Ari, Eirík-
ur og Ragnar Th. einfaldlega List-
vinahús Guðmundar frá Miðdal.
Tímabilið sem lagt er undir er frá
upphafi vinnslu í Listvinahúsinu
sem stóð á Skólavörðuholti á sömu
slóðum og Iðnskólinn er. Hús reist
fyrir tilstyrk Listvinafélagsins sem
var um margt sporgöngufélag í ís-
lenskri myndlist og mætti gjarnan
minnast með heilstæðu yfirliti, hús
sem var hugsað fyrir listamenn til
starfa.
Lokin á skránni eru síðan and-
lát Guðmundar og þá upphefst nýr
kafli sem Arctic Images, útgáfan
sem er skráð fyrir verjdnu, heitir að
koma með í öðru bindi.
Fjölhæfur maður
Hér er ekki stáldrað við annað
aktífitet Guðmundar, aðra mynd-
list sem hann vann. Heldur ekki
minnst krafta hans á öðrum svið-
um svo sem í ferðamennsku, kvik-
myndagerð hans, sem er merk
heimild.
Hér er bara einbeitt sér að leir-
listinni og er það æðinóg verk-
efni. Hverja opnu prýða ljóm-
andi myndir Ragnars af tveimur
til fjórum verkum. þeim er raðað í
tímaröð, ársettar og merktar með
stjörnum eftir fágæti. Þá er getið
stærðar. Bókin er 150 bls. í allstóm
broti með nálægt 200 hágæðalit-
myndum og enskum jafnt sem ís-
lenskum texta.
Ritið dregur glögglega í Ijós
þann fjölbreytileika sem ein-
kenndi verk Guðmundar og sam-
starfsmanna hans. Þetta var í flest-
um tilvikum fjöldaframleiðsla og
hér er að finna grunn fyrir hvern
þann sem vill kynna sér upphaf-
ið í íslensku leirlistinni. Kunnuleg-
astar eru vissulega dýrastytturnar,
fágætari eru vasar, skálar og krús-
ir. Hér má sjá drögin að áhuga ís-
lendinga á stærra veldi sem tók að
gera vart við sig fýrir seinna stríðið
og hélt velli langt fram eftir síðustu
öld, danska leirinn postuh'nshúð-
aða frá þeim Bing og Gröndal.
Happafengur
Hún fæst í flestöllum bókaversl-
unum Pennans-Eymundsonar, í
Listvinahúsinu við Skólavörðustíg,
hjá Iðu við Lækjargötu, í Gerðar-
safni og í antíkversluninni Fríðu
frænku á Vesturgötu í Reykjavík.
Margir leirmunanna eru nú til sýn-
is á yfirlitssýningu á verkum Guð-
mundar í Listasafni Kópavogs,
Gerðarsafrti, og í Náttúmstofu
Kópavogs, sem opin er til 2. júlí.
Upplag er aðeins 800 eintök.
Bókin er fallega prentuð og hefur
yfir sér fágaðan svip kröfuharðra
útgefenda. Hún er mikill happa-
fengur fýrir alla sem vilja vita
hvemig íslensk listsköpun hófst og
þróaðist á þessu sviði. Verkið sýn-
ir metnað og virðingu fyrir hand-
verki hins merka brautryðjanda og
er öllum sem að úgáfunni komu til
sóma.