Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Síða 41
DV Menning
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006 53
Juliette
sjúk í ást
Önnur amerísk bíóstjarna
sem verður á fjölunum í Lond-
on í sumar er Juliette Lewis
sem kom hingað á Airwaves í
fyrra með a
bandið Æ jfN
sitt. Hún Bn '-j
verðuri
sex vikur
'BBkI
ingu Linds-
ey Poshner á
gömlu verki eftir
annan Ameríkana
sem reyndar hef- Hj
ur oft verið líkt við
Eugene O'Neill, Sam
Shepard. Það er Fool wB
forLovesemhérvar
leikið á sínum tíma í
leikhúsi Maríu Ellingsen undir
heitinu; Sjúk í ást.
í gær var opnuð löngu tímabær sýning í Grófarhúsi á ljósmyndum Andrésar Kol-
beinssonar. Þar gefur að líta úrval af myndum Andrésar, en þær hafa um langt
skeið verið aðgengilegar á vef safnsins. Myndheimur Andrésar einkennist af ríkri
formkennd auk þess sem myndir hans eru einstök heimild um samfélag borgar og
lista á sjötta og sjöunda áratugs síðustu aldar.
Hrein form í skítugri borg
Andrés er borgfirðingur. Það
var sveitungi hans og frændi, Þor-
steinn Jósepsson, einn frum-
kvöðla í birtingu blaðaljósmynda
og blaðamaður á Vísi, sem kynnti
Andrés fyrir ljósmyndalistinni.
Þorsteinn var ferðalangur að eðl-
isfctri og forvitinn um aðskiljanlega
hluti. Hjá honum sá Andrés bækur
um ljósmyndun og einnig verðlista
yfir ljósmyndavélar.
Tónlist og Ijósmyndir
Andrés Kolbeinsson er fæddur
7.9.1919 að Þorvaldsstöðum í Hvít-
ársíðu en var alinn upp á Stóra Ási,
elstur fimm systkina. Hann var al-
inn upp við tónlist og lærði ungur
á orgel og harmónikku og spilaði
á böllum í sveitinni frá unglings-
árum. Árið 1942 flutti hann til
Reykjavíkur og hóf vinnu við raf-
virkjun að undirlagi föður síns,
en tónlistin togaði alltaf í hann og
hann hóf því jafnframt píanónám
við Tónlistarskóla Reykjavíkur hjá
Victor Urbancic.
Óbó og Ijósop
Urbancic hvatti hann til að læra
á óbó, en enginn lék á þann tíma á
óbó í Reykjavík. Þóttí hann efnileg-
ur blásari og var styrktur til náms í
Englandi við The Royal Manchest-
er College of Music og tók burtfar-
arpróf þaðan 1947. Heimkominn
hóf Andrés að leika með Útvarps-
hljómsveitínni og þegar Sinfóníu-
hljómsveit íslands var stofnuð árið
1950 spilaði Andrés með henni frá
upphafi fram til ársins 1977. En
tónlistin var magurt lifibrauð og
hann þurfti að drýgja tekjur sínar
með einhverjum hætti. Ljósmynd-
un hafði vakið áhuga haiis snemma
og varð nú hans annað aðalstarf.
Starfi Andrésar á þessum árum
var fjölbreyttur, byggði á tónlistar-
flutningi, ljósmyndun, kennslu og
nótnaskrifum, dæmi um þau kjör
sem íslenskir listamenn bjuggu
við í borgarsamfélagi eftirstríðs-
áranna.
Menntur vel
Andrés er fjölfræðingur eins
og margir ættmenn hans; tónlist,
tungumál, ljósmyndun, sagnfræði,
sálfræði, heimspeki, læknisfræði,
líffræði og ýmis fróðleikur er hans
yndi. Hann er enn að taka ljós-
myndir og fylgist vel með tækni-
nýjungum á sviði ljósmyndunar.
I viðtali við Hörpu Björnsdóttir
í tilefni af sýningunni segist hann
hafa verið svo heppinn í skóla
í Reykholtí að læra undirstöðu
í þremur mngumálum, ensku,
dönsku og þýsku og á árunum í
Englandi hafi hann bætt rússnesku
við. Meðal áhrifavalda nefnir hann
ekki minni menn en Robert Capa
og Josef Karsh: „Henri Cartíer-
Bresson,... var ágætur í að ná hinu
rétta augnabliki. Ég segi nú ekki að
hann hafi verið áhrifavaldur þó.“
Hrein form og skítug borg
Andrés tók fyrst á gamla Voigt-
lánder-myndavél sem var eftirlík-
ing af Rolleiflex. 1953 eignast hann
Leica og seinna Rolleiflex, en þetta
voru toppvélar þeirra tíma.
Því hefur verið haldið fram að
Reykjavík með malargötur og hús
í slöku viðhaldi þar sem ölu ægði
saman hafi orðið Dieter Roth upp-
spretta fyrir hans óreiðukenndu
Hluti af myndröð sem Andres tók í húsum Sláturfélags Suðurlands við Skúlagötu. Myndirnar notaði Oieter Roth síðan í
veggskreytingar þar en þær voru eyðilagðar og húsin seinna rifin.
verk, en Reykjavik Andrésar er
björt borg: „Eg hef kannski ósjálf-
rátt forðast óreiðuna, það má vel
vera. Já, já, á þessum tíma voru
víða moldargötur og drullupoll-
ar og borgin var ákaflega óþrifaleg
sums staðar. Reykjavík er á þess-
um árum að breytast úr smáþorpi
í stórborg og það eru náttúrulega
alls konar gelgjuskeið sem hún
gengur í gegnum."
Menn og Ijós
1 safni Andrésar er aragrúi af
myndum af íslenskum listamönn-
um og verkum þeirra: hann tók
myndir fýrir Grímu, LR og LK,
húsgagnahönnuðir kölluðu hann
til og myndlistarmenn. Sá hluti
safnsins er einstök heimild.
Andrés segir frá því, í við-
tali sínu við Hörpu Björnsdóttur
myndlistarmann í sýningarskrá,
að hann hafi iðulega notað dags-
birtu og verið mótfallinn því að
nota flass. Fyrstu árin átti hann
ekki ljósmæli og giskaði bara á
lýsingu. I viðtalinu kemur raun-
ar skýrt fram að Andrés er þaul-
kunnugur kenningasmiðum í ljós-
myndatækni.
Andres tekur enn - nú á staf-
ræna vél - og litmyndir: „Það var
ekki fýrr en stafræna tæknin kom
á markaðinn að ég fór að taka í lit.
En ég finn það núna, bara síðustu
tvö, þrjú árin, að ég gæti alveg eins
hugsað mér að taka eingöngu í
svarthvítu, eða næstum því ein-
göngu."
....:..........,,,,,,, . , ..
;
Stebbi stýrir
Upplýst var nýlega í viðtali
við Stefán Baldursson leikstjóra
að hann væri farinn að undirbúa
frumsýningu í Borgarleikhúsinu
og verður það í annað sinn frá því
Borgarleikhúsið var vígt að hann
setur þar verk á svið. í fyrra sinnið
var það opnunarsýning hússins,
Höll sumarlandsins.
Á sínum tíma var Stefán leik-
hússtjóri Leikfélags Reykjavík-
ur þegar húsið var að rísa og áttu
margir von á að hann yrði þar
ráðandi fyrstu árin sem varð ekki.
Hefur mönnum löngum þótt
ástæða til að hann kæmi þang-
að til leikstjórnar sem hann gerði
eðlilega ekíd meðan hann var
Þjóðleikhússtjóri.
Verkið er flestum kunnugt:
Amadeus eftir Peter Shaffer. Hlut-
verkin eru raunar bara þrjú: Wolf-
gang sjálfur, kærastan hans Kon-
stansa og svo aðalrullan, Salieri.
Hlutverkaskipan er enn á huldu,
en Hilmir Snær mun hafa afþakk-
að titilhlutverkið. Getgátur eru
uppi um að Bergur Ingólfsson
leiki Mozart, Mörtu Nordal verði
treyst fyrir Konstönsu en flókn-
ara er að finna mann í Salieri, þótt
mörgum þyki augljóst að Eggert
Þorleifssyni beri það hlutverk.
Kevin
■'OldVic
Kevin
Spacey
er enn að
bjástravið
að reka
leikhús í
London og tekst misjafnlega upp.
Leikhúsið er fornfrægt og þykir
mönnum þar súrt í broti að loka
því. Eins og oft áður trekkja mest
sýningar sem kanadíski leikarinn
kemur fram í sjálfur.
Nú er nýbúið að tilkynna að
hann muni leika í haust í frægu
verki Eugene O'Neill, Moon for
tlie misbegotten, en þar segir
fiá dvöl eldri sonar hins fræga
leikara Tyrone á írsku smábýli.
Verkið er tengt frægasta leikverki
O'Neills, Lond Days Journey into
the Nights, sem hér var leikið í
tvígang undir heitunum Húmar
hægt að kveldi og Löng er dags-
ins för inn í nótt.
Á sínum tíma þýddi Halldór
' Stefánsson Moon for tlie Misbe-
gotten fyrir Leikfélag Reykjavík-
ur en aldrei var sú þýðing flutt.
Spacey verður undir leikstjörn
Howards Davies sem er flinkur
leikstjóri og mikils metinn. Sýn-
ingar verða í Old Vic fiá 15. sept-
ember.