Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 43
DV Menning FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006 55 HAinn* Tvær konur fá sér smók í sólinni. Ljósmyndir Robs . Hornstra frá íslandi okkar tíma hafa veriö til sýnis í Þjóð- 'minjasafni um nokkurt skeið og bók með myndum hans er komin út í litlu upplagi. Vinna hans við skráningu manna- og húsamynda á íslandi er einstæð og merkileg heimild um hvað við erum á þessum tímapunkti í lífi þjóðarinnar. Skömmu eftir áramótin var opnuð sýning á ljósmyndum ungs Hollendings, Rob Hornstra, í Þjóð- minjasafninu. Hún stendur enn yfir og lýkur ekki fyrr en um miðj- an mánuð. Samfara sýningu hans, Rætur rúntsins, kom út í Hollandi samnefnd bók með ljósmyndum hans frá íslandi. Hefrtr sýningin og bókin fengið nokkra umfjöll- un í fjölmiðlum, enda sjónarhom Homstra óvenjulegt í okkar aug- um. Ungir Ijósmyndarar Koma Hornstra hingað norður var á vegum verkefnis sem kallast Intemational Photography Res- earch Network. Valdir ungir ljós- myndarar fóm á milli landa og einbeittu sér að afmörkuðum við- fangsefnum í öðrum löndum. Rob Homstra var einn sex þátttakenda í evrópsku Ijósmyndaverkefni á vegum Intemational Photography Research Network við háskólann í Sunderland í Englandi, en Þjóð- minjasafn íslands var samstarfs- aðili að verkefninu árið 2005. Aðrir þátttakendur komu frá Tékklandi, Litháen, Slóvakíu og Bretlandi. í hring Meginþema verkefnisins var at- vinna og þess vegna ákvað Rob að einbeita sér að starfsfólki í fiskiðn- aði og ferðast um þorp landsins. Rúnturinn vakti sérstakan áhuga hans vegna þess að hann sýndi hvað ungt fólk í litlum þorpum gerir til að drepa tímann. Rúnturinn er ekki íslenskt fýrir- bæri. Umferðin um aðalgötuna í lúpu þekkist víða. f Reykjavík var rúnturinn afar sterk félagsleg ein- ing í miðbænum langt fram eftir síðustu öld. Fólk fór um Austur- stræti, Aðalstræti og Hafriarstræti í hring að kvöldlagi, bæði fótgang- andi og á bílum. Þar sáu allir alla. Það má fiiilyrða að stóm samkom- ur ungs fólks á Hallærisplaninu um 1980 hafi verið endapunktur- inn f þessu samkomuhaldi, þó enn séu leyfar af rúntinum sjáanlegar að næturlagi í Reykjavík, en ekki með sama svip og áður. Skrautlaust líf Það sem er athyglisvert við sjónarhorn Homstra er að hann skoðar samfélag okkar með aug- um gestsins. Þorpið er blanda af einstaklingum sem hann festir á mynd, ungt fólk og gamalt, fslend- ingar og erlendir menn. Þetta er kaldur heimur og sýnir einangrað samfélag. Aðbúnaður og aðstæður era skrautlausar, fátæklegar jafn- vel. Fólk er í sínum hversdagslega búnaði. Það hefur alvarlegt yfir- bragð, ögn hátíðlegt. Fylgir Homstra þar eftirdæmi Rineka Dijkskra, landa síns, sem leitar uppi alþýðufólk í hversdags- legu umhverfi. Efni myndarinn- ar er ekki upphafið, heldur fál- átt, jafitvel feimið. Fyrir bragðið er maðurinn nær áhorfandanum á jafitræðisgrandvelli. Ég eins og þú. Nema áhorfandinn upphefji sig og afhjúpi um leið. Hús á stangli Myndir Homstra eru frábær- lega gerðar og bók hans er óneit-. aníega einhver naktasti vimis- burður um íslenskt samfélag sem saman hefur verið tekinn í lang- an tíma. Hann einbeitir sér að unga fólkinu, lýsir upp tignun bíls- ins í fátæklegu samfélagi og gefur skarpa innsýn í stöðu verkafóiks í fiskiðnaði. í bókinni blandar hann inn stökum myndum sem segja má að séu hliðarspor í þema verksins, nöturlegum stöðum í yfirgefnum húsum, bæði heimilum sem eru yfirgefin og vinnustöðum. Þá eru stöku myndir af hlutum þéttbýlis, hús á stangli. Önnurbók Orri Jónsson var okkar mað- ur í þessu samvinnuverkefhi. f lít- Rob Hornstra Ljósmyndarinn ungirvar hérá feröinni fyrir ári en sýningahnas og bók eru nú aögengilegar áhugamönnum um Ijósmyndirog samfélag illi bók um verkefnið í heild má sjá hans hlut, en þar vekja einkum at- hygli framlag Hornstra og Renja Laino frá Finnlandi sem myndar fólk við skjá og fangar eftirminni- lega hið fangaða augnablik þess sem er gagntekinn af skjámynd- inni. Ógnvekjandi myndir og af- hjúpandi. Rætur rúntsins og samantek- in verk eru fáanlegar í stöku bóka- verslunum í Reykjavík og í búð Þjóðminjasafnsins. Sýning Hom- stra í Þjóðminjasafni mun hanga uppitil ll.júní. pbb<g>dv.is Edda valin borg- arlistamaður Á miðvikudag var tilkynnt í Höfða, við hátíðlega athöfh, hver fengi titilinn Borgarlista- maður. Að þessu sinni var það leikkonan, söngkonan og leik- stjórinn, Edda Heiðrún Back- man, sem varð fyrir valinu. Edda Heiðrún hóf feril sinn í Þjóðleikhúsinu 1984 eftir nám við Leiklistarskóla íslands. Hún hefur starfað jöfnum höndum í Þjóðleikliúsi, hjá Leikfélagi Reykjavíkur og frjálsum leik- hópum. Hún er fjölhæf lista- kona og lék, dansaði og söng sig inn í hjörtu áhorfenda. Þá hefur hún verið virk í leik í sjónvarpi og útvarpi. Sungið inn á hljómplötur, bæði tón- list fyrir böm og fullorðna. Þá er ógetið leiks heimar í kvik- myndum. Edda varð þegar í upphafi ferils síns fremst leikkvenna sinnar kynslóðar og naut mik- illar lýðhylli. Hún hefur hin síð- ari ár snúið sér að leikstjórn og lét af leik vegna veikinda sem hún hefur strítt við. Borgarlistamaður hlýtur eina milljón í styrk sem stuðn- ing við frekari listaff ek hans. Danskeppnin haldin Það er komið að því að fláutað verði til leiks í hinni árlegu dans- keppni Leikfélags Reykjavíkur og fslenska dansfiokksins. Þar eru leiddir sarnan leikarar, dansarar og nýir höfundar - níu stykki - all- ir upprennandi dansleikhúshöf- undar úrýmsum áttum. Þeir fá 25 klukkustundir til að skapa stutt dansleikhúsverk. Samkeppnin er haldin af Leik- félagi Reykjavfkur og fslenska dansflokknum með stuðningi frá SPRON og er þetta fjórða árið í röð sem hún er haldin. Tilgangur keppni af þessu tagi er að styðja dansleikhúsformið og kanna möguleika þess. Hugmyndin í ár er að taka enn eitt skrefi í átt að öflugu íslensku dansleikhúsi þar sem eitt verk verður valið til fr ek- ari þróunar að keppni lokinni. f fýrra vann Ingvar E. Sigurðsson verðlaun fýrir verk sitt Skipuð dómnefrtd velur þrjú verk til verðlauna, áhorfendur eitt og í ár munu aðstandendur keppninnar velja eitt verk til frek- ari vinnslu í húsinu. Verðlaunin era vegleg peningaverðlaun! Keppnin hefur verið geysivinsæl meðal fagfólks en ekkisísthjá áhorfend- um og erf- itt gæti verið að næla sérí miða á þennan skemmtilega viðburð sem er aðeins fluttur einu sinni þann 8. júni svo nú er um að gera að krækja sér í miða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.