Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Qupperneq 44
56 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006
Helgin PV
Leikkonan Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir elskar
að prófa sig áfram í matargerðinni. Guðlaug fær
æði fyrir ákveðinni matargerð um tíma en snýr
sér svo að öðru. Þessa stundina er það sushi.
Guðlaug bauð DV í heimsókn.
„Mér finnst ofsalega gaman að
búa til góðan mat þegar ég fæ gesti
en eins og aðrar húsmæður fæ ég
stundum leið á hvunndagsmatnum,"
segir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
leikkona. Guðlaug segist afar sérvit-
ur þegar kemur að matargerð og að
hún hafi gaman að prófa sig áfram.
„Maður er náttúrulega bara mann-
legur," segir hún brosandi en bæt-
ir við að hún taki oft upp á að fylgja
allskyns tískustraumum í matargerð.
„Stundum elda ég bara eitthvað ægi-
lega ítalskt en aðra daga er ég með
indverskt í gangi. Þessa dagana er
það sushi."
Heilluð af blóðflokkamataræði
Guðlaug segist notast við upp-
skriftir en þar sem hún noti til dæmis
ekki mjólkurvörur reyni hún að finna
eitthvað annað sem passar í staðinn.
„Ég get verið mjög sérvitur og mér
finnst gaman að breyta uppskriftum.
Ég nota til dæmis mikið af baunum,
belgjurtum og linsum í stað kjöts
þótt ég borði alveg kjöt og fisk," seg-
ir hún og bætir við að hún hafi eitt
sinn lesið bók um blóðflokkamatar-
æði og hafi alveg heillast af þeim vís-
indum. „Þegar mér hefur tekist að
fara eftir bókinni finn ég hvað ég er
mun hraustari, heilbrigðari og glað-
ari svo þetta virkar í mínu tilviki. Það
er ágætt að átta sig á því af hverju
manni líður vel og hvað gerir manni
ekki gott."
Með syninum út að borða
Aðspurð segist Guðlaug fara
reglulega út að borða.
„Ég hugsa að ég fari mik-
ið út að borða þótt það
fari eftir við hvern mað-
ur miðar. Ég fer mun oft-
ar en mamma og hennar
kynslóð en það er ábyggi-
lega mikið af fólki sem fer
mun oftar en ég," segir
hún en bætir við að hún
og sonur hennar fari sam-
an einu sinni í mánuði.
„Þá fær hann að ráða og
velur alltaf Ruby Tuesday.
Mér finnst voðalega gott
að borða á Vegamótum
og næ ég mér reglulega í
súpur á tælenska staðn-
um í Tryggvagötunni."
Naglakjúklingaréttur
Guðlaugar:
Marinering:
Fullt af engiferi rifið niður
Sojasósa
Sykur eða eitthvað sem ger
chutney
rir sætt, jafnvel nrangc
„Kjúklingabringur eru látnar tiggja í marinering-
unni í nokkra tínia. Steiktar á pönnu í smástund
en svo er kókosmjólk liellt yfir og látið malla. Það
grænmeti sem finnst í ísskápnutn sett út í. Það fer
eftir stemningu hvert skipti. Stundum á ég austur-
lenska grænmetiblöndu í frystinum, það er voða
gott. Stundum nota ég fullt at gulrótum og brokkólí.
Hrtsgrjón með," segir GuðlaUjg Elísabet að lokum.
Grillsumarið mikla
Guðlaug hefur aldrei átt
grill en þykir grillmatur góð-
ur. „Ég hef verið að spá hvort
þetta sumar verði griilsumar-
ið mikla og þar sem ég býst við
að hafa smá tíma fyrir svona
hluti er ég svei mér þá að spá
í að setja upp grillsvuntuna og
fjárfesta í grilli," segir hún og
bætir við að hún hafi aðgang
að ágætum garði. „Garðurinn
er fínn en þarfnast viðgerðar.
Ég er ekki með neitt æðislega
grillaðstöðu en það er á listan-
um að búa til lítið kósí hom."
indiana@dv.is
Stefán Baldvin Guðjónsson vínsmakkari mælir meö rétta
víninu meö grillmatnum
Þyngri vín með krydduðum grillmat
„Ef við ætíum að grilla fituríkt
lamb sem er fyrirfram kryddað, mæli
ég með rauðrdni í þyngri kantinum,"
segir Stefán Baldvin Guðjónsson
vínsmakkari sem heldur úti heima-
síðunni smakkarinn.is. „Með fyrir-
fram krydduðu lambakjöti mæli ég
til dæmis með Cabernet Sauvignon
frá Ástralíu eða Bandaríkjunum en
með góðu kjöti eins og lambalund-
um er gott að fá-sér fínlegri vín eins
og Bordeaux eða ítalskt Chiantí."
Að sama skapi segir Stefán krydd-
magnið skipta máli þegar velja skal
vín með kjúklingi. „Ef þú kaup-
ir kryddaðan kjúkling eða barbique
kjúkling velurðu þyngri vín og þá
mæli ég með góðu rauðvíni frá Suð-
ur-Frakklandi. Ef þú ert hins vegar
með venjulegan ókryddaðan kjúkl-
ing sem þú kryddar sjálfur geturðu
valið létt rauðvín eða jafnvel farið
yfir í hvítvín og þá mæli ég sérstak-
lega með Alsace frá Frakklandi og sér
í lagi með Pinot gris-vínþrúgunni."
Stefán segir áhuga íslendinga
hafa aukist stórlega þegar kemur að
vínmenningu. „Það er gríðarlegur
áhugi á vínum og mikill munur frá
því sem var fyrir fimm árum og ég
tala nú ekki um fyrir tíu árum. í dag
eru menn farnir að drekka skynsam-
lega og njóta vínsins til að lyfta matn-
um upp í stað þess að drekka sig fulla.
Við hugsum öðruvísi um vínið í dag.
Nú erum við frekar að sitja og njóta
matarins, félagsskaparins og vínsins
í stað þess að drekka okkur full."
indiana@dv.is