Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 46
58 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006
Helgin DV
BUBBUFIM
Bubbi Morthens er ekki kallaður kóngurinn fyrir ekki neitt. Þessi konungur íslenskrar tónlistarsögu verð-
ur fimmtugur á þriðjudaginn. Bubbi er án efa einn stórbrotnasti karakter þjóðarinnar og einn farsælasti
tónlistarmaðurinn. Lífsskeið Bubba hefur verið ansi skrautlegt á köflum og einkenndist um tíma af sukki.
Bubbi tók sig saman í andlitinu og eftir hann liggja margar af söluhæstu plötum íslands en enginn íslensk-
ur tónlistarmaður hefur selt fleiri plötur en Bubbi Morthens. Fréttir af skilnaði Bubba og Brynju Gunn-
arsdóttur komu eins og þruma úr heiðskýru lofti enda hafði hjónaband þeirra verið sveipað dýrðarljóma
hamingjunnar frá fyrstu tíð og Bubbi sjálfur lagt sitt af mörkum með textum sínum til að festa þá ímynd í
sessi. í dag er Bubbi í ástarsambandi við unga og efnilega fegurðardís, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur.
Konungur' íslenskrar tónlist-
arsögu á stórafmæli um þessar
mundir. Bubbi Morthens verð-
ur fimmtugur á þriðjudaginn og
heldur upp á afmælið með risatón-
leikum í Laugardalshöll á sjálfan
afmælisdaginn. Á tónleikunum
mun Bubbi líta yfir farinn veg með
þeim tónlistarmönnum sem hafa
verið honum samferða í gegnum
tíðina og búist er við frábærum
tónleikum og hefur eftirspurn eft-
ir miðum verið mikil. Bubbi hef-
ur verið einn farsælasti tónlistar-
maður íslands og selt fleiri plötur
en nokkur annar tónlistarmað-
ur. Á tónleikunum á þriðjudaginn
koma fram með honum yfir þrjá-
tíu tónlistarmenn, eða flestir með-
lima þeirra hljómsveita sem Bubbi
hefur spilað með, en sveitir eins og
Utangarðsmenn, Egó, Das Kapital
og GCD eru án efa nokkrar af vin-
sælustu hljómsveitum íslandssög-
unnar. Flestir þekkja sögu Bubba
Morthens enda gaf hann út ævi-
sögu sína árið 1990 og hefur ver-
ið á síðum dagblaðanna frá 1980.
Saga hans verður þó rakin hér í
tilefhi afmælisins þar sem stiklað
verður á stóru og áherslan lögð á
ástirnar í lífi Bubba.
Leikir og prakkaraskapur
Bubbi Morthens, eða Ásbjörn
Kristinsson Morthens, fæddist
þann 6. júní árið 1956. f bókinni
„Bubbi" eftir Silju Aðalsteinsdótt-
ur 6g Bubba sjálfan kemur fram að
hann muni fjrst eftir sér í risinu á
Barónsstígnum þar sem fjölskyld-
an bjó fyrstu árin. Bubbi er yngst-
ur í hópi systkina sinna en eignað-
ist yngri fósturbróður þegar hann
var sex ára þegar foreldrar hans
tóku að sér son frænda hans. Móð-
ir Bubba, Grethe Skotte Pedersen,
var dönsk og faðir hans, Kristinn
Morthens, var af norskum ættum.
Fyrstu árin bjó Bubbi á Baróns-
stígnum en síðar fluttist fjölskyld-
an í Gnoðarvoginn. f ævisögu
Bubba er vel farið yflr uppvaxtar-
árin sem einkenndust af leikjum
og prakkaraskap bræðranna. Fjöl-
skyldan fór reglulega til Danmerk-
ur í heimsókn til fjölskyldunnar og
þar var Bubbi þegar móðir hans
tilkynnti honum að foreldrar hans
hygðust skilja. Það var árið 1969 og
Bubbi því 13 ára.
Brennivín og stelpur
Bubbi var mikill lestrarhest-
ur sem barn. Hann hefur þó við-
urkennt opinberlega að vera les-
blindur. Tónlistin átti alltaf hug
hans og var Bubbi ekki nema
þriggja ára þegar hann söng í fyrsta
skiptið opinberlega í Tívolí í Kaup-
mannahöfn. Átta ára fékk hann
svo sinn fyrsta kassagítar. f bók-
inni Bubbi kemur fram að helstu
áhrifavaldarnir hafi verið Bob Dyl-
an, Bítlarnir, Rolling Stones, Jimi
Hendrix og The Doors.
Árið 1971, þegar Bubbi var 15
ára, fluttist hann til Danmerkur
með móður sinni þar sem hann
hélt brösóttri skólagöngu sinni
áfram. Honum hafði gengið vel í
skóla sem barn en á unglingsár-
unum fór að halla undan fæti. í
Danmörku kynntist Bubbi einn-
ig brennivíninu og fór að hafa
áhuga á stelpum. Ári seinna hélt
Bubbi aftur heim til íslands og
hafði þá sagt skilið við menntaveg-
inn og fór að starfa hjá Vatnsveit-
unni í Reykjavík. Á svipuðum tíma
kynntist hann tónlistarmanninum
Megasi sem átti eftir að hafa mikil
áhrif á tónlistarferil hans. Næst lá
leiðiníverbúð.
Ástin bankar upp á
f verbúð á Hornafirði árið 1974
kynntist Bubbi Ingu Sólveigu Frið-
jónsdóttur og varð ástfanginn upp
fyrir haus. Samband þeirra rann
hins vegar út í sandinn en þau
áttu eftir að hittast aftur seinna. í
Vestmannaeyjum féll Bubbi fyr-
ir fallegri stúlku, Bogey að nafiii.
f bókinni lýsir Bubbi Bogeyju sem
arabískri fegurðardís og hörku-
duglegum kvenmanni. Bubbi og
Bogey fóru að búa saman á Ljós-
vallagötunni. Ástin gufaði þó fljótt
upp og í bók sinni segir Bubbi að
þau hafi verið afar ólík. Bogey og
móðir Bubba urðu miklar vin-
konur og svo fór að Bogey hugs-
aði um Grethe síðustu árin en
hún lést eftir baráttu við MS-sjúk-
dóminn. Bubbi og Bogey tóku síð-
ar upp sambandið aftur og keyptu
sér íbúð saman en sambúðin hélt
ekki. Næstu kærustu kallar Bubbi
Margréti í bók sinni. Sú var rauð-
sokka en það samband mátti sín
lítils þegar stóra ástin í lífi hans,
Inga Sólveig, birtist honum aftur.
Spangólandi kvenfólk
Bubbi og Inga Sólveig gengu
í það heilaga þann 1. ágúst 1980.
í viðtali við DV þann 14.10.2004
segir Inga Sólveig frá fyrstu kynn-
um þeirra. „Ég var flutt að heiman
þegar foreldrar mínir fluttu aust-
ur en kom á eftir þeim. Átti raun-
ar ekkert val. Pabbi var harður. Ég
skil það vel nú því ég hafði ekki
gott af því að vera í bænum og um-
gangast það fólk sem ég var kom-
in í félagsskap við. Pabbi gerði sér
grein fyrir því og vildi mig austur
til að geta fýlgst með og haft áhrif,"
segir Inga í viðtalinu. „Bubbi var
reyndar á Hornafirði af svipuð-
um ástæðum en Tolli bróðir hans
sendi hann burtu til að losa hann
úr vondum félagsskap í bænum.
Hann var drjúgur að koma sér í
vanda og lenda í slagsmálum og
veseni. Við vorum því þarna á
svipuðum forsendum."
Inga Sólveig segir í viðtalinu að
fáir hafi vitað hver Bubbi var þegar
þau fóru að vera saman og að þeim
hafi komið vel saman í nokkra
mánuði en sambandið hafi end-
að með mikilli dramatík. Fimm
árum síðar hafi leiðir þeirra legið
saman aftur og þau tekið ákvörð-
un um að gifta sig en gengið hafi
á ýmsu enda Bubbi á kafi í dópi á
þessum tíma.
„Pönktímabilið var í algleym-
ingi og við létum ekki okkar eft-
ir liggja; klæddumst leðurjökkum
og vorum með gaddaólar, bleikt
hár og nælur þar sem við átti," seg-
ir hún í viðtalinu í DV en bætir við
að þrátt fyrir vinsældir og dóp hafi
Bubbi verið henni trúr. „Sviðs-
ljósið var farið að skína á hann
og hann fékk ekki frið fyrir öðr-
um konum en ég varð aldrei vör
við að hann væri að halda fram hjá
mér. Hann sýndi mér heldur aldrei
óvirðingu hvað það varðar. Hins
vegar var oft hrikalegur ágangur-
inn af kvenfólki. Það var stundum
setið um heimilið og stelpur span-
gólandi fyrir utan; alveg ótrúlegt
en svona var þetta. Það hafði ekki
nein áhrif á Bubba; hann er mjög
trúr í eðli sínu og ég er sannfærð
um að hann sé einnar konu mað-
ur," sagði Inga Sólveig í viðtalinu.
Hjónaband þeirra fjarðaði út þeg-
ar Inga Sólveig hélt út til Banda-
ríkjanna í nám í ljósmyndun.
Brynja, ég elska þig!
Eftir að hafa kynnst Mike og
Danna Pollock í Kassagerðinni
fóru hjólin að snúast í tónlistinni
og árið 1980 spilaði hljómveit-
in Utangarðsmenn í fyrsta skipti
opinberlega. Á þessum tíma voru
margar sveitir að gera það gott og
Bubbi og félagar juku hægt og ró-
lega vinsældir sínar en á sama tíma
sökk Bubbi lengra niður í sukk-
ið. Þegar samstarfið í Utangarðs-
mönnum sprakk varð til sveitin
Egó og þar á eftir Das Kapital en sú
hljómveit lagði upp laupana þegar
Bubbi fór í sína fýrstu meðferð.
Árið 1985 hitti Bubbi Brynju
Gunnarsdóttur. Brynja starfaði
þá sem þjónn á Hótel Borg þang-
að sem Bubbi vandi komur sínar í
kaffi. Hann hreifst strax af þessum
fallega þjóni sem sveif um gólf Hót-
els Borgar og var augnayndi gesta
til jafiis við gamlar innréttingar
staðarins. Síðar lýsti Brynja því að
einn af fastagestunum á Borginni,
Guðmundur heitinn jaki, hefði
varað hana við Bubba eða í það
minnsta að stíga varlega til jarðar
ef hann á annað borð væri að stíga
í vænginn við hana. Guðmund-
ur vildi vel enda orðspor Bubba á
þeim tíma samofið gömlu sukki
hans sjálfs sem þó var fýrir löngu
á enda. Brynja lét hjartað ráða og
úr varð eitt þekktasta hjónaband
síðari ára hér á landi og jafnvel
þótt víðar væri leitað. Bubbi hafði
fundið hamingjuna og var upptek-
inn af því eins og öðru sem hann
tók sér fyrir hendur.
Skilnaður skekur landann
Næstu árin lýstu textar Bubba
ást hans á eiginkonunni og því
komu fréttir um skilnað þeirra
eins og þruma úr heiðskýru lofti.
Vissulega höfðu kjaftasögur geng-
ið manna í millum en sögurnar
höfðu alltaf fylgt Bubba. I viðtali
við DV þann 27.11.2004 staðfesti
Brynja skilnaðinn.
„Eg get staðfest að við Bubbi
erum skilin. Það gerðist nú ný-
lega. Við erum búin að vera sam-
an í 19 ár og eigum þrjú börn en
nú er þetta búið," sagði Brynja en
vildi ekki tjá sig um málið að öðru
leyti. Hjónaband Bubba og Brynju
var frá fyrstu tíð sveipað dýrð-
arljóma hamingjunnar og hafði
Bubbi sjálfur lagt sitt af mörkum
til að festa þá ímynd í sessi. í þeim
efnum hefur Brynja þó að mestu
haldið sig til hlés. Bubbi hefur gert
heilu plöturnar um Brynju og ort
til hennar ástarljóð sem eru með
þeim fegurri í seinni tíð. Um tíma
kom Bubbi vart fram á tónleikum