Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Qupperneq 50
62 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006 Helgin PV „Þar vinnast litlir og stórir sigrar á hverjum degi sem að mínu mati eru svo miklu mikilvægari en sigrar á verðbréfamarkaðnum... Það ræður sig enginn sem starfsmann á geðdeild í von um að verða ríkur. Þar ráða hugsjónir og manngæska frekar ferðinni...“ Þessi orð mátti lesa í athyglisverðri grein eftir Hönnu Ruth Ólafsdóttur í Morgun- blaðinu í vetur; grein sem bar yfirskriftina „Heyr kjarasmiður“. Ung og ákveöin Bera meiri virðingu fyrir heiöarlegum öryrkjum en spilltum pólitlkusum og forstjórum. iBif 1 jSm f' 11 Það er haust í höfuðborginni. Samt er vor samkvæmt dagatalinu. Veðrið gerir það sem því sýnist og lætur ekki stjórnast af því sem almenningi finnst. Það hvín í gluggum þótt júní sé að heilsa. Það hvín ekki beinlínis í viðmælendum mínum, en þau hafa ákveðn- ar skoðanir á þjóðfélaginu og er nákvæmlega sama þótt þær stríði gegn almenningsáliti. Þau eru orðin langþreytt á neikvæðri um- ræðu um „ófaglært starfsfólk á sjúkrahúsum". „Ófaglærðir eru ekki að fara að fjölmenna í litlar leiguíbúðir eins og Einar Oddur Kristjánsson lagði til í Kastljósi í vetur," segja þau brosandi. „Við erum orðin langþreytt á nei- kvæðri umræðu í okkar garð." Þau eru Hanna Ruth Ólafsdóttir, 27 ára, sem stefnir á hjúkrunarfrœði og Vésteinn Valgarðsson, 25 ára, » sem hyggur á MA-nám í sagnfrœði í haust. Þau hafa valið sér að starfa með geðfötluðum á langlegudeild á Kleppsspítala: „Einu deildir sjúkrahúsanna sem ráða ófaglærða eru geðdeildir og öldunardeiidir," segja þau til útskýr- ingar. „Það er vegna þess að það er erfitt að manna þessar deildir. 1 raun vinnum við sömu verk og sjúkralið- ar; skiptum á sárum, aðstoðum við að baða og sjá um almennt hreinlæti, skömmtum mat, förum í gönguferðir og á kaffihús - reynum að gera fólki lífið léttbærara. Við erum nánasti tengiliður þeirra við samfélagið." Sorglegur hugsunarháttur Samfélag sem þau eru ekki stolt að vera hluti af. Samfélagþar sem þú ert „öðruvlsi" efþúfellur ekki ífyrir- fram ákveðið mót: „Hér á Islandi er ætlast til að all- ir séu í sama mótinu," segir Hanna Ruth. „Við eigum að fara í grunn- skóla, menntaskóla og háskóla, vera með BA-gráðu um 25 ára aldur, eiga ' jeppa, stofna fjölskyldu og eiga ein- býlishús og hund. Ef þú fellur ekki ,nn í þetta mynstur er litið niður á þig. Þá ertu ekki fullgildurþjóðfélags- þegn í augum „hinna". Þessi hugsun- arháttur er svo sorglegur. Við erum jafn misjöfn og við erum mörg." Vésteinn tekur undir þetta og bœt- _ ir við: „Það er talað um mikilvægi nýs hátæknisjúkrahúss. Við erum með hátæknisjúkrahús, það er fjár- svelt, og ég veit ekki hvað við höfum að gera við annað fjársvelt hátækni- sjúkrahús. Skórinn kreppir ekki að hvað varðar hátækni. Vandamál- in eru á gólfinu. Þau felast í fjölda sjúkrarúma og rými fyrir aldraða og geðsjúka." Heimurinn sem þau hafa valið sér að starfa í er allt annaren heimurinn sem flestir þekkja. Þau starfa á lang- legudeild, þar sem sumir sjúkling- anna hafa dvalið áratugum saman: „Flestir sjúklinganna eru á miðj- um aldri, eða frá hálffertugu og upp- úr. Mörg þeirra eiga ekkert endi- lega heima á þessari deiid, en önnur úrræði eru ekki í boði. Það er svo mikið úrræðaleysi í gangi að fólk er hjá okkur í einhvern tíma með- an það bíður eftir plássi á elliheim- ili eða sambýli. Þegar við byrjuðum að vinna þarna fyrir nokkrum árum hafði sama fólkið verið á deildinni í tugi ára. Ástandið er að skána að- eins þar sem elliheimilin eru loksins reiðubúin að taka á móti þessu fólki á gamals aldri. Því verður að segjast að það hafa orðið miklar framfarir á okkar deild á síðustu árum." Fordómar starfsfólks heilbrigðisstofnana Ogfordómar að hverfa? „Tja, fordómarnir fara sem bet- ur fer minnkandi, en þeir eru ennþá við lýði. Við finnum fýrir fordómum gagnvart geðsjúkdómum ogþað ekki bara frá fáfróðum almenningi, held- ur líka innan heilbrigðiskerfisins." Sem lýsirsér hvernig? „Ég get nefnt sem dæmi að ein- hverju sinni fór ég með fólk af deild- inni út í sólbað, enda finnst mér þau eiga jafn mikinn rétt á að njóta sól- ardaganna og aðrir," segir Hanna. „Við reynum að láta líf þeirra verða eins eðlilegt og gott og unnt er. Sjálf- um finnst okkur sjálfsagt að fara út og njóta sólarinnar þegar hún er, en það er ekki sjálfsagt fýrir sjúkling- ana. Við starfsfólkið þurfum að eiga frumkvæði að því. Eg sat með þau fyrir framan Kleppsspítala þegar starfsmaður kom til mín og bað mig að vera bak við húsið, því þau gætu fælt frá fólk sem væri að koma í við- töl inn á Klepp! Það fólk gæti hald- ið að það myndi enda eins... Þess má geta að umrætt fólk er merkt af sínum sjúkdómi og aukaverkunum gamalla geðlyfja." „Slíkar fullyrðingar eru fáfræði og fordómar og sárt að þær skuli koma frá starfsfólki sjúkrahússins," segir Vésteinn. „Það er með trega sem ég horfi upp á hvernig fordóm- ar gagnvart geðsjúklingum viðgang- ast innan heilbrigðiskerfisins. Þeir eiga erfitt uppdráttar og þeir fá ekki eins skjóta og góða þjónustu og aðr- ir sjúklingar. Maður hefur séð hvern- ig aðrar deildir taka á móti geðveiku fólki þegar eitthvað amar að því lík- amlega. Starfsfólk almennu deifd- anna setur sig stundum í annan gír eins og það sé að taka á móti hættu- legri manneskju eða vanvita. Það er ekki komið eins fram við geðsjúk- linga og aðra." Skyrdós og samloka í stað svefnlyfja Starfsfólk deildarinnar gerir sér grein fyrir einangrun heimsins innan hennar. Þess vegna gera þau allt sem hœgt er til að lífga upp á lífið: „Það var kona sem hafði verið farlama árum saman en af einhverj- um ástæðum aldrei fengið hjóla- stól. Einhverju sinni fórum við með hana í hálfgerðum hægindastól á hjólum út í Ikea," segir Hanna Ruth brosandi. „Þetta var mikil lífsreynsla fýrir okkur - og hvað þá hana; að sjá heiminn allt í einu allt öðruvísi en þegar hún hafði síðast farið út. Sum- ir horfðu á okkur eins og við værum einhver viðundur, en aðrir brostu hlýlega. Mér finnst við hafa mikið að segja með það hvort fólkið fer út úr húsinu eða ekki. Læknarnir eru að sinna öðru, eins og lyfjagjöfunum." Starf Vésteins er ekki síður mikil- vœgt en Hönnu. Hann er nœturvörð- ur á deildinni og hans hlutverk er að sjá um að þar ríki ró: „Mitt starf felst aðallega í að fólkið geti sofið rólega," segir hann. „Það fer eftir-atvikum hvernig það gengur og lyfin eru ekki alltaf lausnin. Stund- um hefur fólk þörf fyrir að spjalla, stundum er það svangt. Það er metið í samráði við hjúkrunarfræðing hvað gera skal. Þykk samloka eða skyrdós gerir í mörgum tilvikum svipað gagn og svefntafla." „Já, það er ekkert neyðarástand þótt fólk geti ekki sofið," bendir Hanna Ruth á. „Það gerist á bestu bæjum." Bæði höfðu kynnst fólki með geð- sjúkdóma áður en þau hófu störf á Kleppi enda benda þau á að einhvers konar geðræn vandamál komi fram í einhverri mynd hjá einum afhverj- umfjórum: „Ég var spennt fyrir að læra hjúkr- un og ákvað að prófa þetta sem sum- arstarf," segir Hanna. „Ég kunni strax mjög vel við mig og ákvað að vinna með skóla. Hjúkrunardraumurinn er þó síður en svo dáinn og ég gæti jafnvel hugsað mér að starfa við geð- hjúkrun." Vésteinn var nýbyrjaður í námi í sagnfræði þegar honum var bent á að geðdeild Landspítalans væri áhugaverður vinnustaður: „Ég var fyrst að hugsa um að sækja um vinnu á elli- og hjúkrunar- heimili, en þegar mér var bent á geð- deildina álcvað ég að sækja um þar. Síðan hef ég verið á Kleppi." Kleppur í dulúð fordóma Talandi um Klepp. Orð sem hefur mismunandi skilgreiningu í hugum fólks og miklir fordómar ríktu gegn: „Ég hafði heyrt alls konar ruglsög- ur um Klepp, og orðið „Kleppari" var, og er jafnvel enn, notað í neikvæðri merkingu..." „Ég vissi svo sem ekkert um Klepp fyrr en ég kom þangað til að vinna," segir Vésteinn. „í mínum huga var þetta fjarlægur, allt að því fjarstæðu- kenndur staður, sveipaður dulúð fordóma." Hvernig upplifið þið neikvœða ímynd nafnsins núna þegar þetta er vinnustaðurinn ykkar, staður sem ykkur þykir vænt um? „í rauninni vorkenni ég fólki fyrir fáfræðina," segir Vésteinn. „Það eru svo margir sem hvorfd vita neitt um Klepp né geðsjúkdóma. Því fólki er vorkunn - og reyndar um leið sam- félaginu." Hanna segir að sér finnist einna erfiðast þegar hún finnur andúð frá fólki þegar hún segir hvar hún vinn- ur: „Sumum finnst ekki nógu fi'nt að vinna á Kleppi! Ég hitti gamlan kennara minn úr grunnskóla um daginn og sagði henni hvar ég væri að vinna. Hún sagði, næstum því af- sakandi: „Já, Hanna mín, eins og svo margir aðrir meðan þeir vita eldd hvað þeir vilja gera." Eg sagði henni að ég væri mjög ánægð þar í vinn- unni og gæti allt eins hugsað mér að vera þar áfram." En fordómarnir eru ekki síðri meðal aðstandenda sjúklinganna: „Sumir á langlegudeildinni hafa misst öll tengsl við ættingja sína, en aðrir eiga ættingja sem sinna þeim óskaplega vel. Það er leiðinlegt að heyra í fólki sem finnst skömm að því að einhver úr fjölskyldunni dvelji á Kleppi. Ein stórkostieg kona sem dvaldi hjá okkur fékk pláss á hjúkr- unarheimili og ég ætla bara ekki að lýsa léttinum sem systir hennar upp- lifði. Hún hreinlega grét af gleði yfir því að þurfa ekki að segja að systir hennar væri á Kleppi. Konan er enn- þá sama manneskjan og alveg jafn veik. Eini munurinn er að hún er ekJd á Kleppi!" Enginn mætir með milljónir Hafa þau skoðun á því hvort og hvernig er mögulegt að útrýma for- dómum ígarð geðsjúkra? „Það þarf að halda áfram að opna umræðuna. Geöhjálp hefurlyft grett- istaki á undanförnum árum og von- andi að það góða starf blómstri enn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.