Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Qupperneq 51
PV Helgin
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006 63
frekar. Geðsjúkir eru olnbogabörn
þjóðfélagsins; óhreinu börnin henn-
ar Evu. Fáfræði fylgja fordómar og
með aukinni fræðslu hef ég trú á að
ástandið geti lagast á næsm árum,“
segir Vésteinn. „Geðsjúkir hafa of fáa
málsvara og við þurfum að bíða lengi
eftir að einhver gangi þarna inn með
milljónir til að gefa í þetta málefni."
Hanna samsinnir þessu og bœt-
ir við:
„Ef þú hefur fengið þá greiningu
að þú sért með geðsjúkdóm, þá ertu
ekki verri manneskja en aðrir. Þú
getur haft upp á svo margt annað að
bjóða með því að vera þú sjálfur."
Ungtfólk eins og þið eruð líka að
gera gagn og vinna gegn fordómum.
Þið eruð að ryðja brautina fyrir kom-
andi kynslóðir...
„Já, vonandi erum við að því. Það
er svo mikill misskilningur í kringum
þetta starf. Fólk flokkar allt ófaglært
starfsfólk sem hálfmisheppnaða ein-
staklinga, en raunin er sú að það er
ótrúlega mikið af kláru, metnaðar-
fullu og duglegu fólki í þessu starfi,
hvort sem það er til langframa eða í
styttri tíma."
Það sem Vésteinifinnsteinna mest
ógnvekjandi er stéttaskiptingin innan
heilbrigðisgeirans:
„Mér finnst stéttaskiptingin inn-
an heilbrigðiskerfisins vera alvarlegt
mál," segir hann. „Þar er stéttaskipt-
ing á fleiri en einn hátt. Geðsjúkling-
ar og fíklar eru lægra settir en aðrir
sjúklingar, sem dæmi krabbameins-
sjúkiingar og hjartasjúklingar. Þó eru
geðsjúkdómar og fíkn ekkert eðlilsó-
líkhverju öðru heilbrigðisvandamáli.
Svo er það stéttaskiptingin, hvernig
ófaglært starfsfólk í heilbrigðiskerf-
inu er meðal lægst launuðu vinn-
Þau eru á þrítugs-
aldri og hafa starfað
á Kleppi í nokkur ár.
Þau eru í starfi þar sem
þau sjá fólk fast í sitj-
andi stellingu, bundið í
hjólastól; fólksem fær
ekki sjúkraþjálfun. Þau
deila á heilbrigðiskerf-
ið, félagsmenn stéttar-
félaga og pólitíkusa í
viðtali við DV.
BARNAVÖRUVERSLUN - GLÆSIBÆ
sími 553 3366 - wvw oo.is
KeramiK fyrir alla
Gæsun
Gæsun-Brúðargjöf.
Tvær flugur í einu höggi.
Málið flott stell
og gæsið í leiðinni.
Keramik fyrir alla,
sími 5S2 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: wwyvMramikis
andi manna í landinu. Hjúkrunar-
fræðingar eru með miklu hærri laun
en við en hafa samt ástæðu til að
kvarta."
Mikilvægt starf
Laun Hönnu Ruthar eftir fimm
ára starferu um 130 þúsund krónur
á mánuði - innifalið kvöld- og helg-
arálag:
„í svona lágt launuðu starfi flokk-
ast gott sjampó og tannkrem undir
munaðarvöru!" segir hún hlæjandi.
„Ég næ aldrei endum saman. Ég er
í þessu starfi af hugsjón. Ég myndi
aldrei vilja skipta á þessu starfi og
hundleiðinlegri skrifstofuvinnu."
„Já, það er þetta með hugsjón-
ina..." segir Vésteinn. „Það eru þó
nokkuð margir af þeim sem vinna
þarna sem maður hefur á tilfinning-
unni að séu þarna af tómri hugsjón.
Mér finnst hins vegar ekld í lagi að
borga fólki skítalaun fyrir að vinna
eitthvað sem höfðar til þeirra."
„Mér finnst að það verði að koma
fram að þetta er mjög mikilvægt
starf," bætir Hanna Ruth við. „Að
mínu mati er þetta með mikilvæg-
ari störfum sem til eru. Við erum að
vinna með veikt, ósjálfbjarga fólk.
Áherslurnar í samfélaginu eru svo
vitlausar að það hálfa væri nóg. Af
hverju eru umönnunarstörf svona
lítils metin? Við eigum að fá þau iaun
sem við eigum skiiið."
Þau geta vissulega tekið auka-
vaktir og hafa gert. Til dcemis á
bráðadeild geðdeildar - þar sem von
er á öllu:
„Fílefldur karlmaður í mam'u er til
dæmis ekkert lamb að leika sér við,"
segir Hanna Ruth og bendir á að ófag-
lært starfsfólk sé ekki tryggt gegn lík-
amsmeiðingum eða óhöppum. „Sum-
ir þjást af smitsjúkdómum, eins og
lifrarbólgu C og HlV-veirunni. Sumir
þeirra eiga tif að bíta og klóra..."
Náin og óvenjuleg fjölskylda
Vésteinn er hins vegar hcettur að
taka að sér aukavaktir af einfaldri
ástceðu:
„Maður fær hærri útborgun, en
er um leið að sýna meðvirkni með
kerfinu; léttir af því þrýstingi um að
hækka grunnlaunin. Þótt fólk sé að
vinna þarna af hálfgerðri hugsjón,
þá er varla hægt að ætlast til að það
sé í sjálfboðavinnu. Ef við tækjum
grunnlaun ófaglærðs starfsmanns á
geðdeild og drægjum frá þeirri upp-
hæð það sem við fengjum ef við hefð-
um enga vinnu - atvinnuleysisbætur
- þá sætum við uppi með mjög lága
tölu. Hvatinn til að vinna þarna kem-
ur frá okkur sjálfum og fólkinu sem
við önnumst, ekki frá kerfinu."
„Já, þetta er ótrúlega lifandi starf,"
segir Hanna Ruth, „manneskjulegt
og mér finnst ég vera að gera eitt-
hvað sem skiptir máli. Ég hef unnið
á kaffihúsi og í verslun, en þetta starf
er svo miklu innihaldsríkara og fjöl-
breyttara. Maður kynnist fólki svo
vel, eins og á deildinni okkar. Þau
verða eins og náin, en frekar óvenju-
leg fjölskylda! Manni stendur ekki á
sama."
Vésteinn brosir; „Mér finnst þetta
vel að orði komist hjá Hönnu: „Manni
stendur ekki á sama." Eftir nokkurra
mánaða vinnu á stað þar sem hópur
fólks býr, þá verður þetta einmitt eins
og önnur fjölskylda manns
Þau segja að heimurinn þeirra á
Kleppi sé sérstakur:
„Þar er oklcur vel tekið þegar við
mætum til vinnu og við finnum svo
vel að fólkið kann að meta okkur.
Stórhátíðir geta verið skemmtilegur
tími á deildinni, sérstaklega þegar
Ótrúlegt tilboð til Mexikó
Síðustu sætin 7.júní, 13 nætur
á aðeins 99.900 kr.
tmmg í boði
Ævintýraferð til þriggja
landa á slóð Maya indíána í
Mexíkó, Blelize og Guatemala.
Stórkostleg náttúra og dýralíf.
Töfrandi regnskógasvæði.
Hverfum aftur í tíma og
Heillandi Maya menning, óviðjafnaleg endalaus hvít strönd
og kristaltær sjórinn, kóralrif, næturlíf, verslanir,
ævintýraferðir og frumskógur.
Á Real Playa Del Carmen hótelinu með allt innifalið;
ótakmarkaður matur og drykkir, óáfengir og áfengir, öll
afþreying, skipulögð skemmtidagskrá og stórsýningar (show)
á hverju kvöldi.
Nær endalausir möguleikar á skipulögðum ferðum og ýmis
konar afþreyingu.
Nánari upplýsingar:
www.transatlantic.is
Trans-Atlantic
Sími 588 8900 • www.transatlantic.is