Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006
Fréttir DV
Ákærurbirtarí
Stóra BMW-málinu
í dag rennur út gæsluvarð-
haldsúrskurður yfir Hollendingn-
um Johan Hendrik,
sem var hand-
tekinn 13. apríl
í tengslum við i
Stóra BMW- I
málið þar sem '
reynt var að
smygla 25 kíló-
um af amfetamíni
og hassi í bensíntanki BMW-bif-
reiðar. DV hefur heimildir fyrir
því að Hendrik verði birt ákæra í
málinu í dag sem og þeim Ársæli
Snorrasyni, Herði Eyjólfi Hilmars-
syni og Ölafi Ágústi Ægissyni sem
einnig voru handteknir í tengslum
við málið.
700 hundar
sýndir
Stærsta
hundasýn-
ing sem hald-
in hefur ver-
ið á íslandi
verður hald-
in í reiðhöll
Fáks á veg-
um Hunda-
ræktarfélags íslands á laugardag
og sunnudag. Verða tæplega sjö
hundruð hundar sýndir af sjötíu
mismunandi hundategundum.
Mikið verður um dýrðir á hátíð-
inni og fjöldi sýningarbása með
hundum afýmsum tegundum
verða kynntir. Allir eru velkomn-
ir á sýninguna og gefst fólki kostur
á að kynna sér fjölda tegunda og
ræða við hundaeigendur.
Hundar heiðraðir
Á hundasýningu Hundarækt-
arfélags fslands í reiðhöll Fáks um
helgina verða hundar heiðraðir og
fá heiðursorðu frá félaginu. Um er
að ræða hunda sem hafa með ein-
hverjum hætti komið að björgun
manna og dýra, liðsinnt fötluðum
eða veikum einstaklingum eða
verið til uppörvunar og hjálpar á
einn eða annan hátt. Mun athöfn-
in fara fram síðdegis á Iaugardag
og þeir hundar sem fá heiðursorð-
una verða titlaðir afreks- og þjón-
ustuhundar ársins.
Mugisonhjón
eignast strák
Mugison og Mugimama, hin
góðkunnu tónlistarhjón, eignuðust
annan strák á þriðjudagsmorgun,
en frúin átti ekki von á sér fyrr en á
sunnudag. Pilturinn var snemma á
fótum; steig í heiminn kl. 05.20 og
var 14,5 merkur og 51 sm. Móður
og barni heilsast vel. Þetta gerðist á
Fjórðungssjúkrahúsi Vestfjarða.
Á síðustu „Aldrei fór ég suð-
ur"-hátíð var undirrituð viljayfir-
lýsing á milli fsafjarðarbæjar og
Mugisons um að hann fengi hús á
fsaflrði til kaups sem kallast Am-
sterdam. Fyrir eiga
þau einn son
ogverður
fjölskyld-
unni ekki
í kot vísað.
Amsterdam er
einbýlishús á
tveimur
hæð-
um.
Hemmi Gunn gerir þaö gott þessa dagana. Hann stjórnar spjallþætti á Stöð 2, keypti
nýverið íbúð í Árbænum og er kominn á eðalvagn. Hann segist hafa fengið bíladellu á
efri árum.
Hemmi Gunnog
Lexusinn
Vart má á milli sjá
hvor er glæsilegri.
4' a
‘ 11 j bE— -jssJ
HKx ; \ Wf&ga lí ”
Hemmi Gunn ekur um
á kremgulum Lexus
Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Hermann Gunnarsson hefur
aldrei verið þekktur að því að vera með bíladellu. Hann hefur þó
alltaf keyrt fína bíla eftir því sem hann segir sjálfur frá. Það er ekki
fyrr en nú, þegar hann er rétt kominn á sjötugsaldurinn, sem
hann er kominn með bíladellu. Hann keypti glæsilegan Lexus
300 á dögunum sem kostar rúmar sex milljónir.
„Jú, jú, það er rétt. Ég keypti
flunkunýjan Lexus fyrir rúmri viku,"
sagði Hermann Gunnarsson í sam-
tali við DV í gær en glöggir vegfar-
endur höfðu tekið eftir Hemma á
nýjum kremgulum Lexus í umferð-
inni.
Var ekki með bíladellu
Hermann sagði að hann væri
enginn bfladellukarl en einhvern
veginn hefði það æxlast þannig að
bflarnir væru yfirleitt flottir. „Ég
átti bíl eins og Roger Moore var á í
tveimur James Bond-myndum og
síðan flutti Ásgeir Sigurvinsson inn
„Mælaborðið er eins
og í flugmóðurskipi og
ég þarfekki lykil. Hann
skynjar þetta bara, sem
er gott fyrir ellismell
eins og mig."
fyrir mig sporttýpu af Benz. Það
voru einhver rúm 200 hestöfl í þeim
bfl en ég hefði alveg getað verið á
Trabant. Það skipti mig ekki máli
þá. í dag er ég hins vegar farinn að
kunna að meta fallega bfla, sagði
Hermann hlæjandi og bætti við að
félagar hans, Heimir Karlsson og
Sveppi, væru grænir af öfund yfir
nýja bflnum.
Skemmtilegar freistingar
Aðspurður um kaup sín á nýja
bflnum sagði Hermann það vera al-
gjöra tilviljun. „Þetta er allt eins. Ég
átti eitt sinn Toyotu Avensis og var
með minn Toyota-bíl uppi í um-
boði. Þá vildu þeir endilega fara
að troða inn á mig Lexus. Ég hafði
ekki hugmynd um hvað Lexus var
en eftir að hafa verið fræddur á
því að það væri Rollsinn hjá Toy-
ota þá keypti ég Lexus 200 og fannst
það afar skemmtilegur bfll. Síðan
rakst ég þarna inn fyrir viku og þá
fóru þeir að benda mér á nýrri út-
gáfu af gamla bílnum mínum. Karl-
inn er nú alltaf móttækilegur fyrir
skemmtilegum freistingum en eins
og góðum sóknarmanni sæmir þá
varð mér litið út í horn til að athuga
hvort ekki væri von á fyrirgjöf. Þá sá
ég þennan kremgula bfl og eftir það
var ekki aftur snúið. Hann leggur í
stæði fyrir mann og gerir allt. Mæla-
borðið er eins og á flugmóðurskipi
og ég þarf ekki lykil. Hann skynjar
þetta bara, sem er gott fyrir ellismell
eins og mig," sagði Hermann.
Sit í aleigunni
Hermann sagði þennan bíl
vissulega vera dýran en hann liti
svo á að það væri hagkvæmt að
sitja hreinlega í aleigunni. „Sumir
geyma aleiguna í rassvasanum eða
inni á bankabók - ég sit í henni,"
sagði Hermann skellihlæjandi rétt
áður en hann dreif sig í útsendingu
á þættinum í sjöunda himni sem
sýndur er á fimmtudagskvöldum á
Stöð 2.
oskar@dv.is
Aumingja Sólveig og Kristinn
Svarthöfði er góður maður, að því
er hann telur sjálfur. Hann á auðvelt
með að hafa samúð með þeim sem
minna mega sín og þeim sem eru
beittir órétti. Þess vegna hefur Svart-
höfði samúð með öryrkjum, ellilíf-
eyrisþegum, leikskólcikennurum og
kennurum.
Sigurjón Magnús Egilsson, hinn
pennalipri ritstjóri Blaðsins, benti
síðan Svarthöfða á enn einn minni-
hlutahópinn, sem á skilið aila okkar
samúð, í leiðara á miðvikudaginn.
Hvernig í ósköpunum gat Svart-
höfða yflrsést að Sólveig Pétursdóttir
og Kristinn Björnsson eru hin raun-
verulegu fórnarlömb olíusamráðs-
ins? Svarthöfði er þakklátur Sigurjóni
fyrir að hafa opnað augu hans fýrir
þessu. Hvers eiga Sólveig og Krist-
inn eiginlega að gjalda? Á meðan al-
menningur hefur talið sér trú um að
það sé hann sem er fórnarlamb sam-
Svarthöfði
heiðurshjónum verði hlíft - í þágu
þjóðarinnar. Hengjum ekki bakara
fyrir smið!
Svarthöföi
fengið frið til að græða milljarða í
Straumi-Burðarási. Það væri sorglegt
ef einn af vöskustu viðskiptamönn-
um þjóðarinnar yrði
líka látinn blæða
ráðsins, þá sér Svarthöfði það í hendi
sér að Sólveig og Kristinn hafa þjáðst
meira en nokkur annar.
Aumingja þau. Svarthöfði finn-
ur, líkt og Sigurjón Magnús, til með
þeim. Nú þarf Sólveig að hætta þing-
mennsku vegna yfirvofandi réttar-
halda yfir eiginmanni hennar. Það
verður sjónvarsviptir að þessari
vösku þingkonu og í raun grætur
Svarthöfði yfir því að Sólveigu
skuli vera fórnað á altari sam-
ráðsins. Skítt með Þórólf, en það
er of mikið að missa Sólveigu.
Hvers á líka Kristinn Björns-
son að gjalda? Hann var bara
forstjóri Skeljungs á samráðstím-
anum. Nú á að fara að kenna hon-
um um allt saman. Hann hefur varla