Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Blaðsíða 56
76 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 Siðast en ekki síst DV • Framsóknarflokkurinn mun á næstunni ákveða með hvaða hætti fólki verður raðað upp á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæm- unum. Jón Sigurðsson ætlar sér að erfa sæti Halldórs Ásgríms- sonar í Reykjavík norður og Jón- ína Bjartmarz vill leiða flokkinn f Reykjavík suður. Sennilega verður um lokað prófkjör að ræða, það er aðeins fyrir flokks- bundna. Hins vegar er ekki mikill áhugi á þátttöku í sh'ku enda ekki eftir neinu að slægjast. Tvö þing- sæti í Reykjavík er ekki eitthvað sem Framsókn hefur í hendi sér mið- að við skoðana- kannanir und- anfarið... • Pétur Gunnarsson bloggar um það á heimasíðu sinni að Bjarni Harðarson, blaðamaður, ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins, sé að íhuga að bjóða sig fram í 2. sæti á framboðslista Framsóknarflokks- ins í Suðurkjördæmi. Bjarni hafi undanfarna daga talað við fjöl- marga framsóknarmenn og kann- að undirtektir við framboð sitt. Ekki er búið að ákveða með hvaða hætti verður stillt upp á lista flokksins en reikna má með að við ramman reip verði að draga fyrir Bjarna því fyrir eru Guðni Ágústs- son landbúnaðarráðherra og Hjálmar Árnason þingflokksformaður í tveimur efstu sætun- um og ísólfur Gylfi Pálmason sveit- arstjóri á Flúð- um mun einn- ig örugglega blanda sér í barátt- una... • Óttar Sveins- son rithöfund- ur er nú staddur á bókamess- unni í Frankfurt í Þýskalandi að kynna Útkalls- bækur sínar. Sú þrettánda sem Óttar skrif- ar mun koma út núna í byrjun næsta mánað- ar. Að þessu sinni fjallar Óttar um flugslysið á Sri Lanka árið 1978, þar sem Flugleiðavél í pílagríma- flugi til Indónesíu brotlenti í milli- lendingu. Af þeim 183 sem létust í slysinu voru átta íslendingar en fimm íslendingar komust lífs af. Mun Óttar leita víða fanga í heim- ildaröflun sinni, ekki bara er rætt við þá sem komust lífs af heldur einnig þá sem staddir voru á vell- inum er slysið var. Án efa spenn- andi bók í jólabókaflóðið... » Sú saga geng- ur fjöllum hærra innan raða Samfylkingar- innar að Guð- mundur Stein- grimsson ætli að blanda sér í prófkjörsslaginn I hjá flokknum í Kraganum. Guð- mundur er kunnur fyrir blaða- skrif sín í gegnum tíðina og veru sína í hljómsveitinni Ske. Guð- mundur er sem kunnugt er sonur Steingríms Hermannssonar og því genetískur framsóknarmaður. Skilgreiningin á þeim er að þetta er fólkið sem hatar flokkinn en kýs hann samt. Greinilega ætlar Guðmundur að vera hér undan- tekingin sem sannar regluna... Sjónvarpsdrottningin Inga Lind Karlsdóttir hefur sagt upp hjá 365-fjölskyldunni Ætlar ekki að flytja til Akureyrar á Inga Lind Karlsdóttir, sem hefur undanfarið verið einn af umsjónar- mönnum íslands í dag á Stöð 2, hef- ur sagt upp störfum. Inga Lind sagði í samtali við DV að þetta væri gert að vel athuguðu máli og hefði legið nokkuð lengi í loftinu. „Ég er ekki að hætta í fússi en við- urkenni þó að það sem hefur gerst nýverið hér hjá okkur hefur auðveld- að mér þessa ákvörðun," sagði Inga Lind. Hún hóf feril sinn í íslandi í bít- ið fyrir fjórum árum og hefur vax- ið mikið sem fjölmiðlakona á þeim tíma. Hún hefur undanfarin miss- eri verið ofarlega í kjöri á kynþokka- fyllstu konum Islands í hverri könn- uninni á fætur annarri og ljóst að það er mikill sjónarsviptir að henni. „Það er einfaldlega kominn tími til að breyta aðeins til. Mér finnst það vera rétti tíminn núna," sagði Inga Duggufjara 6 Þetta glæsilega húsá Akureyri keyptu Inga UndogÁrni Hauksson, eiginmaður hennar, á dögunum. Inga Lindsegist ekki ætla aö flytjast búferlum tilAkureyrar. sem segist ekki hafa hugmynd um hvað tekur við og hvort hún hverfur algjörlega af sviði fjölmiðla. „Það er ekkert í hendi," sagði Inga Lind sem gerir ráð fyrir því að hætta störfum á næstu vikum. „Ég er með nokkur mál sem ég þarf að klára en síðan er ég hætt." Inga Lind og eiginmaður henn- ar Árni Hauksson keyptu nýver- ið eitt glæsilegasta einbýlishús- ið á Akureyri, við Duggufjöru, en hún sagði það ekki á dag- skrá að flytja til Akureyrar. „Það er ekki á döfinni. Mér líð- ur afar vel í Garðabænum og ætia að vera þar áfram," sagði Inga Lind en þau hjónin eiga einnig fallegt einbýlishús við Tjaldanes á Arnarnesinu. oskar@dv.is Inga Lind Karlsdóttir Hættl sjónvarpinu en veitekki hvaðhún gerirnæst. næstunni Homminn í Nördunum Kom út úr skápnum á Gay Príde Sign fær frábæra dóma í Kerrang! Rokkhljómsveitin Sign lauk þriggja vikna tónleikaferð sinni um Evrópu á Mean Fiddler í London í gærkvöld. Sign-liðum var boðið að hita upp með Wednesday 13 sem er hljómsveit fyrrverandi söngv- ara Murderdolls, en hljómsveitirn- ar spiluðu 17 tónleika á 20 dögum í Bretlandi, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og Belgíu. Tónieika- ferðin gekk vonum framar og fyr- irtæki í Þýskalandi hafa sýnt þeim áhuga. í tónleikagagnrýni tímaritis- ins Kerrang! er farið hástemmd- um orðum um frammistöðu sveit- arinnar á tónleikum í Birmingham. Blaðamaður telur Sign vera á hrað- ferð upp metorðastigann í rokk- heiminum og telur líklegt að hljóm- sveitin muni sjálf fylla tónleikasali eins og Birmingham Academy og miklu stærri staði. Blaðamaður lík- ir Sign við hljóm- sveitina Vain en hljómurinn sé nú- tímalegri og meiri metall. Jafnframt bætir hann við að Sign hafi allt til að bera og að í söngvaranum Zolberg með sír- enuröddina felist stjarna sem sé reiðubúin til að hafa sömu áhrif og Valo (söngvari HIM). Sign heldur til íslands um helg- ina þar sem við tekur fimm daga hljómleikaferð 13.-20. október áður en hún spilar á Kerrang!- kvöldi Iceland Airwaves-hátíðar- innar. I tilefni af tónleikaferð- inni sendir Sign frá sér nýja smá- skífu sem nefnist So Pretty. Lag- ið er að finna á plötunni Thank God for Silence en hefur ver- ið endurunnið af hljómsveitinni og breska hljóð- upptökustjóran- um Chris Sheldon en Chris hefur unnið með bönd- um á borð við Foo Fighters, Biffy Clyro og Feeder. Smáskífan verður fáanleg í nið- urhali á tonlist.is frá 16. október. Hommar eru líka gæðablóö Óhætter að segjaað þaðeigi við Kára sem er afar velliðinn affélögum hans i liðinu. I göngunni Kári skellti sér ÍGay Pride-gönguna. Kári Gunnarsson, sem er einn af sextán leikmönnum knattspyrnu- liðsins KF Nörd í samnefndum sjónvarpsþætti á Sýn, er hommi. Þrátt fyrir að Kári hafi komið út úr skápnum árið 1998, þá 18 ára gam- all, vissi enginn félaga hans í lið- inu að hann væri samkynhneigður þegar upptökur á þættinum hóf- ust. Forsvarsmenn þáttarins vissu það og spunnust umræður um það hvort Kári ætti að koma út úr skápnum gagnvart félögum sínum. Hann sagði við DV í gær að hann hefði verið í vafa um að gera þetta en hefði síðan látið slag standa. 1 þættinum sem sýndur var í gær kom Kári síðan aftur út úr skápn- um. Hann skellti sér í Gay Pride- gönguna og sagði félögum sínum að því loknu að hann væri hommi. „Ég kom út úr skápnum árið 1998 eftir að hafa verið á leiðinni út úr honum í tvö ár. Núna var þetta öðruvísi. Þetta var farið að spyrjast út og þegar ég kom aftur úr göng- unni sagði ég strákunum frá þessu. Þeir tóku þessu alveg frábærlega," sagði Kári. Það hefur hingað til farið lítið fyrir hommum í knattspyrnunni en Kári segist þekkja mrga homma sem spila knattspyrnu. „Er ekki sagt að einn af hverjum tíu sé hommi? Ég þekki marga sem spila fótbolta og eru hommar," sagði hann. Róbert Douglas gerði mynd um hommafótboltalið, Strákarnir okk- ar, en Kári hefur ekki séð hana. „Ég ætla samt að sjá hana," sagði Kári. Aðspurður hvort hann sæi eftir því að hafa komið út úr skápnum í annað sinn í sjónvarpsþætti sagði Kári svo ekki vera. „Ég get ekki séð eftir neinu sem er búið og gert. Ég má ekki sjá eftir neinu. Er það ekki þannig sem maður verður að hugsa?" sagði háskólaneminn, homminn og sjónvarpsstjarn- an Kári Gunnarsson að lok- ^ um. oskar@dv.is Karl Gunnarsson Kom skápnum í annað sinn á í þáttunum um KFNörd. utur ævinni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.