Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006
Fréttir DV
•Þess á milli sem
fréttamaðurinn Óli
Tynes pakkar stór-
fréttum í umslög
til að kollegar hans
sjái þær ekki skrifar
hann tölvupósta til
samstarfsmanna sinna á NFS um
fólk á öðrum miðlum 365. í einum
kristallast kannsld hrokinn sem
varð NFS að falli en um það getur
þó hver dæmt fyrir sig. Bréfið sendi
hann á föstudaginn og var það á
þessa leið: „Vinir og félagar. Það
hefur margsinnis sýnt sig að það
er best að tala varlega þegar liðið á
neöri hæðum heyrir til okkar. Hvort
sem er í smók eða kaffistofunni.
Það virðast leggja vel við hlustir og
skrifa svo slúður um okkar innan-
hússmál, sem er algerlega út í blá-
inn. Vinsamlegast athugið að þótt
þetta séu óæðri verur þá hafa þær
heym. Baráttukveðja von Tynes-
berg." Þetta skrifaði Óli hrokalaust...
•OgmeiraafNFS
þvíÞórirGuð-
mundsson, nýr
varafféttastjóri ný-
miölunar365-fjöl-
skyldunnar, eða yfir-
maður Vísis í stuttu
máli, er strax farinn að láta til sfn
taka í nýja starfinu. Þórir beið ekki
boðanna þegar hann tók við og
dreif sig út til Kosóvó þar sem hann
verður við kosningaeftirlit næstu
vikuna. Ekki er vitað hvort Þórir
verði með ferskar fréttir frá Kosóvó í
beinni á Vísi en við bíðum spennt...
eStarfsmenn sölu-
og markaðssviðs
Icelandair gerðu
sér glaðan dag á
Nordica-hótelinu á
föstudaginn. Ekki
að ástæðulausu
því afkoma félagsins hefúr verið
frábær á undanfömum mánuð-
um. Skemmtiatriðið sem boðið
var upp á var ekki af verri endan-
um því skötuhjúin Magni og Dil-
ana mættu á svæðið og tóku
‘inokkur lög. Mesta stemning-
|in var þegar Magni tók lagið
* The Dolphin's Cry með Live
sem hann gerði ódauðlegt
I íRockStar-þáttunum.
' Efdr tónleikana kepptust
((starfsmennimir um að
' fá eiginhandaráritun hjá
rokkparinu...
•Yoko Ono, ekkja
Johns Lennon, er
komin til landsins
tilaðveitafriðar-
verðlaun sem hún
stofnaði til. Athöfn-
in fer fram í Viðey og mun sú jap-
anska dvelja hér á landi í nokkra
I daga.Húnervönþví
JPB flottasta og því mun
Jfjy förðunarsérfræðing-
■j ur fylgja henni hvert
■l I fótmál á meðan á dvöl
V hennar stendur. Það er
----1 stjömusminkan Elín
Reynlsdótdr sem fær það vanda-
sama lilutverk að fýlgja Ono eftir...
• Steingrímur Sæv-
arr Ólafsson, fýrr-
verandi upplýsinga-
fulltrúi Halldórs
Ásgrímssonar forsæt-
isráðherra, er einn
öflugasti fféttablogg-
ari landsins þessa dagana. Hann
heldur úti bloggsíðu þar sem finna
má nýjustu fréttir af fjölmiðlasam-
steypunni 365 sem er honum eink-
ar hugleikin. Einnig var hann fýrst-
ur með þær fréttir að Baugur stæði
á bak við tímarit Reynis Trausta-
sonar. Margir undrast hvemig hann
hafi tfrna til að blogga af slíkum
krafti sem raun ber vitni en hann er
jú enn á launum hjá ráðuneytinu...
Allt fariö Iris Björk keypti
i húsiö á Sunnuflöt 48 og
‘létrifaþað.
íris Björk Jónsdóttir, annar eigandi fataverslunarinnar GK, er á góöri leið meö að leggja
Garðabæinn undir sig. Hún keypti einbýlishús á Sunnuflöt í sumar og hús á Tjarnarflöt
ekki alls fyrir löngu.
Tískudrottningin
íris flytur við hlið
BYKO-forstjóra
íris Björk Jónsdóttir, eigandi fataverslunarinnar GK, er stórhuga
manneskja. Hún á nú tvö einbýlishús í Garðabæ sem hún keypti
fyrir rúmar 100 milljónir samtals. Annað húsið, á Sunnuflöt 48,
hefur hún rifið og hyggst byggja stórglæsilega villu í staðinn en í
hinu húsinu á Tjamarflöt 10, við hliðina á Ásdísi Höllu Bragadótt-
ur forstjóra BYKO, hyggst hún búa á næstunni.
„Jú, það er rétt. Ég keypti hús-
ið á Tjarnarflöt 10 og ætla að vera
þar í það minnsta næsta hálfa árið,"
sagði íris Björk í samtali við DV í gær.
Hún sagðist lengi hafa haft augastað
á húsinu og gripið tækifærið þegar
hún seldi einbýlishús sitt í Blöndu-
hlíð fyrir skömmu. íris borgaði 66
milljónir fyrir húsið sem er rúmir
250 fermetrar að stærð. Hún hefur
hug á því að byggja rúmlega 100 fer-
metra við húsið en sagði þó að enn
ætti eftir að fá samþykki fyrir teikn-
ingum af stækkuninni hjá yfirvöld-
um í Garðabæ. Nágrannar henn-
ar eru ekki af verri endanum því við
hliðina á henni búa hjónin Ásdís
Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, og
maður hennar, Aðalsteinn Jónsson,
lögfræðingur hjá Straumi-Burðarási.
Með annað hús í bígerð
Ekki er langt síðan íris Björk
keypti einbýlishús að Sunnuflöt 48.
Hún borgað 44 milljónir fyrir það og
lét vera sitt fýrsta verk að rífa það.
Hún hefur látið arkitektinn Guðna
Tyrfingsson teikna nýtt hús sem
mun, eins og meðfylgjandi mynd-
ir sýna, verða eitt allra glæsilegasta
einbýlishús höfuðborgarsvæðisins.
Það verður um 560 fermetrar að
stærð með rammgerðum múrvegg í
kring þannig að forvitnir vegfarend-
ur sjái ekki inn í húsið.
íris hefur sjálf ekki tekið ákvörð-
un um það hvort hún hyggist búa
til fram- búðar á Sunnuflöt eða
einfaldlega selja.
„Það er
Gerir upp hús í frístundum
íris hefur verið dugleg við að gera
upp hús í frístundum undanfarin
ár. Hún hannaði glæsilegt einbýlis-
hús við Eikarás sem athafnamaður-
inn Engilbert Runólfsson keypti af
henni. Þar búa nú Habitat-hjónin
Ingibjörg Þorvalds-
dóttir og Jón Arnar
Guðbrandsson. fris
gerði einnig hús sitt
í Blönduhlíð upp
á glæsilegan hátt
en Freymóður Jó-
hannesson, bet-
ur þekktur sem 12.
september, teikn-
aði og átti það hús
lengi.
Margt í bígerð
Eins og áður
sagði er íris Björk
fýrst og fremst
fatakaupmaður
í GK sem hún
á ásamt Arnari
Gauta. Hún sagði verslunarrekst-
urinn ganga afar vel, framar öllum
vonum, en til hliðar væri hún einnig
að vinna að mörgum öðrum verkefn-
um. Hún mun aðstoða Arnar Gauta
við húsbyggingu í þættinum Innlit
útlit á Skjá einum í vetur en þar er
hann einn þriggja þáttarstjómenda
sem munu keppa sín á milli í hús-
byggingum í þættinum.
oskar@dv.is
fris Björk Jónsdótttir
Tiskudrottningin kaupir
einbýlishús I Garðabæn-
um I grið og erg.
Góður granni fris Björk færAsdisi
Höllu Bragadóttur, fyrrverandi
bæjarstjóra Garðabæjar og núverandi
forstjóra BYKO, sem nágranna.
Glæsivilla Guðni Tyrfingsson
arkitekt i Danmörku hefur
teiknað glæsivillu fyrir frisi
sem á að risa á Sunnufiöt.
Tjarnarflöt 10 Þetta hús
keypti Iris Björk á 66
miiljónir fyrirskömmu.
í það
eitt ár
húsið
tilbúið
mmnsta
þar til
verður
og það er lang-
ur tími," sagði
íris.
Engilbert Runólfsson
Byggingarverktakinn
umsvifamikli keypti
Eikarás 7 affrisi Björk.
Habitat-hjónin
Ingibjörg Þorvaldsdóttir
og Jón Arnar Guðbrands-
son búa nú í Eikarásnum.
aBSJSSMSB
Blönduhlfð 8 Þetta hús gerði
Iris Björk upp á glæsilegan hátt
og seldi núá dögunum. Ekki er
talið aðþaðhafi farið á undir
100 milljónum en það var falt
fyrir 130 milljónir þegar það var
auglýst tilsölu seint á síðasta ári
Eikarás 7 Þetta hús gerði Iris Björk
upp á slnum tíma og hafa myndir
afþvl birst I tlmaritinu Veggfóðri.