Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2006, Blaðsíða 25
PV Helgin
FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 25
g er bara brosandi allan
hringinn. Það er þvílíkur
léttir að vera búinn með
þetta. Mér líður eins og
ég sé komin með lífið aftur í mínar
hendur," sagði Unnur Birna í sam-
tali við DV á miðvikudaginn. Unn-
ur Birna krýndi tékknesku stúlkuna
Tatönu Kucharova ungfrú heim í
Varsjá í Póllandi á laugardaginn
og þar með lauk eins árs ævintýri
hennar sjálfrar sem ungfrú heimur,
ævintýri sem hefur borið hana til
landa eins og Indlands og Brasilíu
og margra annarra þar á milli.
Alltaf á vaktinni
„Eins mikið ævintýri og þetta
var og skemmtilegt, þá var þetta
inn á milli afskaplega erfitt. Ég var
bókstaflega alltaf á vaktinni og gat
ekki átt neitt skipulagt líf. Ég var
auðvitað samningsbundin skipu-
leggjendum keppninnar en mér
leið oft eins og ég væri svipt frels-
inu. Líf mitt stóð í stað þetta ár og
sem dæmi þurfti ég að fresta há-
skólanámi mínu á meðan á þessu
stóð. Ég sé samt alls ekki eftir þess-
um tíma. Þetta var vel þess virði,"
segir hún.
10. desember 2005 Unnur Birna
Vilhjálmsdóttir fellir tár skömmu eftir að
hafa verið kjörin ungfrú heimur 20051
Klna. DV-mynd Reuters
„Mér leið ofteins og ég
værisviptfrelsinu."
Pólland tók á
Unnur Birna segir að síðustu
vikurnar í Póllandi nú í september
hafi verið annasamar og tekið mik-
ið á. „Ég var í fimm vikur í Póllandi
og var lokuð inni á hóteli nær all-
an tímann. Ég þurfti meira að segja
að laumast út í sjoppu til að kaupa
mér gos. Það var ofboðslega gaman
á krýningunni og mikið spennufall
á eftir. Þá fyrst fann ég hversu mik-
ill léttir það var að vera búin með
þetta verkefni og geta snúið sér að
öðru."
Opnar margar dyr
Unnur Birna segist ætla að ein-
beita sér að lögfræðináminu á
næstunni og önnur verkefni verði
prjónuð í kringum það. „Því er
ekki að neita að þessi titill hefur
opnað margar dyr. Mér hafa boð-
ist fýrirsætusamningar og sjón-
varpskynningar í Bretlandi og ég
er meðal annars búin að bóka mig
í fyrirsætustörf á Indlandi í nóvem-
ber. Það er yndislegt land sem mig
langar til að kynnast betur. Ég er
með umboðsmenn þar úti þannig
að vonandi fæ ég tækifæri til að
fara þangað oft,“ segir Unnur Birna
sem ætlar að hamra járnið á með-
an það er heitt.
Kynnir á Herra heimi
„Það væri kjánalegt að reyna
ekki að ná sem mestu út úr þessu
núna. Það yrði erfiðara fyrir mig
eftir þrjú ár að kynna mig sem ung-
frú heim 2005. Þá hefðu ekki marg-
ir áhuga," segir hún. Það kemur til
greina að Unnur Birna verði kynnir
á Herra heimi sem fer fram í Kína
í apríl á næsta ári, á sama stað og
hún vann titilinn í fyrra. „Það yrði
skrýtið að koma þarna aftur en
þetta er yndislegur staður. Ég mun
þá taka einhvern með mér og fara í
frí í leiðinni."
Unnur Birna er á lausu þessa
dagana. „Ég er ekki að leita mér að
kærasta," segir hún. „Það er alveg
nóg að gera samt."
oskar@dv.is
30. september 2006 Unnur Birna sést hér krýna hina tékknesku Tatönu Kucharova,
ungfrú heim 2006, síðastliðinn laugardag i Varsjá I Póllandi. DV-mynd AFP
Flaug til lowa í
Bandaríkjunum snemma árs
til að taka þátt í frábærum
viðburði sem haldinn hefur
verið í hátt í 30 skipti. Hann
gengur út á það að fengnir
eru frægir leikarar,
söngvarar, skemmtikraftar
og í þetta skiptið ungfrú
heimur til að stjórna og
halda uppi 24 tíma
sjónvarpsþætti I beinni
útsendingu. Þátturinn
gengur svo út á það að fá
fólk til að hringja inn og
gefa peningaupphæðirtil
styrktar barnasjúkrahúsum í fylkinu. Þarna eyddi ég tæpri viku I undirbúning
með yndislegu fólki, vakti svo í heilan sólarhring, kom margoft fram á skjánum
sem kynnir og á endanum uppskárum við eins og vlð sáðum.
Það söfnuðust 3,6 milljónir Bandarfkjadala sem eru um 250 miiljónir íslenskra
króna.
I þessari ferð eignaðist ég marga góða vini, sem ég er í góðu sambandi við f dag
og hlakka til að heimsækja þegar fram Ifða stundir, en einnig er á dagskránni að
ég aðstoði við telethonið aftur á næsta árí, þá sem UB en ekki Miss World.
Var heiðursgestur á lelk
Brasilíu og Króatfu á
heimsmelstaramótinu í knattspyrnu f
sumar. Hann fór fram á leikvanginum f
Berlfn þar sem ég sat f sérstöku VIP-
boxi og m.a. var framreiddur dýrindls
kvöldverður í hálfleik. Þarna átti ég
eitt af skemmtilegustu kvöldum ársins
enda alltaf verið áhugamanneskja um
fótbolta og langþráður draumur að
fara á svona stóran leik. Hins vegar var
mér einnig boðið á úrslitaleikinn
sjálfan en vegna anna, hinum megin á
hnettinum, varð ég að láta mér
þennan nægja.
Komst f heimsfréttirnar f sumar fyrir það að vera útnefnd guðmóðir
tveggja nýfæddra sebrahesta sem voru svo einnig nefndir f höfuðið á
mér. Fannst þetta uppátæki Pólverjanna meira spaugiiegt en nokkuð
annað, en samt sem áður er gaman að vita af því að f dýragarði j Varsjá vaxa og
dafna tveir sebrahestar sem svara nöfnunum Unnur og Birna, eða U og B.
Mitt fyrsta verkefni sem ungfrú heimur var
myndataka fyrir tímaritið Hellol sem fór fram
hér á (slandi. Þar hlotnaðist mér sá heiður að fá
að vinna með og kynnast persónulega henni Dorrit,
okkar yndislegu forsetafrú, sem hefur svo verið mér
innan handar allt árið og ég hef alltaf getað leitað til
ef eitthvað er. Hellol er líka flott og mikilsvirt tímarit
og það að ég hafi verið mynduð f fslenskri náttúru og
þær myndir birst þar er mér mikils virði.
v
Hún hverfur mér seint úr minni, fyrsta heimsóknin mfn sem ungfrú
heimur á barnaspftala, en hún fór fram f Póllandi mjög snemma á
árinu. A þessum spftala var mikið af ofsalega veikum börnum sem
þarna dvöldu við ekki meira en bærilegar aðstæður. Ég gerði mítt besta við að
gleðja þau, gefa þeim bros, hlýju og snertingu, en þegar ég kom út f bil var ekki
langt í tárin. Var gjörsamlega búin á því andlega það sem eftir var dagsins.
Þetta lagði þó Ifnurnar fyrirárið þvf oft á tfðum þurfti ég að nota innri styrk og
sjálfsaga til að komast f gegnum erfiðar og ótrúiegustu aðstæöur.