Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
Fréttir DV
FURÐUFRÉTTA -ANNÁLL ÁRSIN5 2006
Páfagaukurinn Pepe í fangelsi
og Henríkpríns éturhunda
Af mörgu er að taka þegar
skoðaðar eru furðufréttir
ársins í erlendum fjölmiðl-
um. Hér fylgir úrval þeirra
en meðal annars er getið um páfa-
gaukinn Pepe sem dómari í Argen-
tínu dæmdi í fangelsi og hundaát
Henriks prins, eiginmanns Mar-
grétar Þórhildar Danadrottningar.
Og ekki má gleyma viðburðum á
borð við tilboð ítölsku klámstjörn-
unnar Cicciolinu um að sofa hjá
Osama bin Laden ef hann hætt-
ir hryðjuverkastarfsemi. Osama
kemur einnig við sögu í Belgrad
þar sem kaffihús með nafni hans
neyddist til að breyta því. Kín-
verskur maður reyndi að selja sál
sína á netinu og enskur maður
reyndi að selja tengdamömmu á
netinu.
Osama breytir um nafn
Kaffihúsinu Osama í Belgrad í
Serbíu hefur verið gert að breyta
nafni sínu eftir kvartanir frá banda-
Milljón króna hamborgari
Marco Parra-Martinez, 23 ára
Belgi sem pantaði sér hamborgara
á McDonald's, fann sér til furðu um
15.000 evrur, eða rúmlega milljón
krónur, í pokanum með hamborg-
aranum. Marco segir í samtali við
Het Laatste Nieuws að hann hafi
hugsað í augnablik hvort hann ætti
að hirða féð en ákvað svo að skila
því. Fyrir mistök hafði poki með
uppgjöri staðarins verið notað-
ur til að afgreiða hamborgarann.
Þetta gerðist á McDrive-staðnum í
Waterloo. Marco fær vegleg fund-
arlaun fyrir heiðarleika sinn.
Heimsendir kom ekki
Meðlimir sértrúarsafnaðar í
Kenýa urðu fyrir töluverðum von-
brigðum í haust. Þeir bjuggu sig
vandlega undir heimsendi sem
þeir sögðu að yrði ekki seinna en
12. september þegar kjarnorku-
stríð átti að skella á. Þessi heims-
endaspá var sett fram af andlegum
leiðtoga þeirra, Yisrayl Hawkins. Sá
er raunar staðsettur í Bandaríkj-
unum en á rætur að rekja til ísrael.
Söfnuðurinn, Hús Yahweh, vann
hörðum höndum að því að byggja
skjólshús til að verja sjálfan sig fyr-
ir komandi hörmungum. Þær látu
hins vegar á sér standa.
ríska sendiráðinu í borginni
en Osama er beint á móti
sendiráðinu. Orðið Osama
þýðir skjól á serbísku og eig-
andi þess Milomir Jeftic seg-
ir að hann hafi nefnt kaffihús
sitt eftir skýli fyrir heimil-
islausa í grenndinni. „Ég i
ætlaði mér ekki að móðga
Bandaríkjamennina. Þetta
er bara orð í serbnesku. Ég I
viðurkenni að ég hafði heyrt
um Osama bin Laden en vissi ekki
alveg hver hann var fyrr en sendi-
ráðið kvartaði," segir Milomir Jeftic
Reyndi að selja sál sína
Kínverskur maður reyndi að
selja sál sína á netinu á árinu. Mað-
urinn, sem er rúmlega tvítugur og
frá Jiaxing-héraði, setti sál sína til
sölu á uppboðsvefnum Taobao.
Honum bárust 58 tilboð í sálina
áður en stjórnendur vefsins gripu
í taumana og kipptu þessari „vöru"
úr sölu. Að sögn China Daily höfðu
stjórnendur Taobao í sjálfu sér ekk-
ert á móti sölunni en þeir höfðu
áhyggjur af því hvernig seljandinn
ætlaði að standa við sinn hlut af
viðskiptunum.
un dómara í Argent-
ínu. Tveir nágrannar
eildu um eignarrétt á
páfagauknum og skip-
aði dómarinn þá lög-
reglunni að setja Pepe
í gæsluvarðhald þar
til hann hefði hóstað
upp úr sér nafninu á
hinum rétta eiganda.
Eftir fimm daga sagði
Pepe ekki bara nafnið
á eiganda sínum heldur söng hann
einnig baráttusöng uppáhaldsfót-
boltaliðs hans. „Ég vissi að hann
myndi ekki bregðast mér. Hann er
raunverulegur vinur minn og við
styðjum báðir sama fótboltaliðið,"
segir hr. Machado, eigandi Pepe.
Reyndi að selja tengdó
Steve Owen, 42 ára Englending-
ur, er orðinn svo þreyttur á tengda-
mömmu sinni, hinni fimmtugu
Caroline Allen, að hann hefur sett
hana til sölu á eBay-vefnum. Hann
setti tengdó í flokkinn Safngripir og
skrýtnir hlutir og lýsti henni sem
„notaðri". „Mér er dauðans alvara,"
segir Owen. „Hún kemur í heim-
sókn til okkar á hverjum degi og
reynir að breyta lífsháttum mínum
og skipar mér
að taka til."
Blíðan boðin
Osama
Hin 55 ára
gamla klám-
myndastjarna
Cicciolina hef-
urboðið Osama
bin Laden blíðu
sína ef hann
í staðinn læt-
ur af hryðju-
verkastarfsemi.
Á klámsýningu í
Búkarest í Rúm-
eníu sagði Cicc-
iolina að það
væri kominn
tími til að einhver tæklaði bin La-
den og að hún væri sú rétta í verk-
ið. Hún benti á að bin Laden gæti
lært af mistökum Saddams Huss-
ein en fyrir nokkrum árum bauð
hún Hussein einnig blíðu sína ef
hann léti af störfum sem einræðis-
herra íraks.
Páfagaukur í fangelsi
Páfagaukurinn Pepe eyddi ný-
lega fimm dögum í fangelsi að skip-
Brjóst á flótta
Á árinu var greint frá hrelling-
um Iýtalæknisins Michaels Kön-
ig í borginni Köln
í Þýskalandi sem
orðið hafði fyrir
barðinu á „bíræfn-
um" brjóstaþjófum.
Konum sem fengu
silíkon í brjóst sín
með skurðaðgerð en
stungu síðan af frá
reikningnum. í við-
tali við þýska blað-
ið Bild segir König
farir sínar ekki slétt-
ar enda hafa fjórar
konur snuðað hann
að undanförnu.
Hann tekur dæmi
af konu sem sagðist
heita Tanja. Hún lét
stækka á sér brjóstin
og kostaði aðgerðin
hátt í áttatíu þúsund
krónur. Eftir aðgerð-
ina sagðist Tanja
vilja fá sér frískt loft
en ekkert hefur síð-
an til hennar spurst
og reikningurinn er
ógreiddur. Bild birti
fimm dálka mynd af
brjóstunum hennar Tönju svo lög-
hlýðnir þýskir borgarar gætu að-
stoðað lögregluna við að hafa uppi
á þeim. Síðast þegar fréttist voru
brjóstin ófundin.
James Bond sem hommi
Daniel Craig lætur
sér ekki nægja að vera
fyrsti ljóshærði James
Bondinn í sögunni. Nú
vill hann breyta þessum
njósnara hennar há-
tignar í homma. „Dani-
el Craig beið með þessa
yfirlýsingu af klókind-
um þar til heimurinn
var búinn að taka vel á
móti honum sem hin- .
um nýja James Bond," ‘ y
skrifar Ekstra Bladet
um þessa furðuhug-
mynd leikarans og
bætir því síðan við að
Bond sé ekki alveg kar-
akter sem hægt sé að
á auð-
hátt. Cra-
ig er augljóslega
ekki sammála
þessu áliti blaðs-
ins því hann seg-
ir að ofurhetjan
eigi að breytast í
homma í næstu
mynd. „Afhverju
ekki?" spyr Cra-
ig. „Ég tel að aðdáendur kappans
í dag muni sætta sig við þetta. Sjá-
ið bara ensku sjónvarpsseríuna Dr.
Who. Þar eru homm-
asenur og enginn
það."
Markmaður fyrir
gas
Fótboltalið í ann-
arri deild í Rúmen-
íu hefur boðist til
skipta á besta
manni sínum, mark-
manninum Cristi-
an Belgradean, fýr-
ir gasleiðslu til
heimabæjar síns.
Um er að ræða lið-
ið Minerul í bæn-
um Lupeni í vest-
urhluta Rúmeníu.
Cornel Rasmerita
er bæði bæjarstjóri
og stjórnarformað-
ur liðsins. Hann
vill selja Cristian
til fyrstudeildar-
liðsins Jiul ef eig-
andi Jiul leggur í
staðinn gasleiðslu
til Lupeni, nokkuð
sem bæjarbúa sár-
lega skortir. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem rúmenskir
fótboltamenn eru seldir fyrir annað
en pening. Þannig eru dæmi um að
fótboltamenn hafi verið seldir fyrir
hálft svín, tvö sett af markstöngum
og tunnu af víni.
Mel B notar vúdú á Eddie
„íslandsvin-
urinn" Mel B
notar nú vúdú
til að vinna aft-
ur ástir Edd-
ies Murphy og
hefur hún ráð-
ið nornalækni
til starfans. Mel
;B, sem geng-
ur með barn
Eddies undir
belti, mun með-
al annars hafa
migið í krukku
undan olífu-
olíu til að losna
við sukkfélaga
Eddies, nuddað
vindlum við húð sína til að fá hann
aftur og troðið pari af nærum Edd-
ies og sínum í krukku sem hluta af
einhverjum furðuseið. Vinir þess-
arar fyrrverandi Kryddstúlku segja
vikublaðinu News of the World
að hún hafi breytt herbergi sínu
á lúxushóteli í vúdúhof og feng-
ið vúdúprinsessuna Tabithu til að
fremja þar ýmsa galdra. Þetta hefur
ekki borið árangur hingað til.
Henrik prins étur hunda
Henrik prins, eiginmaður Mar-
grétar Danadrottningar, hefur
komið dýraverndunarsinnum í
töluvert uppnám með því að segj-
ast elska hunda, þunnskorna og
léttsteikta. Prinsinn sagði tímarit-
inu Ud & Se að hundakjöt bragð-
aðist svipað og kanínukjöt. Þessi
ást á hundakjöti er tilkomin sök-
um þess að Henrik ólst upp í Víet-
nam þar sem hundakjöt þykir sæl-
keramatur. „Ég hef ekkert á móti
hundakjöti," segir prinsinn. „Þess-
ir hundar eru ræktaðir til manneld-
is, svipað og kjúklingar." Það fylgir
sögunni að prinsinn er heiðursfor-
seti danska Dachshundklúbbsins.
Kannabis fyrir kýrnar
Fimm rúmenskir
sæta nú rann-
sókn eftir að lögregl-
an komst að því að þeir
fóðruðu kýr sínar með
kannabis. Bændurnir,
sem eru frá Romanesti
Botosani-sýslu, tjáðu
lögreglunni að „grasið"
hjálpaði kúnum til að
gefa af sér meiri mjólk.
Ræktuðu bændurnir
heilu akrana af kanna-
bis handa kúm sínum
enda urðu þær svo „...
glaðar og mjólkuðu
mun meira en áður".
Bændurnir sem eru á
aldrinum 57 til 82 ára
halda því fram að þeir
hafi ekki vitað að þeir væru að
brjóta lögin
með því að
rækta kanna-
bis á ökr-
um sínum.
Bóndinn Ion
Astarastoa-
ie segir: „Við
ræktuðum
þetta í góðri
trú."