Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 Helgin PV Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka. Það eralltafáhugavertað lítayfirfarinn veg, þá einkum og sérílagi á tímamótum eins og áramótin svo sannarlega eru. DV fékk nokkra einstaklinga sem hafa vakið athygli á árinu til að draga fram það sem þeim þótti markverðast á árinu 2006. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Hnattvæðingin skúrkur ársins 1. Nafn, starfog stjörnumerki7 „Guðfrlöur Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands fslands, steingeit 2. Hvernig var áriö 2006? „Viöburöarikt, fjölskrúðugt og skemmtilegt meö fulltafóvæntum beygjum 3. Hvað var fyrirsjáanlegast á árinu? „Aö vakna á hverjum morgnif 4. Hvaö kom mest á óvart á árinu? „Sú fluga aö fara út I pólitlk." 5. Hvað breytti lífí þinu á árinu? „Amerika Emmu Goldman." 6. Hver var skandall ársins 2006? „Hálslón, Hellisheiöin, uppsögn varnarsamn- ings, afsögn Halldórs, endurkoma Arna - llstinn er drjúgur, á ég nokkuö aö halda áfram?“ 7. Hvert var fíopp ársins? „Kæri Jón - NFS semvarbara haldiö úti II0 mánuði." 8. Hver var maður ársins? „Augnablikskonurnar Ósk Vilhjálmsdóttir og Ásta Arnardóttir sem buöu upp á magnaöar feröir um öræfi Islands fyrir fólk á öllum aldri. Og gáfu okkur slöasta augnablik heimsins til aö njóta feguröar sem nú er glötuð aö eillfu." 9. Hver var skúrkur ársins? „Hnattvæöing sem hneppir milljónir manna I þrældóm og kallarþað viöskipti." 10. Hvaö mun breytast árið 2007? „Ummittár taka íslendingar þá ákvöröun aö búa til betra velferðarsamfélag, byggja upp innihaldsrlka menntun barna og unglinga, tryggja kvenfrelsi, útrýma fátækt, jafna þátttöku allra, stuöla aö réttlæti og vernda stórbrotna náttúru landsins. Þá brjótast út mikil fagnaðarlæti. Hvaö varðar mig persónulega ■V ætla ég að byrja að nota tannþráö á hverjum degi og fara reglulega I sund." HelgiSeljan Öruggtþingsæti Róberts Marshall þaðóvæntastaá árinu 1. Nafn, starf og stjörnumerki? „Helgi Seljan, fréttamaöurog Steingeit." 2. Hvernig var árið 2006? „Það var bara nokkuð gott, byrjaði ferkar illa enda endaði mjög vel.“ 3. Hvaö var fyrirsjáanlegast á árinu? „Ég held að það sem hafí veriö fyrirsjáan- legast á árinu hafí verið öruggt þingsæti Árna Johnsen." 4. Hvað kom mest á óvart á árinu ? „Ja, þaö var öruggt þingsæti Róberts Marshall." 5. Hvaö breytti lifi þínu á árinu? „Ætli það hafa ekki bara verið, skal ég segja þér, blltúrinn með nýja borgarstjór- anum þegar hann tók við embætti." 6. Hver var skandall ársins 2006? „Það var reykingafrumvarpið. En auðvitað hefég enga skoðun á þvf." 7. Hvert var flopp ársins? „Ég held að flopp ársins 2006 sé greinin hans dr. Gunna um mestu krummaskuð landsins i Fréttablaðinu. Maðurinn er úr Kópavogi." 8. Hver var maður ársins? „Það er áhöfnin á Súlunni EA.Þeir eru svona litli maöurinn meö stóra hjartað í loðnuflotanum." 9. Hver var skúrkurársins? „Þaö varAndri Freyr Viðarson. Þeir vita það sem þekkja hann." 10. Hvaö mun breytast árið 2007? „Ég verð 28 ára og fer að þurfa að raka mig einu sinni I viku." Margrét Sverrisdóttir Ómar Ragnarsson ermaðurársins 2006 1. Nafn, starfog stjörnumerki? „MargrétK. Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins - Meyjarmerki." 2. Hvernig varárið 2006? „Mjög gottafþvlstórfjölskyldan var heilbrigð og hamingjusöm, þaö skiptir öllu máfí." 3. Hvaö var fyrirsjáanlegast á árinu? „Góöursigur frjálslyndra og óháðra I sveitarstjórnarkosningum í Reykjavik slðastliðið vor.“ 4. Hvaö kom mest á óvart á árinu? „Aö við skyldum ekki verða hluti nýs meirihluta með 10,396 atkvæða, en Framsókn skyldi veröa þaö með 6% atkvæöa borgarbúa." 5. Hvaö breytti lifi þinu á árinu? „Ég losnaöi v/ð spangirnar aftönnunum!" 6. Hver var skandall ársins 2006? „Fyrir ísland var þaö þegar náttúruundrum var sökkt IHálslón, en fyrir mlna parta var það þegar mérvarsagt upp s taiii m/nu fyrirvaralaust eftlr tæpan áratug." 7. Hvert var fíopp ársins? „Iraksstrlöið er flopp ársins nú llkt og undanfarin ár og ekki siður að ráðamenn okkar játuöu hversu fumkennd ákvörðun þeirra var um aöild okkar þjóðar að svo stórvægilegu máli. Þar var brotiö gegn öllum grundvallarreglum lýöræðisins." 8. Hver var maður ársins? „Ómar Ragnarsson sem hefur lagt allt I sölurnar fyrir náttúru Islands." 9. Hver var skúrkur ársins? „Skúrkar ársins eru fyrrum ritstjórar DV vegna aðfarar þeirra aö Gisla Hjartarsyni, leiðsögumanni á Isafirði." 10. HvaÖ mun breytast áriö2007? , „Það kemur ný rlkisstjórn sem tekurærlega til hendinni I baráttu gegn vaxandi ójöfnuði þegnanna." Oddný Sturludóttir Ragnar Bragason Kombakkhvalveiða Skúrkar ársins floppársins2006 T. 1. Nafn, starfog stjörnumerki? „Oddný Sturludóttir, varaborgarfulltrúi Samfylkingar, rithöfundur og píanókennari. Ljón." 2. Hvernig var áriö 2006? „Dásamlega strembið. Leiddi mig úr fæðingarorlofi inn I borgarstjórn, um gjörvalla Manhattan-eyju, botn Hálslóns og nær allar götur Reykjavíkurborgar." 3. Hvað var fyrirsjáanlegast á árinu? „Að einlæg tilraun mín til að verða fyrsta flokks smábarnamóðir, húsfreyja, eiginkona og pólitíkus á sama tima, mistókst hrapalega. Ég erstrax búin að sætta viö mig orðinn hlut hvað viðkemur árinu 2007.“ 4. Hvað kom mest á óvart á árinu? „Að uppgötva náttúruperlur sem nú eru komnar undir vatn, að uppgötva aö pólitik er bráðskemmtileg og að stlga aftur á svið með minni gömlu hljómsveit Ensími." 5. Hvað breytti lífiþínu á árinu? „Llfíð breytist aldrei en aðstæöur breytast I sifellu. Slmtöl frá þremur konum ijanúarbyrj- un höfðu afgerandi áhrifá þátttöku mlna I prófkjöri - og þar með breyttust aðstæður minarnæstu árin tilmuna." 6. Hver var skandall ársins 2006? „Aö kynbundinn launamunur hafí ekki minnkað 115 árogjú- við íslendingar eigum vist Evrópumet I honum líka. Kona spyr sig hvað stjórnarliðar hafa eiginlega verið að eyða tímanum I niðri á Alþingi? 7. Hvert var fíopp ársins? „Kombakk hvalveiöa; ímynd landsins og metnaðarfullu markaðsstarfi I heilsu fórnað fyrir niu skrokka afvondu kjöti. Flopp á heims- mælikvarða." 8. Hver var maöur ársins? „Maöurinn minn - fyrir að vera það ennþá." 9. Hver var skúrkur ársins? „Voðalega eru þetta neikvæðar spurningar! Ég biöst undan þessari tilnefningu en bendi á félaga úrSjálfstæðisfíokknum ÍSuöurkjör- dæmi - þar á vlst að vera sæmitegt úrval." lO.Hvað mun breytast áriö 2007? „Fyrsta konan sest/stól forsætisráð- herra Islands - kominn tlmi til." fégráðugir íslendingar 1. Nafn, starfog stjörnumerki? „Ragnar Bragason, kvikmyndaleikstjóri I Meyjarmerkinu." 2. Hvernig var árið 2006? „Fyrir mig var árið 2006 skemmtilegtog gefandi. Á vormánuöum gerðiég20þættiafStelpunum fyrirStöð 2 sem var hressandi. Svo / september frumsýndi ég BÖRN sem fékk frábær viðbrögð og ég þvældist vlös vegar um heiminn meö. Fyrir Islenska kvikmyndagerð held ég að 2006 hafi veriö tlmamótaár. Margarframbærilegarog góðarkvikmyndir voru frumsýndarsem varsvo toppaö með endumýjuöum samningi viö Menntamálaráðuneyti um hærri framlög til kvikmyndageröar." 3. Hvaö var fyrirsjáaniegastá árinu? „Fastirliðireinsog venjulega. Eiginhagsmuna- stefna Bandaríkjanna i alþjóöamálum, Spaugstofan, áframhatd á hlægilegum Islenskum skandölum eins og Baugsmálinu og aðgerðarleysi I náttúruvernd." 4. Hvaö kom mestá óvart á árinu? „Éggetekkisagtað neitthafí komið mérsértega áóvartáárinu." 5. Hvaö breytti lifi þinu á árinu? „Ný og endumýjuö samskipti viö fjölskyldu, vini og fólk almennt breyta mér ögn til betri vegar á hverjum degi." 6. Hver var skandall ársins 2006? „Hártoganirog vandræðagangur I umræöu um mál Rlkisútvarpsins og tafir á umbreytinum þar á bæ. Annars ná völd Framsóknarflokksins, þrátt fyrir nær ósýnilegt fylgi, einhvern veginn að vera skandall ársins ár eftir ár." 7. Hvert var fíopp ársins? „Vil ekki tilgreina neitt sérstakt. Flopp eru einungis liöur I aö gera heiminn betri. Flestir læra afslnu floppi og reyna aö gera betur næst. Menn læra ekkert nemaað prófa sig áfram." 8. Hver var maður ársins? „Erlendi verkamaðurinn sem kom hingað tilaö halda Islensku samfélagi gangandi á svínslega lágum launum." 9. Hver var skúrkur ársins? „Fégráðugi Islendingurinn sem leigir verkamanninum fermeter I niðurnlddu verksmiðjuhúsnæði á 6000 kr." 10. Hvaö mun breytastárið 2007? „Það verða sjaldnast stórvægilegar breytingar I heiminumáeinuári. Mikilvægast er aö breyta mörgum litlum hlutum, sem svo smátt og smátt verða stórir. En ég erbjartsýnn. Sérlega þætti mér vænt umáöfólkhætti þessari urhbúða- og útlitsdýrkun ogfariað V leggjaáHerslu áinnihald."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.