Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Blaðsíða 23
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 23
Finnur Ingólfsson er einn af umdeildustu mönnum íslands. Hann hóf snemma ferilinn í stúdentapólitíkinni
en yfirgaf vettvang stjórnmálanna snögglega árið 1999 þegar hann varð Seðlabankastjóri. Finnur hefur komið
víða við í atvinnulífinu og hefur með dugnaði sínum komið sér í raðir ríkustu manna landsins.
aðalatriðum, bjartsýnn og lætur ekki
smámuni trufla sig. Það slæma er að
hann hefur alltof mikið að gera sem
kemur til af því að hann er svo bón-
góður og ég fullyrði að ef konan hans
hefði ekki passað upp á hann væri
hann búinn að gefa frá sér aleiguna.
Finnur er vinur sem hefur aldrei
brugðist manni, en hann er of upp-
tekinn og að mínu mati forgangsrað-
ar hann stundum rangt, en það er
hans að ákveða, ekki mitt," segir Helgi
og bætir við að Finnur hafi hér áður
fyrr oft mætt of seint vegna anna og
þá hafi verið talað um að mætingin
væri á „fmnskum tíma". Það hafi hins
vegar lagast mikið.
„Hann á trausta og góða konu og
Finnur er mikill heimilismaður þótt
hann sé mikið í burtu. Hann er einn
flinkasti pólitíkus sem ég hef um-
gengist, hann er greindur, hann þor-
ir, hann hrakti aldrei menn frá sér
sem sögðu honum sínar skoðanir
og hann steig algjörlega óskemmdur
maður út úr pólitíkinni," segir Helgi
um félaga sinn.
Methagnaður ár eftir ár
Undir stjórn Finns breyttist VÍS
mikið. Þegar hann tók við félaginu
í árslok 2002 voru eignir þess um 19
milljarðar, eigið fé tæpir 5 milljarð-
ar og verðmæti félagsins sem var þá
skráð á markaði um 11 milljarðar.
Þegar Finnur fór frá félaginu þrem-
ur árum síðar voru eignir þess orðn-
ar 100 milljarðar, eigið fé um 30 millj-
arðar og markaðsverðmæti félagsins
65 milljarðar, sem var sú upphæð sem
Exista keypti félagið á í maí 2006.
Öll árin sem Finnur starfaði hjá
félaginu skilaði það methagnaði ár
eftir ár. Félagið var fyrst íslenskra
tryggingarfélaga til að fara í út-
rás. Það keypti hlut í norsku trygg-
ingarfélagi og öðru bresku. Það jók
markaðshlutdeild sína á innlend-
um tryggingarmarkaði úr 31% í 40%
með markvissu sölusamstarfi við KB
banka, kaupum á Islandstryggingu
og Verði vátryggingafélagi.
Samhliða stækkandi markaði fór
VÍS af stað með eignaleigu fyrir ein-
staklinga og atvinnufyrirtæki. Til
þess keypti félagið Lýsingu, stærsta
eignaleigufyrirtæki á íslandi. Nýir
eigendur komu að félaginu í upphafi
árs 2005 en það var Meiður, nú Ex-
ista, sem eignaðist allt félagið fyrir 65
milljarða króna. Fyrri eigendur hafa
því sexfaldað eignarhluta sinn í VÍS
frá árinu 2002.
Von um endurkomu
í júní var orðrómurinn um að
Finnur myndi snúa sér aftur að
stjórnmálum ansi hávær. Stjórn-
málaferli Halldórs Ásgrímssonar
var að ljúka og möguleiki fýrir inn-
Gönguparpur Þrátt fyrir að eyða miklum
tima i vinnunni gefur Finnur sér tima fyrir
fjölskylduna og áhugamálin en hesta-
mennska og gönguferðir eru aðaláhugamál
hans. Nánast allur hans timi fer ihestana en
Finnur fer allavega íeina til tvær góðar
gönguferðir á ári.
komu Finns til staðar. Hann þótti
hafa mikla reynslu af stjórnmála-
starfi og talað var um að hann hefði
haldið tengslum sínum við flokkinn í
starfi sínu utan stjórnmálanna. í við-
tali við Morgunblaðið sagði Finnur
að skorað hefði verið á hann að gefa
kost á sér en að hann ætlaði að íhuga
næstu skref sín.
Eftír mildar vangaveltur lands-
manna um endurkomuna kom svar
frá Finni: Nei. Hann var ekki á leið
í pólitfldna aftur. Talið er að Finn-
ur hafi aldrei íhugað endurkomu
fyrr en Halldór og Guðni Ágústsson
höfðu báðir ákveðið að hætta í kjöl-
far slæmrar útkomu flokksins í sveit-
arstjórnarkosningunum og komist
að samkomulagi um að biðja Finn að
taka við flokknum. Þeir töldu honum
trú um að hann ættí erindi þangað
aftur. Hann var aðeins tílbúinn til
að snúa aftur tíl trúnaðarstarfa fyrir
flokkinn ef breið samstaða myndað-
ist um það innan flokksins að hann
tæki við formannsembættínu, hann
vildi ekki koma þangað til að standa í
pólitískum áflogum.
Kaupir lcelandair
í september bárust fréttír þess
efnis að tveir hópar væru að skoða
kaup á Icelandair úr eigu FL Group.
Annar hópurinn var á vegum Ólafs
Ólafssonar hjá Samskipum en hinn
hópurinn tengist einnig fýrrverandi
Sambandsfyrirtækjum undir forystu
Finns Ingólfssonar, Þórólfs Gíslason-
ar, kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki, og
Helga S. Guðmundssonar, formanns
bankaráðs Seðlabanka íslands.
Tilkynnt var um sölu á 50,5% af
hlutafé Icelandair þann 16. október
en hóparnir sem stóðu að kaup-
unum voru Langflug ehf. sem er að
mestu í eigu Samvinnutrygginga hf.
með 32% hlut, Naust efh. með 11,1%
hlut og Blue-Sky Transport Holding
með 7,4% hlut. Finnur var kjörinn
formaður Icelandair Group í byrj-
un nóvember og fýrir nokkrum dög-
um keypti FS7 ehf., einkahlutafélag
Finns, fjórðungshlut í Langflugi en
félagið er stærsti hluthafi Icelandair
Jöklafold 15 Framsóknarmaðurinn Finnur Ingólfsson býr i340 fermetra endaraðhúsi I
Jöklafold. Hann hefur komið viða við á ferlinum, verið bæði viðskiptaráðherra og Seðlabanka-
stjóri. Það væsir ekki um Finn og fjölskylduna i Jöklafoldinni þar sem þau hafa búið s/ðan 1992.
Finnur Ingolfsson ..Finnur vur skelfilegur
unglingur, hrekkjóttui með afbrigdum og
þeir hrekkir eru ekki til sem hann
framkvæmdi ekki a eldra folki i Vik,' segir
Cggert Skúlason, frettamadur og trændi
Fmns. og bætir við aó Finnur hah verið
mjog baldinn og erfiöur uriglingur.
Group Holding og er Finnur jafn-
ffarnt stjórnarformaður Langflugs
ehf. Fyrir nokkrum dögum samþykktí
FL Group að selja rúmlega 22% eign-
arhlut sinn í Straumi-Burðarási til
hóps fjárfesta, undir forystu Finns
Ingólfssonar, og bankans sjálfs svo
Finnur hefur í nógu að snúast.
Besti pabbi í heimi
Þeir sem þekkja til Finns eru sam-
mála um að þrátt fýrir annir sé hann
mikill fjölskyldumaður. Fanney, elsta
dóttir hans, tekur undir þetta. „Hann
er mjög góður pabbi og er að verða
afi í fýrsta skiptið og ég held að hann
sé frekar spennmr yfir því," segir hún
og bætir við að Finnur geri allt fyrir
börnin sín. „Pabbi skemmtír sér best
þegar mikið er að gerast og hann
er tíl dæmis núna að bjarga hest-
um á Skeiðum úr Hvítárflóðinu og
skemmtir sér þar konunglega."
Aðspurð segir Fanney pabba sinn
vera mikinn fj ölskyldumann, sérstak-
lega núna í seinni tíð. „Eftír að hann
hættí í pólitík gafst honum meiri tími
fýrir fjölskylduna. Hann, mamma og
litla systir mín eru til dæmis mik-
ið saman í hestunum. Ég er búin að
fara á reiðnámskeið og ætla að fara á
fullt skrið með þeim þegar ég er búin
að eiga."
Fanney segir pabba sinn húmor-
ista og stríðnispúka. „Hann er hress
og kátur og það er aldrei leiðinlegt í
kringum hann. Honum flnnst gam-
an að gera grín og stríða og getur líka
tekið stríðni enda gerum við óspart
grín að honum. Hann getur nefni-
lega verið svolítið utan við sig enda
oft með margt um að hugsa og í um-
ferðinni keyrir hann kannski yflr á
rauðu en stoppar á grænu ljósi," segir
Fanney hlæjandi. Yngri dóttir Finns,
Hulda, staðhæfir að Finnur sé ein-
faldlega besti pabbi í heimi. „Hann
er allavega með þeim betri," tekur
eldri systir hennar undir.
Tillitssamur og hjálpsamur
Þrátt fyrir að eyða miklum tíma í
vinnunni gefur Finnur sér tíma fyr-
ir fjölskylduna og áhugamálin en
hestamennska og gönguferðir eru
aðaláhugamál hans. Nánast allur
hans tími fer í hestana en Finnur fer
allavega í eina til tvær góðar göngu-
ferðir á ári. Þeir sem farið hafa í
hestaferðir með Finni segja að til-
litssamari og hjálpsamari maður
flnnist ekki. Aldrei trani hann sér
ffarn og sé ávallt tílbúinn að hjálpa
og aðstoða aðra. Samkvæmt ein-
um samferðamanni var Finnur
eitt sinn spurður af hverju hann
stundaði ekki golf. Finnur svar-
aði að þá yrði hann að hætta
að vinna, það væri einfaldlega
ekki hægt að stunda hesta-
mennskuna samhliða golfinu.
Þegar Eggert Skúlason er
inntur eftir skemmtilegri
sögu af Finni nefnir hann
að Finnur hafi mikið stund-
að það sem kallað hafl ver-
ið að „draga í". „Mörg hús-
anna í Vfldnni voru klædd
bárujámi og Finnur dró
kork eða einangrunarplast
eftír vír sem festur var í hús-
in og breytti þeim þannig í
hljóðfæri. Þetta olli gífur-
legum hávaða innandyra
svo fólk spýttist út skelfingu
lostið honum til skemmt-
unar," segir Eggert um
frænda sinn en bætir við
að hann hafl róast mikið
með árunum þótt stríðn-
in sé enn til staðar. „Hann
er afar duglegur maður
og sumum fannst hann of dugleg-
ur í pólitíkinni. Fólk er vant að hafa
mikið af aumingjum á þingi og
er ekki tilbúið fyrir alvöru-
menn," segir hann.
Kominn í hóp
ríkra
manna
Hér er
aðeins stikl-
að á stóru
á viðburða-
ríkri ævi
Finns Ing-
ólfssonar og
fullvíst er að
margt er enn
óritað. Stefna
Finns er upp
á við og það
verður spenn-
andi að fýlgj-
ast með einum
af umdeildustu
mönnum lands-
ins í framtíðinni,
manni sem er hetja
í augum margra en
þyrnir í augum ann-
arra. Samkvæmt vinum
og samferðamönnum
hans finnst varla duglegri
maður á landinu og hefur
Finni tekist með þessum dugn-
aði sínum að komast í hóp
ríkra manna.
indiana@dv.is