Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2006, Blaðsíða 30
50 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006
Helgin DV
Ef þú vilt virkilega særa einhvern um hátíðarnar, þá hringirðu í aðdáanda Cliffs Richard og spyrð hvort hann
ætli virkilega að fara að eyða peningum í að hlusta á ellilífeyrisþega. Þegar Anna Kristine hafði fengið nokkrar
slíkar spurningar hringdi hún í þann sem er kallaður „hinn íslenski Cliff Richard“ og bað hann að hitta sig.
Garðar hefur alltaf hrifist af ómfagri
rödd Cliffs „Ég náði honum mjög vel hér
áður fyrr. Nú er röddin orðin þroskuð svo
ég næ honum ekki lengur," segir Garðar.
Æðsti draumur að búa til veggfóður
úrmyndum afsérog Cliff Richard
Garðar Guðmundsson þekkja margir úr versluninni Litaveri, enn
fleiri þekkja hann kannski sem söngvara og hljóðfæraleikara í
áratugi. Garðar hóf ferilinn árið 1957 og söng fyrsta lagið með
Cliff árið 1958. Hann var að koma af tónleikum með Cliff í Dublin,
þeim fjórðu sem hann sækir á fimm árum.
„Cliff hefur aldrei verið betri!"
segir Garðar og bætir við að hann
hafl fengið gæsahúð frá fyrsta tóni.
„Hann er eins og maður um flmm-
Cliff Richard í Dublin Garðar fór á sina
fjórðu tónleika með CliffRichard á dögunum.
Hann segir hann aldrei hafa verið betri en
einmitt þá og bíður spenntur eftir að sjá
hann I Höllinni þann 28. mars næstkomandi.
DV-Mynd: ÁgústÁrnason
tugt og það er ótrúlegt að hann skuli
vera orðinn 66 ára."
Og Garðar œtti að vita hver syng-
ur vel og hver ekki. Sjálfur steig hann
jyrst á svið í Silfurtunglinu árið 1957,
þá fimmtán ára með hljómsveit Aage
Lorenz.
„Cliff var ekki mættur á svæðið
þá," útskýrir hann. „Ég var mikill að-
dáandi Tommys Steel, fór níu sinn-
um á myndina hans í Austurbæjar-
bíói og náði öllum töktunum. Þá var
ég kallaður Tommy Steel - en þá kom
þessi," segir hann og bendir á ljós-
mynd af Cliff Richard, sem tengda-
sonur hans, Ágúst Árnason tók á
tónleikunum um helgina. „Ég spil-
aði meðal annars með hljómsveit-
inni Tónum og við sérhæfðum okk-
ur í lögum með Cliff Richard og The
Shadows; tókum alveg fyrir lög eins
og Lucky Lips, Please, don't teach
og öll þessi frábæru. Ég hef verið að-
dáandi Cliffs frá fyrstu stundu. Ég
heillaðist af þessari mildu og fallegu
rödd, sem hefur ekkert breyst," seg-
ir Garðar, sem hefur samanburð síð-
ustu fimmtíu ára og sérstaklega síð-
ustu fimm:
„Já, ég fór á tónleika með honum í
Royal Albert Hall árið 2001, ári síðar
á Docklands Arena í London, í Edin-
borgarkastaia fyrir tveimur árum og
nú í Dublin. Ég bíð bara eftir að sjá
hann í Laugardalshöll!"
Lítur hann vel út?
„Já, hann er bara eins og hvolp-
ur!“ segir Garðar hlæjandi. „Hann
hefur ekki farið í strekídngar heldur
bara iifað reglusömu lífi."
En þú ert bara búinn að nefna
hröð lög með Cliff. Ertu að segja mér
að þú hafir ekki haldið upp á lagið
The Next time???
„Next time?! Ég er nú aldeilis
hræddur um það! Og ég elskaði lagið
When the girl in your arms..."
„Is the girl of your dreams" syngj-
um við saman og slökkvum á upp-
tökutækinu.
annakristine@dv.is
Ég heyri ómfagrar raddir berast úr
fundarherberginu og get ekki hamið
mína forvitni. Inni sitja lærimeist-
ari minn Anna Kristine og Garðar
Guðmundsson. Eða ætti ég að kalla
hann Cliff íslands? Ég sé að viðtalinu
er lokið og gerist svo djörf að opna
rennanlegu glerhurðina. Ég er vel-
komin, ég sé það en þau halda samt
áfram að tala um hvað þau hlakka
mikið til að berja goðið sitt augum
þann 28. mars næstkomandi. Þau
láta eins og smákrakkar. Mér finnst
þau fyndin. Ég laumast til þess að
kveikja á upptökutækinu.
„Ég hefverið aðdá-
andi Cliffs frá fyrstu
stundu. Ég heillaðistaf
þessari mildu og fal-
legu rödd, sem hefur
ekkert breyst."
Kristinn Cliff lýgur ekki
„Garðar! Guð minn góður. Var
þetta tekið núna? Fyrir viku síðan?"
segir Anna Kristine og lítur á eina af
fjölmörgum myndum sem tengda-
sonur Garðars tók á tónleikunum í
Dublin. Garðar játar því.
„En Garðar? Er hann ekki 'gay?"
spyr Anna einlæg.
„Ég veit það ekki. Maður hefur
auðvitað oft heyrt það en það hefur
aldrei komið opinberlega fram."
„Hann er ógeðslega flottur," segir
Anna dreymin.
Garðar gengur enn lengra og seg-
ir: „Hann er bara ótrúlega faliegur,
maðurinn."
„Hefur hann ekki farið í andlits-
lyftingu?"
„Nei, hann sagði það í sjónvarps-
viðtali fyrir ekki svo löngu," svarar
Garðar sposkur á svip.
„Trúum við honum ekki?"
„Jú,“ svarar Garðar. „Cliff lýgur
ekki, hann er kristinn maður."
Cliff Richard og Olivia Newton-John
Sú saga gekk lengi vel að þau CliffRichard og
Olivia Newton-John hygðust pússa sig
saman. Árið 1974 neitaði Cliffþví opinber-
iega. Cliffhefur verið piparsveinn alla tíð og
halda margirþví fram að hann sé samkyn-
hneigður.
Karlarog kerlingarfá gæsahúð
Anna spyr Garðar hvaða lög hafi
staðið upp úr. „Þau voru auðvitað
mörg. En ætli ég hafi ekki fengið mestu
gæsahúðina þegar hann tók When the
girlinyourarms"
„O, það er svo flott," segir Anna og
þau byrja aftur að syngja saman brot
úr laginu.
„Hann hefur ekki tekið það á nein-
um af þeim tónleikum sem ég hef séð
með honum. Og ég skal segja þér það