Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1958, Blaðsíða 5

Freyr - 01.03.1958, Blaðsíða 5
FREYR 89 þar hafi fallið gott efni. Hryssurnar tvær eru Brynja Sigfúsar í Vallaneshjáleigu og Gletta, Birnu Benidiktsdóttur, Beinárgerði. Skemmtilegra hefði verið, ef þessar hryss- ur hefðu verið orðnar nokkuð tamdar, því að flestar höfðu þær aldur til þess. Að lokinni dómslýsingu kynbótahrossa lýsti Þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri dómum í góðhestakeppni og afhenti fyrir 3 beztu gæðingana verðlaun og skrautrituð skjöl. Verðlaun voru 500, 300 og 200 kr. Alls voru sýnd 18 hross á góðhestasýning- unni. Bezti góðhesturinn var dæmdur Ljóns- löpp, sú er var nr. 3 í röð tamdra hryssna af kynbótahryssunum. Annar beztur var Rauður Friðriks á Þor- valdsstöðum og þriðji Sprækur Ingimars- son Egilsstöðum. Þessu næst kynnti form. „Freyfaxa“ úrslit kappreiðanna, er fram fóru kvöldið áður og verðlaun fyrir 3 fljótustu hestana. Úrslit urðu: 1. Jörp Jóh. Magnússonar, Breiðavaði hljóp á 24.9 sek. 2. Rauður Ármanns Guðm., Gilsárteigi hljóp á 24.9 sek. 3. Blesa Ólafs Jónssonar, Urriðavatni hljóp á 25.5 sek. 4. Roði Jóns Jóhannessonar, Möðrudal hljóp á 25.9 sek. Jörp var sjónarmun á undan nr. 2. Jörp hafði áður í undanrásum hlaupið 300 m. á 23.9 sek. Kappreiðadómnefnd skipuðu: Ari Björns- son Egilsst.kauptúni, Einar Einarsson, Ormarstöðum og Guttormur Þormar Geita- gerði. Að þessu loknu sleit form. „Freyfaxa“, Pétur Jónsson, mótinu. — ★ — Efst: Lýsingur frá Voðmúlastöðum. Eign Hestamannafél. Freyfaxa I miðið: Stjarna, bezt af kynbótahryssum. Eign Einars Jónssonar, Mýrum. Neðst: Ljónslöpp Þórdísar Bergsdóttur. Ketilsstöð- um, fyrst í gœðingakeppni og þriðja bezta stóðhryssan- Ljósm. Kristinn Jónsson, Selfossi

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.