Freyr - 01.03.1958, Qupperneq 18
102
FREYR
Spurningar og svör
Sp. 2:
I sumum fjósum er kúm raðað eftir fóðurflokkum.
Er þá skaðlaust að flytja kýrnar milli bása, þegar þær
færast á milli fóðurflokka, vegna vanafestu þeirra?
B. S.
Svar:
Ef jata er sameiginleg, er sjálfsagt að flytja kýr til
eftir fóðurflokkum, og hafa þá órólegar kýr á enda.
Sp. 3:
Er ekki hægt að fá mjólkurkæla, sem frysta vatnið í
kæliþróm?
Þar sem vatnsból vilja þrjóta væri mikið atriði að
geía fengið slíka kæla og mundu þeir spara geysilegt
vatnsmagn á hverju ári.
Auk þess væri þá alltaf hægt að kæla mjólkina þó að
vatnsból þrytu. G. G.
Svar:
Til þessa mundi kælir ekki nægja heldur þarf til þess
áburðarupplausnar hefir rutt sér allmikið
til rúms í Bandaríkjunum. Flutningar
áburðarefna fer þar fram að miklu leyti
með járnbrautum, og um margra ára skeið
hafa áburðarefni, einkum köfnunarefnis-
sambönd, verið flutt í sterkum vatnsupp-
lausnum á langleiðum, enda þótt þessi efni
hafi ekki verið borin á í upplausn. Ástæð-
an en sú, að það er í mörgum tilfellum
ódýrara að flytja áburðarefnin á þennan
hátt. Vegakerfi Bandaríkjanna er yfirleitt
ágætt, akrar og ræktunarlönd oft í stór-
um samfelldum skákum og skilyrði til notk-
unar stórvirkra tækja hagstæð. Þessar að-
stæður, sem ekki eru fyrir hendi hér á
landi, hafa lagt hinn hagfræðilega grund-
völl að notkun áburðaupplausna í Banda-
ríkjunum. Með bættu vegakerfi og aukinni
ræktun er hugsanlegt, að innan tíðar verði
einnig hagkvæmt að bera á áburðarupp-
lausnir hér á landi í þeim landbúnaðarhér-
uðum, sem bezt liggja við.
frystivélar. Að sjálfsögðu eru þær fáanlegar en stofn-
kostnaður og rekstur þeirra er bara það mikill, að aðr-
ar Ieiðir eru fremur farnar til þess að kæla mjólk.
Heimilisfrysti má náttúrlega nota til þess að kæla mjólk
ef aðstaða og umbúnaður er þannig, að kleift þyki.
Spurning 4:
Nýlega Iétu hjá mér tvær kýr dauðum kálfum. Hverj-
ar eru venjulegustu orsakir kálfaláts? Eg var nýlega bú-
inn að skipta um vothey, byrjaði á nýrri gryfju, í henni
hitnaði efst, þegar tekið var ofan af henni, en þó varast
að gefa heyið meðan hiti var í því. Getur þessu verið
um að kenna. — B. ].
Svar:
Smitandi kálfalát hefur eigi verið staðfest hér á landi
svo vitað sé. Smitandi lambalát er hins vegar ekki óal-
gengt c-g m. a. hafa listeriasýklar og vibrio foetus sýklar
verið staðfestir sem orsök að lambaláti. Ekki er með
öllu ólíklegt, að þessir sýklar kunni að geta slæðzt í
nautgripi og valdið þar kálfaláti, þó að eigi hafi það
verið staðfest.
Vel getur fóðurbreyting og vothey, sem hitnað hefur í,
eins og um ræðir í þessu tilfelli, verið orsök fósturláts.
Annars verður ekkert um það fullyrt af þeim takmörk-
uðu upplýsingum, er fyrir hendi eru. — P. A. P.
Spurning 5:
Stundum hefur komið fyrir að kýr hafa fengið dálít-
inn kláða á mölum, og hárið þar jafnvel dottið af aftur
á halarótina. Með hverju á að lækna þetta? — B. J.
Svar:
Við kláða og hárlosi á mölum á kúm hefur oft reynzt
vel að nota brennisteinssmyrsli, t. d. Linimentum sulfur-
atum compositum ( Disp. Vet.) — P. A. P.
Björn Jóhannesson.