Freyr - 01.03.1958, Qupperneq 21
FREYR
105
Og svo matseld alla daga handa heimilis-
fólkinu og oft handa gestum, en húshjálp
til aðstogar bara einn dag í viku.
— Auðvitað er nóg að gera og ekki þýðir
að slæpast, en ég fæ mína frítíma í friði þeg
ar dagsstarfi er lokið um kl. 7—8 á kvöldin.
Á miðvikudögum hef ég frí seinnipart dags-
ins, frídag annanhvern sunnudag og laug-
ardagfrí einu sinni í mánuði frá kl. 14.
En þetta, að fá sitt ákveðna frí er svo
mikils virði, því að þá getur maður áætlað
til hvers skuli nota þann tíma. Ég hef líka
prófað hvað það er að þurfa að sitja hjá
börnum 5 kvöld í viku. Það treystir ekki
tengsl ungra stúlkna við starfið.
Ég baka í laugardögum. Það þykir mér
skemmtilegt starf. Maður lærir langmest á
því að fá að vinna sjálfstætt og vita sig
sjálfa ábyrga fyrir starfinu og árangri þess.
Það er spennandi að finna sjálf lausn á
hverju hlutverki. Mamma hefur kennt mér
að skreyta tertur og annað brauð og svo
hef ég lært sitthvað af því tagi í 4—H starf-
inu.
— ★ —
En Inga kann og getur ennþá fleira. Her-
bergi hennar er snyrtilegt og mjög vel hirt.
Ekki er annað hægt en dázt að blómunum í
glugganum og annars staðar í herberginu.
— Ég hef nú ræktað þau sjálf, það hef ég
lært af mömmu, segir Inga.
— Og þú hefur saumavél. Átt þú hana?
Fína nýja rafknúna saumavél?
— Já, ég varð nú að neita mér um sitt
af hverju til þess að geta keypt hana, og
þó keypti ég með afborgunum, en nú sauma
ég í frítímum öll mín föt og dálítið fyrir
aðra svo vélin borgast bráðum.
— En ekki hefur þú þó saumað sjálf
dragtina og önnur föt þarna í skápnum?
— Jú, víst hef ég gert það, hún kostaði
mig ekki nema 90 krónur með fóðri, skinn-
hnöppum og öllu saman. Ég var einu sinni
á sniðnámskeiði í 3 vikur og hef mikið
gagn af því, þæði þegar ég sauma á sjálfa
mig og aðra og það er gaman að geta það.
Ég gæti eiginlega hugsað mér að vera
kennslukona í matreiðslu, saumum og sníð-
um.
Menn og málefni
Frá og með 1. september 1957 er Einar Þor-
steinsson frá Nikhól í Mýrdal ráðinn í þjón-
ustu Búnað-
arsambands
Suðurlands
sem ráðu-
nautur þess.
Einar hefur
stundað nám
við Sam-
vinnuskól-
ann, var svo
einn vetur
við búfræði-
nám á
Hvanneyri,
síðan um árs
skeið á Tune
Einar Þorsteinsson. búrfaðarskól'a
í Danmörku
til undirbúnings fyrir nám í búnaðarháskóla og
lauk kandídatsprófi í þeim fræðum við Búnað-
arháskólann í Kaupmannahöfn vorið 1956. Að
prófi loknu vann hann við tilraunastöðina
Ödum í Danmörku og við Atvinnudeild Há-
skólans hér sem aðstoðarmaður. Heimili hef-
ur hann að Sólheimum í Mýrdal.
Við horfum út um gluggann á herbergi
Ingu. Við augum okkar blasir garðurinn.
— Ég hef nú líka ánægju að vinna í hon-
um, segir Inga. Heima hef ég ævinlega ver-
ið með í öllu úti og inni og hér hef ég
skroppið út að taka upp kartöflur og sækja
annað í matinn. Ég plægi nú ekki hérna,
það gerði ég heima-------og þótti það alltaf
skemmtilegt-------þegar hestar drógu plóg-
inn.
— Þú ert lífsglöð ung stúlka?
— Já auðvitað, því ætti ég ekki að vera
það þegar manni þykir vænt um sitt starf
og allt annað.
(Endursagt)