Freyr - 01.05.1960, Page 9
FREYR
161
orðið meiri, þ. e. árið 1955, er fluttar voru
inn 728 slíkar vélar, en það voru yfirleitt
talsvert minni gerðir. Fimmta tafla sýnir
innflutninginn árið 1958 en tölurnar um
heildarbúvélaeign bænda eru ekki ná-
kvæmar, þar sem engin könnun hefur ver-
ið á henni gerð síðan árið 1947, en aðeins
verið hægt að áætla lauslega, hve mikið
hefur verið tekið úr notkun árlega af hin-
um ýmsu vélum. Árið 1958 voru fluttir inn
103 rússneskir jeppar í þágu landbúnaðar-
ins, en 200 árið áður. Alls er áætlað, að
fjárfesting í vélbúnaði landbúnaðarins ár-
ið 1958 hafi numið 62 millj. kr., er skiptist
þannig: Landbúnaðarvélar og tæki um
20 millj. kr., dráttarvélar um 36 millj. kr
og jeppabifreiðar um 6 millj. kr. Þetta er
rúmlega 50% aukning frá árinu áður, en
sú aukning stafar mest af hækkuðum
gjöldum á erlendum gjaldeyri, er lögð voru
á með efnahagsráðstöfunum í maí 1958.
4. TAFLA.
Búvélaeign landsmanna.
í árslok Innfl.
Vélknuin tœki: 1957 1958 Samtals
Beltadráttarvélar 286 286
Hjóladráttarvélar 4.335 509 4.844
Garðdráttavélar 152 2 154
Skurðgröfur 50 2 52
í árslok Innfl.
Verkfœri við dráttarvélar: 1957 1958 Samtals
Plógar 1.211 16 1.227
Herfi 744 2 746
Plógherfi 58 1 59
Sláttuvélar 4.111 438 4.549
Jeppasláttuvélar 140 140
Vagnsláttuvélar 20 20
Snúningsvélar 872 872
Rakstrarvélar 115 36 151
Múgavélar 1.524 587 2.111
Heyhleðsluvélar 170 15 185
Mykjudreifarar 354 14 368
Áburðardreifarar 725 18 743
Kartöflusetjarar 40 17 57
Kartöfluupptökuvélar 77 6 83
Jarðvegstætarar 112 49 161
Ávinnsluherfi 249 249
Ámoksturstæki 406 182 588
Heygreipar 50 78 128
í árslok Innfl.
Hestaverkfœri: 1957 1958 Samtals
Plógar 1.146 1.146
Herfi . 1.488 1.488
Áburðardreifarar . 1.307 1.307
Rakstrarvélar . 3.916 38 3.954
Snúningsvélar . 1.819 1.819
Múgavélar 496 496
í árslok Innfl.
Onnur tœki: 1957 1958 Samtals
Kartöfluflokkunarvélar . 125 125
Úðarar 717 717
Duftdreifarar 552 552
Mjaltavélar 908 103 1.011
Saxblásarar 77 77
Heyblásarar 161 43 204
Bústofn.
Á 5. töflu er sýnd tala búfjár síðustu fimm
ár. Sauðfénu hefur fjölgað um 5 þús. á ár-
inu, og er það allmiklu minni aukning en
á undanförnum árum. Nautgripunum fækk-
aði nokkuð á árinu eða um 1100, en kúa-
fjöldinn minnkaði um 2 þús. og voru kýr
taldar vera rúmlega 31 þús. í árslok. Hross-
um hélt áfram að fækka og nam fækkunin
rúmlega þúsund hrossum.
5. TAFLA.
Bústofn samkvœmt búnaðarskýrslum
i árslok 1954—1958.
Sauðfé Nautgripir Hross
1954 635.080 47.328 37.180
1955 ............... 657.294 45.499 35.172
1956 706.291 47.509 33.928
1957 ............... 769.777 49.036 33.055
1958 .............. (775.000) (48.000) (31.000)
Ath. Svigatölurnar eru að nokkru áætlaðar.
BYGGINGAR.
íbúðabyggingar í sveitum urðu tals-vert
minni en árið áður. Til byggingar útihúsa
í sveitum er áætlað, að varið hafi verið
108,3 millj. kr. eða 6,7 millj. kr. meira en
árið áður. Byggð voru fjós yfir 2.292 kýr,
fjárhús yfir 38 þús. fjár, hlöður að rúmmáli
170 þús. teningsmetrar og önnur útihús að
rúmmáli 68 þús. teningsmetrar.