Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1960, Side 22

Freyr - 01.05.1960, Side 22
174 FREYR ingarnir með 14.76 kg meðalfalli. Afurðir eftir framgengna á voru 19.07 kg kjöt, 3,27 kg gæra og 1.24 kg netjumör. Lömbin undan Mávahlíðaránum voru mörg í fitunartil- raunum og lögðu sig því meira en þau hefðu ella gert. Slátrað var 13 ám, 12 mylkum og 1 geldri af þessum stofni. Þær mylku lögðu sig að jafnaði með 20.0 kg falli, 3,5 kg gæru og 1.5 netjumör, en sú gelda með 31.0 kg falli, 4.3 kg gæru og 3.7 kg netju. II. Selt og keypt fé til ásetnings. Haustið 1959 voru seld 38 lömb frá Hests- búinu, 9 hrútar og 29 gimbrar, og 2 hrútar veturgamlir. Hins vegar keypti búið 2 hrúta fullorðna, 8 ær og 3 gimbrariömb haustið 1959, auk þeirra 9 áa af Mávahlíðarstofni, sem keyptar voru í ársbyrjun og áður er get- ið. III. Taia f jár sett á vetur á Hesti haustið 1959. Settar voru á vetur 597 kindur, 484 ær, 428 af heimastofni og 56 frá Mávahlíð, 13 hrútar fullorðnir, 95 gimbrarlömb og 5 lamb hrútar. Lífgimbrarnar vógu til jafnaðar 37.89 kg. Af þeim voru 50 valdar ásetnings- gimbrar og vógu þær 40.72 kg að meðaltali, en 45 óvaldar í afkvæmarannsókn þ. e. all- ar gimbrar undan 4 hrútum og fyrirfram tilteknum án, og vógu þær til jafnaðar 34.74 kg. Frá sláturtíð til áramóta fórust 3 kindur, 1 lambhrútur og 2 ær. Voru því lifandi 1. janúar 1960 594 kindur. IV. Vanhöld. Vanhöld á fénu á Hesti á árinu 1959 urðu sem hér segir: Af 595 kindum fórust 12 eða 2.02%, voru það 11 ær og 1 gimbur veturgömul. Alls fæddust á Hesti 690 lömb vorið 1959 Af þeim fæddust dauð og drápust fyrir rún- ingu 24, og 13 vantaði af fjalli og eitt ásetn- ingslamb fórst fyrir áramót, eða alls 38 lömb, þ. e. 5.51% af fæddum lömbum. Reykjavík í des. 1959. JÓN H. ÞORBERGSSON: Um afurðir sauðfjár Fyrir rúmum 40 árum þekkti ég, í Reykja- vík, roskinn mann, sem gerði sér að atvinnu að kaupa sauði að haustinu og reykja af þeim kjötið til sölu. Hann sagði mér, að kjöt af sauðunum úr Landeyjum rýrnaði tii mik- illa muna meira við reykingu, en af sauðum úr Þingvallasveit. Þetta stafaði, skiljanlega, af ólíku gróðurfari, þar sem sauðirnir gengu á votlendi í Landeyjum en þurrlendi í Þingvallasveit. Sá var og annar munur á kjötinu af þessum sauðum, að kjötið af þeim úr Þingvallasveit var bragðmeira og bragðbetra Skepnan mótast eftir jurtateg- undum þeim, sem hún nærist á. Ef fé étur mikla hvönn, kemur hvannarbragð að kjöt- inu. Gemlingar í eldi vaxa meira. af stór- gerðu áveituheyi en af smágerðu vallheyi, en þá verður vefurinn í skrokknum á þeim þéttari. Þegar ég var fjárhirðir í fjallabyggðum Skotlands og við vorum að reka af stað dilk- ana á markaðinn, var einn þeirra með bækl- aðan fót, og gat ekki rekist með. Bóndinn ráðgerði að skjóta lambið og grafa, því að enginn á bænum kunni að gera til kind. Ég bauðst þá til þess og varð það úr. Aldrei kvaðst fólkið, þarna á bænum, hafa bragð- að jafngott kjöt og taldi það mjög ólíkt kjöti af þessum dilkum, sem það fengi í borgunum. En sá háttur var hafður á, að bændur í lágsveitunum keyptu dilkana, er þeir komu af heiðunum, fituðu þá á tún- um og þó einkum á gulrófum og seldu síðan sláturhúsum og kjötkaupmönnum. En við fitunina tapaði kjötið hinu góða hagabragði. Hér fer á sömu leið ef farið verður að fita dilka á fóðurkáli. Hagabragðið hverfur og kjötið verður eyðilagt, sem eftirspurð fyrsta flokks vara. Auk þess verður viðbót- in sem dilkarnir fá við fitunina, aðallega mörkennd fita, sem enginn étur, nema í neyð, sem vonandi er að ekki komi. Þetta

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.