Freyr - 01.05.1960, Qupperneq 19
FREYR
171
Febrúar 28 1002 209 26 0.562 15.74
Marz 31 883 569 47 0.560 17.36
Apríl 30 1075 831 80 0.719 21.57
Maí 23 857 577 135 0.640 14.72
Alls pr. 172 102.07FE
Tafla 2 sýnir aðeins meðalfóðureyðslu
handa á, en mikill hluti ánna var í fóð-
urfiilraunum og var því einstökum ær-
hópum gefið misjafnlega mikið þ. e. sumir
hópar aldir meira en aðrir. Skýrt verður frá
niðurstöðum þessara fóðurtilrauna á öðr-
um stað.
Heildarfóðureyðsla handa á varð því
102,07 fóðureiningar eða 5.80 F.E. minni en
veturinn áður. Fóðureyðslan handa á skipt-
ist þannig í fóðurtegundir. Taða þurr
163.2 kg eða 83.69 F. E., votheystaða 61 7
kg eða 6.27 FE. og 11.50 kg kjarnfóður eða
12.11 F.E.
Við mat á fóðrinu í fóðureiningar var far-
ið eftir efnagreiningum á sýnishornum af
fóðrinu. í 1 fóðureiningu þurfti 1.95 kg af
þurri töðu 9.84 kg af votheystöðu, 1.00 kg
af fóðurblöndu, 0.91 kg af hvalmjöli og
karfamjöli og 0.74 kg af sildarmjöli.
Afurðir ánna.
í fardögum voru lifandi 430 ær af
heimastofni. Þær báru alls 583 Iömbum
Algeldar voru 11 ær, 260 voru ein’embdar
157 tvílembdar og 3 þrílembdar Fæddust
því 135,6 lömb undan hverjum 100 ám, sem
lifandi voru í fardögum, og er það þvínær
alveg sama frjósemi og árið áður.
Af lömbunum fórust 19 fyrir rúningu eða
3.1%, 1 þrílembingur, 5 tvílembingar og 13
einlembingar. f þessari tölu eru ö’l lömb,
sem fæddust dauð. 4 lömb 1 þrílembingur
og 3 tvílembingar voru vanin undir ær, sem
misstu. Um rúningu fylgdu 429 ám 564 lömb.
Þá voru 20 ær lamblausar, 255 einlembdar,
153 tvilembdar og 1 þrílembd. Ein ær fórst
frá fardögum til rúnings. Níu lömb vant-
aði af fialli eða fórust óvegin að hausti, þar
með talin 2 lömb, sem s’átrað var vegna
slysa í júlí. Komu því til nytja að hausti
555 lömb undan heimaánum. Vænleiki lamb
anna á fæti 1. okt. var sem hér segir:
Að meðaltali vógu
2 þrílembingshrútar 34.75 kg
1 þrílembingsgimbur 35.00 —
157 tvílembingshrútar 37 37 —
143 tvílembingsgimbrar 33.97 —
133 einlembingshrútar 44.63 —
119 einlembingsgimbrar 39.72 —
Veginn meðalþungi allra lambanna á
fæti, 555 að tölu, var 38,72 kg. Þungi lamba
eftir á, sem lifandi var í fardögum, 430
að tölu, var því 49,98 kg, en 52.94 kg eftir
hverja á, sem skilaði lambi í sláturtíð. Með-
a’þungi lamba á fæti eftir þrílembuna var
104.5 kg, eftir hverja tvílembu 7150 kg
og eftir hverja einlembu 42.31 kg Sett
voru á vetur og se’d 135 lömb, 14 hrútar og
121 gimbur. Líflömbin vógu á fæti sem
hér segir:
2 tvílembingshrútar 39.75 kg
12 einlembingshrútar 49.21 —
58 tvílembingsgimbrar 34.76 —
63 einlembingsgimbrar 40.95 —
Slátrað var 420 lömbum. Þau vógu að
meða’tali á fæti 38.63 kg. Þau lövðu sig
til jafnaðar með 15.74 kg falli, 3.11 kg.
gæru og 0.98 kg. netjumör en nýrmör var
veginn með kjötinu.
Kjöthlutfall sláturlamba (kjötprósenta)
var sem hér segir:
Þrílembingsgimbrar 4711%
Tvílembingshrúta 39.47%
Tvílembingsgimbra 40.41%
Einlembingshrúta 41.27%
Einlembine-sgimbra 43.39%
Meðalfallþungi allra lamba er reiknað-
ur út þannig. að kjöthlutfall líflamba
hverrar tegundar er áæt’að það sama og
sláturlamba sömu tegundar undan sama
hrút, þegar slátrað er meira en helmingi
lambanna. en þegar siátrað er færra en
helmingi lamba einhverrar tegundar, t. d.
einlembingsgimbra, þá er kjöthlutfall
þeirra áæt’að 1.50% hærra en einlemb-
ingshrúta undan sama hrút. Þetta er var-
lega áætlað, því að holdmestu lömbin eru
yfirleitt látin lifa. en þau hafa hærra kjöt-
hlutfall en þau holdrýrari, sem er slátrað.
Reiknaður meðalfallþungi ’ambanna
var sem hér segir: Tölur innan sviga sýna
meðalfallþunga lambanna 1958.
2 þrílembingshrúta 14.55 kg
lþrílembinsgimbrar 16.55 —