Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1960, Side 21

Freyr - 01.05.1960, Side 21
FRE YR 173 til jafnaðar en afkvæmarannsóknalömbin, enda voru þau síðarnefndu óvalin, þ. e allar gimbrar undan ákveðnum hrútum voru látnar lifa. Lömbin voru öll fóðruð sam- an. Um vorið vógu völdu gemlingarnir 2.7 kg meira en þeir óvö’.du, en sýnir, að þeir síðarnefndu þyngdust 2.3 kg meira yfir vet- urinn en þeir fyrrnefndu. Mun sá mis- munur á framför orsakast af því, að í af- kvæmarannsóknalömbunum voru nokkur lömb lítt þroskuð um haustið, rýrir tví- lembingar og lömb ung í aldri. Tafla 4 sýnir meðalfóðureyðslu handa lambi á dag hvern mánuð allt fóðurtíma- bilið: Tafla 4. Meðalfóðureyðsla handa lambi. Fjöldi Taða Kjarnafóð- F.E. Mánuður: fóðurd. gádag ur g á dag á dag Nóvember 26 946 0.493 Desember 31 995 37 0.555 Janúar 31 1111 66 0.645 Febrúar 28 1200 76 0.701 Marz 31 1250 85 0.736 Apríl 30 1083 130 0.694 Maí 23 707* 66* 0.434* *Þetta er meðalfóðureyðsla á dag í maí, en lembdu og bornu gemlingarnir fengu meira, eftir að þeim geldu var sleppt. Heildarfóðureyðsla á lamb var að meðal- tali 211 kg taða og 13.9 kg kjarnfóður eða 123.8 F.E., sem er 2 4 F.E. meira en veturinn áður. Nú var reiknað með að þyrfti 1.92 kg af töðu í F.E. samkvæmt efnagreiningu á henni. Afurðir gemlinganna. Af gemlingunum, 69 að tölu, urðu 45 al- geldir, af þeim var 12 ekki haldið, en 24 báru, ailir einlemdir. Tvö unglömb dráp- ust nýfædd, en 22 voru lifandi um rúningu. Tvö lambgimbralömb vantaði á heimtur, en 20 komu til nytja, 9 hrútar og 11 gimbrar. Hrútarnir vógu á fæti 37.83 kg, en gimbr- arnar 32.82 kg að meðaltali. Lambgimbra- lömbunum var öllum slátrað. Meðalfall- þungi hrútanna var 15.92 kg og gimbranna 14.02 kg. Vegin kjötprósenta hrúta var 41.84 kg og gimbra 42.58 kg. Meðalafurðir allra lambgimbralambanna voru 14.88 kg fall, 2.74 kg gæra og 0.79 kg netjumör. Ullin af gemlingunum vó 2.78 kg að meðaltali. Veturgömlu gimbrarnar heimtust allar af fjal’.i og voru settar á. Þær vógu að meðal- tali 59.26 kg, þær geldu 61.11 kg og þær mylku 55.32 kg. Samanburður á töflu 5 og töflu 3 sýnir meðalmismun á völdu gimbrunum og af- kvæmarannsóknagimbrunum haustið 1959. Tafla 5. Meðalþungi veturgamalla gimbra haustið 1959 Teg. gimbra Geldar Mylkar Tala kg Tala kg Valdar 22 63.32 9 59,00 f afkvæmarannsókn 25 59.14 13 52.77 Mism. 4.18 6.23 Afurðir í diikakjöti eftir vetrar- fóðraða á og gemling. Meðalþungi eftir á og gemling, sem skil- aði lambi haustið 1958, 426 að tölu, var 21.31 kg eða 0.48 kg meiri en 1958, og eftir á og gemling, sem var á fóðri og lifandi í fardögum, 499 alls var 18,20 kg eða 0.63 kg minni en 1958. Mávahlíðarærnar. Hestsbúið hafði landsnytjar í Mávahlíð á leigu og hafði þar á fóðri 70 ær, sem eftir voru af ám þeim, sem búið keypti í Máva- hlíð 1957. Mávahlíðarærnar vógu 55.27 kg haustið 1958 og þyngdust til jafnaðar frá hausti til vors 6.67 kg eða 2.58 kg meira en ærnar á Hesti. Ærnar í Mávahlíð lágu við opið um veturinn og notuðu beit mikið, enda er rúmt um svo fáar kindur í Mávahlíðarhögum og haglendi gott. Þeim var gefið mun meira kjarnfóður en ánum á Hesti. Meðalfóðureyðsla handa þessum ám yfir veturinn var 115 kg taða og 15 kg kjarnfóður og af því var 60% eggjahvíturíkt fóður. Ein ærin fórst óborin, 2 voru algeldar, 16 tvílembdar og 51 einlembd. Fæddust því alls 83 lömb eða sem svarar 120 lömb eftir hundrað ær. Þrjú unglömb dóu og tvö vant- aði af fjalli. Til nytja komu 78 lömb, 25 tvílembingar og 53 einlembingar. Einlemb- ingarnir lögðu sig með 17.68 kg og tvílemb-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.