Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1960, Blaðsíða 31

Freyr - 01.05.1960, Blaðsíða 31
FRE YR 183 og við doða, sem skyndilegum krampaköst- um, og sé sjúkdómurinn kominn á hátt stig, er dauðsfallaprósentan mjög há. Mogens Simesen, dýralæknir, sem í Dan- mörku hefur rannsakað sjúkdóminn grandgæfilega, mælir með eftirfarandi reglum: 1. Reynt sé að gera breytinguna frá fóðrun í fjósi til beitarinnar svo jafna, sem mögulegt er. 2. Komast skal hjá því að setja skepn- urnar á beit í köldu, hvössu og vætusömu veðri, eða þar, sem ómögulegt er að kom- ast hjá því, þá að veita þeim möguleika til að komast í skjól. 3. Gefa ber skepnunum daglega inngjöf af magníumsalti, og þá helzt magníum- karbonati eða magníumsýringi. Þessi inngjöf af magníumkarbónati 100 gr. á dag, eða það sem sumir vilja heldur, magníumsýringi, 50 gr. á dag, hefur á slð- ari árum útbreiðzt mikið í mörgum Vestur- Evrópulöndum, (t. d. í Noregi, Englandi, Hollandi). í Hollandi er þannig reiknað með því, að notkunin á magníumsýringi muni spara þjóðinni 2%—3 millj. gyllina á ári. Til þess að fá sem öruggasta vörn, verð- ur þegar að hefja gjöfina á magníumsýr- ingi eða karbónati ca. 10 dögum áður en kýrnar eru látnar út, og ekki hætta henni fyrr en þær hafa verið á beit ca. 4 vikur. Mikilvægt er, að gefa skammtinn á hverjum degi, og ekki minna en tilgreint er. Þegar skepnumar hafa verið á beit í ca. 4 vikur, má minnka skammtinn smátt og smátt, því að komið hefur í ljós, að ef hætt er snögglega, getur það gefið tilefni til nýrra veikinda. Skammtana er bezt að gefa með því að strá þeim á heyfóörið. Blöndun í kraft- fóðrið er ekki eins góð, því að hún leiðir oft til þess, að sumar skepnurnar (kýr með lágri nyt) fá ekkert af því. Með áðurnefndum ráðstöfunum er mögu- legt að færa mjög niður fjölda sjúkdóms- tilfella, þ. e. a. s. að sjúkdómurinn muni alls ekki gera vart við sig á mörgum býl- um. En auðvitað er aldrei hægt að komast að fullu hjá kvillanum. Þar, sem áður hefur verið graseitrun, og þar sem vitað er, að graseitrun getur kom- ið fram, ætti að fara eftir ofangreindum reglum, og þar sem hæfilegur skammtur af magníumsalti í framanskráðum skömmtum kostar aðeins smámuni á skepnu á dag, er það ódýrt öryggi. Á N.J.F.-ráðstefnu þeirri, sem haldin var í Osló á síðasta sumri, benti prófessor Breirem á Ási búfjárræktarmönnum á til- raun, sem verið er að framkvæma varð- andi kvilla þennan, á deild þeirri sem hann stýrir við Búnaðarháskólann. Á beitilandið eru bornir stórir skammtar — og mismunandi skammtar — af kalí- áburði, en vitað er nú, að eitthvert sam- hengi er miili magns kalí og magníum í jarðveginum og jurtunum, sem áhrif hef- ur á nefndan kvilla hjá skepnunum. Tjáði prófessor Breirem, að þar hefði tekizt að orsaka graseitrun með þessu móti, en mörk og magn hinna einstöku efna í jarðvegi og fóðri væri engan vegin ákveðið vitað hver vera skyldu til þess að skapa kvillann eða girða fyrir hann. f fleiri löndum eru þessi mál til meðferð- ar og úrlausnar. Einnig hér á íslandi mun þessa kvilla hafa orðið vart og til eru bændur, sem þegar hafa gert sér þetta ljóst, er þeir hafa orðið fyrir barðinu á honum, og með því að nota magníumsölt getað girt fyrir tjón, er hann getur valdið og hefur valdið. Lyfjaverzlun ríkisins hefur magníumsalt, er getur fyrirbyggt kvillann.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.