Freyr

Årgang

Freyr - 01.05.1960, Side 11

Freyr - 01.05.1960, Side 11
FREYR 163 þau gefa hlutfallslega litla uppskeru við’ slátt og stafar það af því hvað mikið vill verða eftir við rótina. í þessum hópi eru grösin, sem mest ber á í gömlum túnum og högum, eins og vallar- sveifgras, túnvingull og língresi. Þau grös eru líka öll fremur seinsprottin, en geta haldið sprettunni lengi og tréna seint. Beitin. Af þessu má svo draga eftirfarandi á- lyktanir: Það er ekki rétt að beita túnin hart á vetrum. Það er ekki rétt að beita allt túnið holt og bolt vor og haust. Þá hverfa uppskerumestu og beztu slægjugrösin, og jafnframt þau fljótsprottnustu. Með því að hafa ákveðna hluta ræktar- landsins til beitar, og hlífa öðrum við henni að mestu, má fá meiri heildaruppskeru. Á þeim hlutum, sem aldrei eða sjaldan eru beittir, mundu hávöxnu sláttugrösin haldast, og þar mætti eflaust hefja slátt viku til hálfum mánuði fyrr en á túni, sem hefði orðið fyrir vorbeit. Tilraunir á Laugardælum hafa sýnt, að nóg er að ætla 0,4 ha ræktaðs lands á miólkurkú til sumarbeitar, og að hægt er þó að slá helminginn af því landi einu sinni, með beitinni, þegar vel sprettur. í þessum tilraunum kom hka í Ijós, að enginn ávinningur var í því að gefa kúnum kraftfóður með beitinni; það cama hafði líka komið í ljós í tilraunum á Hvanneyri. Ef menn nú taka frá svæði af elztu tún- unum eða ræktuðu beitilandi, sem svarar til 0,4 hektara á hverja kú, nota það eftir þörf- um til vorbeitar fyrir lambfé og handa mjólkurkúnum yfir sumarið og hluta til slægna ef vel sprettur. en hlífa öðrum hlutum túnsins, sérstaklega þeim yngstu, algerlep;a við beit, þá mega þeir vera vissir um að þeir fá meiri heildarafrakstur. En fleira er matur en feitt ket, og við eig- um mikið af öðrum beitarlöndum en rækt- uðum, sem ekki er rétt að vanmeta; ég á bar bæði við afréttarlöndin og heimahaga óræktaða. Það er risin mikil áhugaalda um rann- sóknir á afréttarlöndum, heitarboli þeirra og uppgrœðslu. Þetta er auðvitað eitt okkar stóru mála, er raunar bæði landvarnar- og landhelgismál; enginn getur með réttu helgað sér land nema því aðeins, að hann nýti það, og noti á skynsamlegan hátt. Því ber okkur að fylgjast með hvað líður notk- un eða ofnotkun afréttanna Víða eru líka hafnar athuganir á þessu sviði, bæði á vegum einstaklinga, búnaðar- sambanda og síðast en ekki sízt hjá At- vinnudeild Háskólans, af mönnum, sem mesta sérþekkingu hafa ^þessu sviði. Von- andi verður þeim öllum haldið áfram. En við skulum líta nær okkur. Þó að auka megi vöxt og grózku afréttargrasanna mjög með áburði, er nær fullvíst, að fyrir sama áburðarmagn fæst meiri vaxtarauki í byggð. Og einn liðurinn í því að létta á afrétt- inurh ef ofsetinn er, og jafnframt bæta af- urðir fjárins, er að rækta heimahaga fyrir það haust og vor. Vel þekktar eru tilraunir á Hesti og víðar með fitun sláturlamba á káli og nýrækt, og sá góði árangur, sem þær hafa borið. Beitilandið. Nú hefur geysimikið af mýrlendi verið þurrkað upp á fjölda jarða. Þetta land bíð- ur svo mislengi þangað til að það er tekið til ræktunar. f góðri uppþurrkaðri mýri eru fólgnir miklir fjársjóðir. Athugun var gerð með það á Sámsstöð- um, á árunum milli 1930—’40, hve mikið grasvöxturinn ykist á mýrlendi við upp- þurrkun og gróðurfarsbreytingu sem henni fylgir. Árið sem landið var ræst fram gaf það sem svaraði 5,6 hestburðum af hektara, en 9 árum síðar nákvæmlega 7 sinnum meira, eða 39.2 hestburði og hafði það farið jafnt vaxandi öll árin. Þetta land fékk engan á- burð, en gaf þó meira af sér en meðaltal er fyrir tún á öUu landinu. Á þessum tíma breyttist graslagið algjörlega, úr hálfgrös- um í beztu túnjurtir. Nú eru mýrar sjálfsagt víða steinefna- snauðari en á Sámsstöðum. og þar mundi bessi árangur ekki nást nema með því að bera á þær nokkuð af steinefnum. Tilraunir, sem gerðar hafa verið á Reyk-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.