Freyr - 15.01.1962, Side 36
48
FRE YR
Heiðursfélagar.
A fundi stjórnar Búnaðarfélags íslands fyrir jólin
var ákveðið að velja sem heiðursfélaga Búnaðarfélags-
ins þessa bændur:
Guðjón Jónsson, hónda Ási, Rang.
Guðmund Erlendsson, bónda Núpi, Rang.
Jón H. Fjalldal, fyrrv. bónda Melgraseyri, N.-ís.
Búnaðarþing
árið 1962 á að hefjast þann 24. febrúar. Þetta er síð-
asta Búnaðarþing yfirstandandi kjörtímabils, en kjör
fuiltrúa til næstu fjögurra ára á að fara fram á kom-
andi vori.
Kornuppskera
var á síðasta sumri mjög lítil í Kanada svo að lá við
misæri, en ekki aðeins þar heldur og í Norður-Evrópu
var uppskera í lakara lagi. Bráðabirgðatalning hefur
sýnt, að í 13 Evrópulöndum var uppskera hveitis mun
minni en árið áður, eða 34,87 millj. lesta, en 37,91
millj. árið 1960, en þetta nemur 8% mismun. í Vestur-
Þýzkalandi var uppskeran 20% minni en 1960, í Frakk-
landi urn 12% minni og í öðrum löndum var mismun-
urinn lítill. Aðeins í Ítalíu og Dannrörku var um lítil-
fjörlega aukningu að ræða.
Óvenjuleg kýr.
Landsbladet, málgagn danskra búnaðarfélaga. segir
frá því síðast í nóvember, að óvenjulegri kú hafi verið
slátrað í Svendborg á Fjóni í sumar. Kýr þessi eignaðist
aðeins einn kálf, árið 1958 og engan siðan, en hún
hefur haft langt mjaltaskeið og óvenjulega afurðasælt.
Afurðir hennar, frá því hún bar í nóvember 1958 til
8. júlí 1961 er henni var slátrað, voru þéssar:
Árið 1959: 7659 kg mjólk með 4,26% fitu
— 1960: 8467 kg mjólk með 4,70% fitti
- 1961: 3940 kg mjólk með 5,65% fitu
Þríkelfd kýr.
Að Neðra-Nesi í Stafholtstungum bar svo við i haust,
að kýr eignaðist 3 kálfa, atla lifandi. Það er ekki sjald-
gæft, að kýr séu tvíkelfdar, en að þær séu þríkelfdar
er sjaldgæft fyrirbrigði og að kýr eignast meira en
þrjá kálfa í einu er mjög sjaldgæft, en sumir eða allir
kálfarnir cru þá jafnan lasburða eða dauðfæddir.
Frá Nýja Sjálandi.
I nóvemberbyrjun s.l. fór dr. Halldór Pálsson til Nýja
Sjálands, en þar mun hann dvelja urn nokkra mánuði.
Hann hefur skrifað til Islands síðan hann fór og í
einkabréfi til ritstjóra Freys segir hann m. a.:
„Hér er yndislegt loftslag og ánægjulegt land í alla
staði. Allt byggist hér á landbúnaði. Velmegun er mik-
il, kaup hátt, vinnuhraði óskaplegur, en frítími mikill.
Aðeins 5 daga vinnuvika, eða 40 vinnustundir á viku.
Sumar vörur eru dýrar, en matvörur flestar ódýrar.
Skattar eru háir. Land er dýrt. Land, sem fleytir einni
á árlangt, kostar um 2500 krónur.
LAND-ROVER landbúnaðarbifreiffarnar
(sjá forsíðumynd) eru fáanlegar með benzín- eða
díesel hreyflum. Verð á LAND-ROVER með benzín
hreyfli, málmhúsi ásamt hliðargluggum, sætum fyrir
sjö manns, miðstöð, rúðublásara og afturhurð er ca.
kr. 120.300.—.
Með díesel-hreyfli og samskonar útbúnaði er bif-
reiðin ca. 16.600.— dýrari. Ymsir aukahlutir fáanlegir.
Vegna mikillar eftirspurnar eru þeir, sem hvggja á
LAND-ROVER kaup fyrir vorið, beðnir að senda
pantanir sínar hið allra fyrsta til einkaumboðsmanna
Rover-verksmiðjanna, Heildverzlunarinnar Heklu h.f.
Sími 11275. Reykjavík. (Auglýsing.)
Útgefendur: Búnaðarfélag ísl. og Stéttarsamband bænda. - Útgáfunefnd: Einar
Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. - Ritstjóri: Gísll Kristjánsson. •
Ritstjórn, afgreiðsla og innh.: Lækjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 390. Sími 19200.
BÚNAÐARBLAÐ Askriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f.