Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1965, Side 8

Freyr - 01.03.1965, Side 8
Byggingar í Ólafsdal í tíð Torfa Bjarnasonar verið komin í Torfa tíð, þá veit ég, að hann hefði ekki hikað við að taka vöruna upp í Skarðsstöð, og losað sig við að fá skipin með eftirgangsmunum inn á Salthólma- vík. Það er engum efa bundið, að Torfi hafði gleggra auga fyrir því, hvers virði það er að hafa útflutningshöfn í sínu hér- aði eins og nú er háttað, en menn virðast hafa nú, sem að svipaðra hagsmuna hafa að gæta fyrir heildina, eins og hann hafði. Þessir aðdrættir, eins og þeir eru nú, eru hreinn og beinn óþrifnaður að mylkja alla erlenda vöru frá Reykjavík, með annað hvort bílum eða bátum, í Austur-Barða- stranda-, Dala- og mikinn part af Snæ- fellsnessýslu og það á fjörð, eins og Breiða- fjörð, með nægar útflutningshafnir, og þar má nefna Skarðsstöð fyrir sýslurnar við innfjörðinn. Það hefur verið talið mesta happ fyrir hvert hérað, sem hefur útflutn- ingshöfn, ekki eingöngu fyrir erlendu vör- una, heldur einnig fyrir þá gjaldevrisvöru, sem út er flutt, því að svipað mun kosta á kílóið af henni suður og hinni hingað, og verður þá tvíklætt ágóðapúkkið fyrir mannskapinn. Undanfarin ár hefur viður verið það eina, sem komið hefur hingað til Skarðs- stöðvar beint frá útlandinu, til þriggja kaupfélaga hér á umgetnu svæði, og geri ég helzt ráð fyrir, að það hafi verið orsök- in, að hefði honum verið umskipað einhvers staðar, þá hefði viðurinn orðið það prísað- ur, að enginn hefði séð sér fært að kaupa hann, og svipað hlýtur þetta að vera með aðra vöru. Það er vonandi, að sálarástand verzlun- arstjóranna taki breytingu til heilla fyrir viðskiptafólkið viðvíkjandi þessum að- dráttarmöguleikum. Það er ekki æskilegt að þurfa íslenzkan vetur til þess að kenna mönnum að taka upp gamla lagið. Hrædd- ur er ég um, að þessir mörgu samfelldu sumar-vetur hafi ruglað marga í ríminu. Ef í harðbakkann slær með fönn, þá verða það þó sjóflutningarnir, sem gripið verður til, vitanlega með umskipunarneyð, má búast við. Ég þurfti að skrifa forstjóra Sambands- ins fyrir nokkru, og drap þar eitthvað á verzlunarástandið hér hjá okkur nú, bor- ið saman við hvernig það var fyrir og um aldamót, hvað flutning á erlendri vöru snerti. Það vildi svo heppilega til, að hann hafði nægilegt blek, ásamt kurteisi, og skrifaði mér því strax aftur og sagði, að það stæði ekki á Sambandinu að flytja vörurnar beint til okkar á Breiðafjörð, ef fólkið heima hjá okkur vildi það. Ég þekki engan mann eða konu, sem ekki kýs held- ur að fá hlut billegri en með okri. Nú er það svo, að það er kaupfélagsstjóranna, ásamt stjórnunum á umgetnu svæði, að gera athugun á hvað hægt er að fram- kvæma í þessum málum til hagsbóta fyrir fólkið. Yrði sú athugun gerð opinská og sýndi, eins og ég býst við, stóran hagnað, þá veit ég að verzlunarstj órarnir hefðu engan frið, fyrr en horfið yrði að sömu aðdráttaraðferðinni og viðhöfð var fyrir og um aldamót. Ég er alveg sannfærður um, að það skipti milljónum, sem sparað- ist við beina flutninga hingað, ekki sízt ef útflutta gjaldeyrisvaran er tekin með. Nú eru úr sögunni selstöðuverzlanirnar, sem auðvitað gátu farið með allskonar hagnað úr landi. Yrði hagnaður nú við áður um- getna breytingu, hvert ætti sá hagnaður að fara, nema til fólksins? Ætli því veiti af? Skarði, 20.11. 1964. Kristinn Indrifiason.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.