Freyr

Volume

Freyr - 01.03.1965, Page 16

Freyr - 01.03.1965, Page 16
72 FRE YR Erlendur vélasérfræðingur staðhæfir að landbúnaðurinn sé aðeins á byrjunarstigi vélvæðingarinnar. Fullyrðing hans hefur gefið teiknaranum tilefni til að skyggnazt fram í tímann og sjá hvernig umhorfs verður í fjósum þegar vélvæðingin verður komin á æðra st.'g. — (Landsbladet). ástæðan til útbreiðslu þessa kvilla. Og þetta gerist hjá þeim, sem þó hafa haft umfangs- mikla leiðbeiningastarfsemi í frammi. Hvað mundi hér vera að gerast? Hér er kvillinn, því miður, einnig allt of algengur og til- finnanlegur — ef til vill af svipuðum á- stæðum og hjá Ringsted? Þar er nú á dagskrá að leita aðstoðar hins opinbera til þess að hafa starfandi í land- inu nokkrar rannsóknarstofur, búnar tækni, sem líffræðingar þurfa að hafa til þess að grípa inn í hvert sinn sem meina af þessu tagi verður vart, svo að júgurbólga fari ekki um sem næmur kvilli og smiti heilan hóp skepna, og geri ekki mikla mjólk að sóttmengaðri vöru. Eins og þar í landi er leitað samstarfs dýralækna, búfræðinga og tæknifræðinga, væri eflaust ástæða til að vinna hliðstætt hér á landi, því að svo mikið er um júgurbólgu að mikið mein er að, og sjálfsagt á tæknibúnaður í fjósum verulega sök á því. En hér hefur verið of kyrrlátt í þessu efni. Landsráðunautur danskra mjólkurfélaga í vélmjöltun kom hingað til lands fyrir rúmum þremur árum á vegum félagssam- taka bænda í Eyjafirði. Erindi hans var að kynna, hvernig er þar sem hann stýrir málum. Þá var spurt hvort aðrir vildu hlusta á hann eða kynnast boðskap þeim, er hann hafði að flytja. Þess þurftu engir hér; sennilega af því að allt hafi verið í lagi annars staðar en í Eyjafirði. En var það nú svo?

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.