Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1965, Blaðsíða 22

Freyr - 01.03.1965, Blaðsíða 22
78 FRE YR fjöldans og notkun kornvöru til fóðurs vex hröðum skrefum. Endurteknir samningar við Bandaríki Ameríku, síðan 1957, hafa gert kleift að flytja þessa vöru inn hindrunarlítið, því að það heitir svo, að varan sé fengin samkvæmt samningum um lánsfrest til allmargra ára en vitað er, að sumt af greiðslu andvirðis vör- unnar er auðvelt að inna af hendi. I samningi, sem gerður var í árslok 1964, um kaup amer- ískrar búvöru fyrir árið 1965 er sagt, að um 75% af andviðinu gangi sem Ián til innlendra framkvæmda. Vörur þær, er um ræðir, eru: maís, hveiti, bygg, hrísgrjón, soyabaunir, tó- bak og baðmullarfræsolía. Þess má geta í þessu sambandi, að á síðasta ári voru fluttar fóður- vörur til landsins, er námu um 32 þús. lestum. í heimsmeistarakeppni í píægingu, sem fram fór í Vín á síðastliðnu hausti, hlaut plógur frá norsku Kverneland- verksmiðjunni 1., 3., 4. og 6. sæti og átti auk þess 13 önnur sæti af 40. Ge?S plógsins var Hydrein. Sultur er því miður alltof algengt fyrirbæri í heimin- um og dauðsföll, beint eða óbeint, vegna van- næringar, eru alltof algeng atvik. Þetta lætur einkennilega í eyrum þeirra, sem hafa svo mikil matvæli til umráða, að þau eru lítt eða ekki seljanleg og liggja undir skemmdum vegna langvinnrar geymslu. Eigi að síður eru þetta ómótmælanlegar staðreyndir. Skortur á matvælum er fyrst og fremst í hinum svo- nefndu þróunarlöndum, en þjóðir þær, sem þau byggja, hafa ekki efni á að kaupa mat- vælin því verði, sem framleiðendur þurfa að fá fyrir þau. Vestrænar þjóðir hafa matvæli í ríkulegum mæli og geta hjálpað mörgum um góðan og mikinn mat, en hver á að borga fyrir þá, sem ekki geta keypt? Þess voru dæmi fyrir fáum árum, að Austur- landaþjóðir gátu fengið korn ókeypis fyrir vestan haf en hungrað fólk hafði engin eni á að greiða flutningsgjaldið. Þessvegna dó fjöldi manna úr hungri áður en lausn fékkst á flutningsvandamálinu. DIESELRAFSTÖÐVAR í hvera sveit á íslandi. Þær eru ódýrar sparneytnar öruggar í notkun auðveldar í meðferð Varahlutir ávallt fyrirliggjandi. Fljót afgreiðsla. S. STEFÁNSSON & Co. h.f. Garðastræti 6 — Reykjavík Sími 1 55 79 TILKYNNING frá LISTER-UMBOÐINU Framvegis mun S. Stefánsson & Co. h.f. hafa með höndum alla sölu og af- greiðslu rafstöðva og landvéla svo og varahluti fyrir þær. Allar skipa- og bátavélar og vara- hlutir fyrir þær verða eftir sem áður á vegum Vélasölunnar h.f. Skrifstofur beggja fyrirtækj anna eru sem fyrr í Garðastræti 6, Reykja- vík. Einnig varahlutaverzlunin. Allt er undir umsj á sömu manna og áður hefur verið. S. STEFÁNSSON & CO. H.F. Pósthólf 1006 — Sími 15579 VÉLASALAN H.F. Póst hólf 506 — Sími 15401

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.