Freyr

Årgang

Freyr - 01.06.1968, Side 7

Freyr - 01.06.1968, Side 7
Binsvegar er í athugun hvort unnt sé að auka rekstarrlán til bænda til að auðvelda þeim kaup á aburði á næsta vori. Ingólfur Jónsson. Torfi Þórðarson. Eins og sjá má af bréfinu, er synjað þýðingarmestu atriðunum s. s. um verð- tryggingu framleiðslunnar og niður- greiðslu á þeirri hækkun, sem verður á áburði í vor. Stjórn Stéttarsambands bænda hefur, á fundi 25. þ. m., rætt um þá niðurstöðu af viðræðunum við ráðherrana, sem kemur fram í bréfi landbúnaðarráðherra og þykir henni sýnt, að framundan eru vaxandi fjár- hagserfiðleikar, fyrir bændur einkum í sambandi við óhagstætt verð á útflutnings- vörum, sem getur leitt til beinnar verð- skerðingar á uppgjöri afurðanna á þessu ári og svo í öðru lagi þær miklu hækkanir á rekstrarvörum landbúnaðarins s. s. til- búnum áburði o. fl. Stjórn Stéttarsamband bænda. Miðvikudaginn 10. apríl ’68 var stjórnarfundur í Stéttarsambandi bænda. Samþykkt var að senda blöðum off útvarpi svohljóðandi tilkynningu. F r éttatilkynning Þriðjudaginn 9. þ. m. var haldinn fundur í Framleiðs'luráði landbúnaðarins. Verk- efni fundarins var að ákveða verðjöfnun á landbúnaðarvörum, en því máli hafði verið frestað á Framleiðsluráðsfundi, sem hald- inn var í síðustu viku marz. Frestunin hafði verið gerð í því augnamiði að reynt yrði til þrautar að finna úrræði, sem að gagni mættu koma til lausnar þeim vanda, sem við blasir vegna verðfalls landbúnaðarvara (uilar og gæra), á erlendum mörkuðum og lokunar saltkjötsmarkaðar í Noregi, sam- hliða hækkuðum framleiðslukostnaði innanlands, sem verður til þess, að útflutn- ingsuppbætur reynast of litlar í ár og sjá- anlegt er, að enn meira vantar á þær á næsta ári með sömu þróun í þessum málum. í fréttatilkynningu fyrir háifum mánuði var birt afrit af bréfi frá landbúnaðarráð- herra til formanns Stéttarsambands bænda. Bréfið var svar við tillögum og óskum aukafundar Stéttarsambandsins, sem hald- inn var 7. og 8. febrúar s. 1. um aðstoð og fyrirgreiðslu við landbúnaðinn svo komist yrði hjá að taka verðjöfnunargjöld, sem að öllu óbreyttu þýddi lækkun á verði afurðanna frá því sem verðlagsgrundvöll- ur landbúnaðarafurða gerir ráð fyrir að bændur fái. í bréfi ráðherrans var tekið fram, að ríkisstjórnin gæti ekki komið á móts við bændur í neinu atriði, nema að hún hefði til athugunar hvort hægt væri að hækka rekstrarlán til landbúnaðarins svo bændur ættu hægara um kaup tilbú- ins áburðar í vor. Þegar þetta neikvæða svar ríkisstjórn- arinnar lá fyrir, ákvað stjóm Stéttarsam- bands bænda að leita til allra þingflokk- anna og skrifaði þeim svohljóðandi bréf: Stjórn Stéttarsambands bænda hefur ákveðið að snúa sér til allra þingflokka á Alþingi með ósk um aðstoð þeirra til úr- lausnar á fjárhagserfiðleikum bændastétt- arinnar. Á aukafundi Stéttarsambands bænda, sem haldinn var í Bændahöllinni dagana 7. og 8. febr. 1968, var rætt um þessa erfið- leika, sem eru til komnir af eftirfarandi ástœðum: 1. Vegna óhagstæðs úrskurðar um verðlag á s. I. hausti miðað við fram- leiðslukostnað. 2. Vegna stóraukins tilkostnaðar við búrekstur i vetur, sökum harðinda og heyskorts víða um land. 3. Vegna óhagstœðrar markaðsþróunar erlendis að undanförnu, lækkaðs verðs og sölutregðu á ull og gærum, lokunar á saltkjötsmarkaði í Noregi o. fl 4. Vegna stórhœkkaðs framleiðslukostn- 233 F R E Y R

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.