Freyr

Árgangur

Freyr - 01.06.1968, Blaðsíða 9

Freyr - 01.06.1968, Blaðsíða 9
Virðingarfyllst, F. h. þingflokks Framsóknarmanna Eysteinn Jónsson. Reykjavík 9. apríl 1968 Bréf stjórnar Stéttarsambands bœnda, dags. 29. marz s. I., barst mér í hendur hinn 2. apríl s. I., og var þar lagt fyrir nœsta fund í þingflokki Sjálfstæðismanna, sem haldinn var hinn 8. apríl s. I. Fundarmenn voru sammála um, að sú málsmeðferð, sem stungið er upp á í bréfi dags. 29. marz, muni ekki auðvelda lausn þeirra vandamála bænda, sem þar um ræðir, enda er stjórn Stéttairsambands bænda í sambandi við ríkisstjórnina um þau, og ríkisstjórnin mun að sjálfsögðu veita þeim þá afgreiðslu, sem efni standa til og þingfylgi er fyrir. Bjarni Benediktsson. * * * Eins og fram kemur í þessum bréfum er engin samstaða hjá þingflokkunum um úrræði, er létt gætu erfiðleika bænda. Það er staðreynd, að verulegar upphæð- ir vantar til þess, að óhjákvæmilegur út- flutningur fáist greiddur á grundvallar- verði. Verði engar ráðstafanir gerðar fá þeir, sem síðast flytja út, engar útflutnings. uppbætur eða, sem er öllu líklegra, það verður ekki flutt út meira af vörum en það, sem útflutnings uppbæturnar hrökkva til, en það sem framyfir er verður látið safn- ast fyrir og mundi það koma mjög misjafn- lega við bændur. Framleiðsluráð landbúnaðarins taldi sér skylt, samkv. 2. gr. í lögum nr. 101, 8. desember 1966 um Framleiðsluráð land- búnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o. fl. að ákveða verðjöfnunargjöld á kjöti og mjólk til að jafna hallanum á milli bænda. 2. gr. Aðalverkefni framleiðsluráðs (auk þess sem um ræðir í 1. gr.) eru: 1. að fylgjast með framleiðslu, sölu og vinnslu landbúnaðarvara; 2. að stuðla að eflingu landbúnaðarframleiðsl- unnar í samstarfi við Búnaðarfélag íslands, svo að hún fullnægi, eftir því sem kostur er á, þörf- um þjóðarinnar; 3. að stuðla að umbótum á vinnslu og meðferð varanna; 4. að vinna að aukinni hagnýtingu markaða fyrir þessar vörur utan lands og innan; 5. að vinna að því að beina framleiðslu landbún- aðarins að þeim framleiðslugreinum, sem land- búnaðinum eru hagfelldastar og samrýmast bezt þörfum þjóðarinnar á hverjum tíma. í því skyni heimilast Framleiðsluráði land- búnaðarins: a. Að ákveða mismunandi hátt útborgunarverð til framleiðenda eftir árstímum og innheimta verðjöfnunargjald af innveginni mjólk. b. Að ráðstafa því fé, sem fást kann í verðjöfn- unarsjóð, samkv. a-Iið, til verðuppbóta til viðbótar því fé, sem greitt er úr ríkissjóði samkv. 12. gr. Gjöld þau, sem um ræðir samkv. a-lið, hafa ekki áhrif á útsöluverð Iandbúnaðarvara til neytenda; 6. að ákveða verðmiðlun á kindakjöti, mjólk og mjólkurvörum samkvæmt fyrirmælum laga þessara; 7. að ákveða mjólkursölusvæði samkvæmt lög- um þessum; 8. að verðskrá landbúnaðarvörur í einstökum atriðum á grundvelli verðákvarðana samkvæmt 6. og 7. gr., enda sé sú verðskráning samþykkt af Sexmannanefnd. Var því ákveðið að taka kr. 3.00 pr. kg dilka- og geldfjárkjöts, sem tekið var á móti í sláturhús s. 1. haust, 1.50 kr. pr kg ærkjöts og verðjöfnunargjald af mjólk var hækkað úr 15 aurum í 28 aura á lítra frá 1. janúar s.l. Auk þess, sem framangreinir, voru gerð- ar nokkrar ráðstafanir til birgðasöfnunar og skipulagningar á vinnslu mjólkur í mjólkurbúunum með tilliti til þess hvað nú er hagkvæmast að flytja út af mjólkur- vörum. Verðjöfnun þessi mun verka til lækkunar á endanlegu verði til bænda í uppgjöri af- urðaverðsins fyrir yfirstandandi ár, að ó- breyttum aðstæðum. F R E Y R 235

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.