Freyr - 01.06.1968, Síða 32
Fulltrúar og aðrir gestir skoSa eldiskerin.
um magn eftirtekju með sívaxandi
áburðarnotkun.
5. Fiskeldi kom af stað fjörugum umræð-
um, enda er mjög vaxandi áhugi fyrir
þeirrí búgrein um allt land, þar sem að
því verði stuðlað, að sem flest bænda-
býli eigi aðild að fiskrækt í ám og vötn-
um. Grundvallarskilyrði til þess að svo
megi verða eru að sjálfsögðu fólgin í
því m. a., að ungviði verði sleppt í vötn-
in en eldisstöðvar eru nú að rísa í þeim
tilgangi að koma máli þessu og verk-
efni á góðan rekspöl.
Fiskeldisstöðin í Kollafirði, sem ríkið
á og rekur, var heimsótt og þar sáu
fulltrúar, þingsins hvernig að verkefn-
um er unnið við fullkomnasta um-
búnað, sem nú er til hér á landi.
Tjáði veiðimálastjóri þar, að ör þróun
væri í aðbúnaðinum og starfsháttum
á þessum sviðum, og reynslu annarra
og eigin árangur bæri að nota til hins
ítrasta, verkeíninu til framdráttar.
6. Þá voru efnahagsmálin til rækilegrar
athugunar. Komu fram í umræðunum
margþættar staðreyndir um hnignandi
kjör bænda, bæði vegna harðnandi ár-
ferðis með minnkandi eftirtekju, og
í öðru lagi vegna frávika frá þeim fyr-
irmælum, að verðlagsgrundvöllur bú-
vöru skuli skapa bændum tekjur, svo
sem lög mæla fyrir. Hafa fulltrúar
bænda komið með óyggjandi sannanir
fyrir, að ýmsir póstar á rekstrarreikn-
ingi eru í verðlagsgrundvöllinn skráðir
með allt öðrum stærðum, en þær hafa
256
F R E Y R