Freyr - 01.06.1968, Blaðsíða 33
Eldistjarnir undir þaki.
í búskap bænda (samanber áburðar-
notkunina, sem birtist á öðrum stað í
þessu hefti Freys).
Var í sambandi við þessi mál samþykkt
að beina til ríkisstjórnarinnar tilmæl-
um um leiðréttingar á málum þessum,
með niðurgreiðslu á áburðarverði á
komandi vori m. a.
7. Þá voru til meðferðar skólamál dreif-
býlisins, raforkumál, fjármál búnaðar-
sambandanna, hrossaræktarmál, lögin
um búnaðarmálasjóð og sitthvað
fleira.
Tekjur og gjöld Búnaðarfélagsins
höfðu jafnvægi með 16,3 milljónir
króna á síðasta ári en fjárhagsáætlun,
fyrir árið 1967, gerir ráð fyrir 19 mill-
jónum á hvorri hlið rekstursreikn-
ings.
í yfirliti yfir störf þingsins, sem stóð
til 10. marz, tjáði forseti, að á þessu 50.
Búnaðarþingi hafi 18 þingfundir verið
haldnir, þingið stóð 21 dag, af 53 málum
fengu 48 afgreiðslu og svo voru að lokum
kosnar nokkrar nefndir, sem alltaf starfa
milli þinga.
Þess er getið í sambandi við fiskiræktar-
málið, að fulltrúar hafi heimsótt eldisstöð-
ina í Kollafirði. Þá ber og þess að geta, að
forseti íslands, sem sýndi þinginu þá virð-
ingu að vera viðstaddur setningu þess, bauð
fulltrúum, starfsmönnum þingsins og
starfsfólki Búnaðarfélags íslands í heim-
sókn að Bessastöðum. Var för sú gerð
seinni part dags og þar dvalið við mikla
gestrisni stundum saman, en Ásgeir ZÍs-
geirsson, forseti, lætur af embætti sem
æðsti valdamaður þjóðarinnar á miðju
þessu ári, svo sem kunnugt er.
Verið er að leggja niður búskap á Bessa-
stöðum, í bili að minnsta kosti, en von-
andi verður sú reisn og tign, sem fylgt hef-
ur forsetaembættinu og heimilinu, við
haldið þótt skipt verði um menn í þessu
tignasta hlutverki þjóðar okkar. Þökk
bændastéttarinnar til fráfarandi forseta
tjáði forseti Búnaðarþings við brottför
hópsins frá Bessastöðum. — G.
BÆNDUR:
Við getum tekið að okkur smíði á hurð-
um, gluggum, eldhúsinnréttingum, skáp-
um í svefnherbergi o.fl. Leitið upplýsinga
í síma 15271 Reykjavík, milli kl. 13—18
virka daga eða í síma 10982 eftir kl. 19.
Heiðar S. Valdimarsson
F R E Y R
257