Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1971, Síða 11

Freyr - 01.07.1971, Síða 11
tölur geti breytzt getur hver og einn séð, að hér er um mikil verðmæti að ræða. * * * Eins og áður segir kom Teal til íslands árið 1965 og átti þá tal við ýmsa menn í ríkisstjórn, um innflutning og eldi sauð- nauta. Síðan hefur hann haft samband við a. m. k. suma þessa menn um þetta. Ekki getur hann þess hversu þessum málum sé komið sem stendur, en nefnir, að sumir þeirra hafi óttast að húsdýrasjúkdómar kynnu að koma með þeim sauðnautum, sem flutt yrðu til landsins. Teal bendir á, að íslenzk sauðnaut myndu koma frá þeim hluta Grænlands, sem liggur fyrir norðan Scoresbysund. Þessi dýr komi aldrei í samband við húsdýr og að fátt sé þar annara villidýra, sem veikindi gætu borið. Einnig bendir Teal á það, að sauðnautin séu yfirleitt kvillalaus. Þá mætli og hafa sauðnaut, sem til íslands færu, í einangrun eins lengi og þurfa þætti. Mér hefur lengi sýnst, að hér sé um stórkostlega þýðingarmikið mál að ræða. íslendingar ættu að gera hvorutveggja, koma upp stofni viltra sauðnauta, og bú- hjörðum. Menn ættu að ræða þetta gaum- gæfilega og án þess að draga inn í það önnur óskyld málefni. Síðan gæti ríkis- stjórn skipað nefnd bænda, náttúrufræð- inga og náttúruverndarmanna, til þess að athuga þetta sem vandlegast og frá öllum hliðum. Þessi nefnd skilaði svo innan á- kveðins tíma, áliti sínu til Alþingis og ríkisstjórnar. Þar sem ég er áhuganáttúrufræðingur og náttúruverndarmaður er mér vel ljóst, að oft hefur tekizt, illa til þegar annarleg dýr, skordýr eða fuglar, eru flutt til nýrra heimkynna. Þegar svo hefui farið, hefur það þó venjulega verið vegna þess, að það hefur verið gert að óhugsuðu máli, og oft af tilviljun einni saman. Þannig var það t. d. um minkinn! Hinsvegar þarf þetta ekki að koma fyrir og eru mörg dæmi um hið gagnstæða. Mér sýnist fullljóst, að sauðnaut frá Austur- Grænlandi myndu fella sig inn í íslenzka náttúru eins og hönd inn í vettling, án þess að valda hinum minnsta skaða í dýra- eða jurtaríki landsins. Þvert á móti, myndu þau stórauka fjölbreytni dýralífsins í landinu og verða undirstaða fyrir nýja og þýðingarmikla landbúnaðargrein. Afkvæmasýningar á sauöfé 1971 Á þessu ári verða afkvæmasýningar haldnar á Suðurlandssvæði og Austurlandssvæði frá Hvalfirði til Eyjafjarðar. Sýna má bæði hrúta og ær með afkvæmum. Hverjum hiúti þurfa að fylgja að minnsta kosti 22 afkvæmi, þar af tveir hrútar veturgamlir eða eldri og 10 lömb, og af þeim a. m. k. tveir lambhrútar. Hverri á þurfa að fylgja a. m. k. 5 afkvæmi, þar af einn hrútur vcturgamall cða eldri. Fjáreigendur á ofangrcindu svæði, sem óska eftir afkvæmasýningum, sendi Árna G. Péturssyni, Búnaðarfélagi íslands cða héraðsráðunautum búnaðarsamhanda á grcindu svæði tilkynningu fyrir 1. ágúst n. k. Búnaðarfélag fslands — Sauðfjárrækt — F R E Y R 291

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.