Freyr

Árgangur

Freyr - 01.07.1971, Blaðsíða 26

Freyr - 01.07.1971, Blaðsíða 26
í ljós kom, að votheysturninn að Laugar- dælum, sem var öllu verr farinn fyrir mál- un, hafði ekki verið í notkun þennan vetur. Votheysturninn að Ölvesholti hafði aftur á móti verið í notkun allan veturinn, og var hann því vandlega skoðaður. Kom fljótt í ljós, að þeir fletir, sem málaðir höfðu verið með EPOXY-BIKI, skáru sig algjörlega frá öðrum prófum. Voru þessir fletir að mestu hreinir og að öllu ó- skemmdir eftir veturinn, meðan fletir, sem málaðir höfðu verið með LÍNOLÍU, MÚR- BINDI og ÞYKKHÚÐ (klórkátsjúk) voru huldir myglugróðri og höfðu að miklu og verulegu leyti misst yfirborðsfestu. Kom mönnum saman um, að á grundvelli þess- ara tilraunaniðurstaðna væri tryggast að mæla með EPOXY-BIKI á g'arnla votheys- turna sem nýja, enda staðfestir reynsla sú, sem fengin er annars staðar, þessar nið- urstöður (Björk í Sandvíkurhreppi 2 ár, Esjuberg á Kjalarnesi um 5 ár). Ekki var í fljótu bragði unnt að sjá mun á endingu, hvort málaðar voru tvær umferðir með EPOXY-BIKI, eða fyiri umferðin með MÚRBINDI og seinni umferðin með EP- OXY-BIKI. Erfitt er að áætla efnismagn á m2 við málun votheysturna, enda er það mjög háð grófleika veggjanna. Ef um sléttan flöt er að ræða má áætla 0,33 ltr. pr. m2 (nýr grófhúðaður múr), en ef um mjög grófan flöt er að ræða, getur efnisnotkun hæglega farið í 1,25 ltr. pr. m2 (sbr. votheysturn að Laugardælum), hvort tveggja miðað við tvær umferðir. Samsvarar þetta efnis- notkun, sem nemur frá kr. 73.00 til kr. 275. 00 pr. m2, allt eftir grófleika flatanna, mið- að við núverandi verksmiðjuverð án sölu- skatts. Sem dæmi má taka votheysturninn að Ölvesholti. Á hann fóru 0,9 ltr. EP- OXY-BIK pr. m2, sem samsvarar um kr. 200.00 pr. ms í tvær umferðir. Með því að grunna fyrst með MÚRBINDI, fóru um 0.65 ltr. af MÚRBINDI í fyrri umferð, sem samsvarar kr. 45.00 pr m2, en um 0.5 ltr. EPOXY-BIK í seinni umferð, sem sam- svara kr. 110.00 pr. m2 eða samtals kr. 155.00 pr. m2. Á þessu má sjá, að það reyn- ist um 30% dýrara að nota EPOXY-BIK í báðar umferðir, heldur en að mála með MÚRBINDI í fyrri umferð og EPOXY- BIKI í þeirri seinni. Þá var í fljótu bragði engan mun að sjá á endingu þessara tveggja aðferða eftir veturinn. Nokkuð var rætt um hreinsun votheys- turna undir málun, en hreinsunin virðist tímafrek og mjög dýr (kr. 225.00 m2). Þótti sennilegt, að háþrýstivatnsúðun myndi auðvelda hreinsunina, auk þess sem hún er tiltölulega einföld í framkvæmd. Þykir rétt að benda á þessa aðferð, ef hún gæti lækkað kostnaðinn. Að loknum þessum hugleiðingum, og að fenginni reynslu mætti ráðleggja eftirfar- andi aðferð við málun votheysturna: 1. umferð: Mála með EPOXY-BIKI, þynntu, í um 5 m hæð. 2. umferð: Mála seinni umferð með EPOXY-BIKI aðeins í um 2,5 m hæð. Með þessu móti er efniskostnaður á mál- aðan flöt að meðaltali kr. 150.00 pr. m2, og ætti þessi aðferð að gefa fullnægjandi vörn. Þessar upplýsingar eru samkvæmt okkar beztu þekkingu í dag, en við vonumst til að geta, með góðri samvinnu við bændur, aukið verulega reynslu okkar á þessu sviði á komandi árum. Virðingarfyllst, MÁLNING hf. í 1 11 ni m | 1 - * --4-~A--L Ju 306 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.