Freyr - 01.07.1971, Page 25
iiii iii ii i ii ■ ii i iii iii iii iii ni mi ii i ii iiiininiiiiiiini iii iii iiiiiii]i iiiiiiiiiiii!ii n im iii iii iii
Viðhald
votheyshlöðunnar
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllilillllltlllllllllliilllllllllllllliiillllllllllllllllllllllllill
Góðar votheyshlöður eru þœr, sem vand-
lega eru gerðar úr steinsteypu. Ending
þeirra er góð og ágæt ef þær eru með
farnar á viðeigandi hátt. Elztu votheys-
turnarnir eru nú rúmlega tvítugir en eðli-
lega nokkuð fyrndir, meðfram vegna þess,
að viðhald þeirra hefur ekki verið rækt
sem skyldi. Sýrur votheysins herja á
steypuna og nú, þegar fleiri og fleiri taka
maurasýsu í notkun til að tryggja gæði
votheysins, er nauðsyn brýn að verja innri
flöt votheyshlöðunnar gegn árás sýrunnar
með viðeigandi efni. En hvaða efni er bezt?
spyrja menn.
Erlendis hafa tilraunir verið gerðar með
fjölda efna. Sum þeirra reyndust einskis
virði. Örfá hafa reynzt góð. Hér á landi
vitum vér ekki til að tilraunir hafi verið
gerðar af nema einum aðila, sem sé
MÁLNINGU hf.
Niðurstöður þeirra tilrauna, um nokkur
ár, segja ákveðið, að eitt efni sé langbezt.
Yfirlit yfir tilraunirnar fer hér á eftir.
Formaður Búnaðarsambands Suðurlands
tjáir Frey álit sitt um bezta efnið —
EPOXY-BIK — samkvæmt því er hann
hefur séð og skoðað. Ritstjóri FREYs hefur
einnig komizt að sömu niðurstöðu við að
skoða þann turn, sem lengst hefur verið í
tilraunum.
Hvort önnur og betri efni kunna að
koma til notkunar siðar er ekki vitað, en
þar sem ending EPOXY-BIKS virðist
fremri öðrum, er reynd hafa verið, er eðli-
legt að efni þetta sé notað, því að undir-
búningsvinna við ræstingu hlýtur að vera
nákvæmlega jafnmikil hvort sem gott eða
óhœft efni er notað til sýruvarnar. Vand-
aður undirbúningur er að sjálfsögðu nauð-
synlegur.
Til þess að tryggja nýja og notaða turna,
og aðrar steyptar votheyshlöður, gegn of
örri fyrningu, er eðlilegt og sjálfsagt að
smyrja þá innan fyrir slátt. Er nú ekki
viðeigandi að fá til þess sérstaka aðila, sem
ferðast á milli með háþrýstvatnssprautur
og annan búnað til ræstingar og fari ná-
kvæmlega að fyrirmœlum um notkun hins
bezta efnis, sem hér er þekkt til þessa?
Bezta efnið verður ódýrast í notkun þó að
það sé ögn dýrara en hin, sem ekki eru
meðmæla verð.
SKYRSLA
UM NIÐURSTÖÐUR TILRAUNA, SEM GERÐAR VORU Á VOTHEYSTURNUM
í júlímánuði 1970 voru framkvæmdar til-
raunir með málun gamalla votheysturna á
bæjunum Laugardælum í Árnessýslu og
Ölvesholti í Rangárvallasýslu. Hreinsun og
málun framkvæmdi Páll Árnason, málara-
meistari, á hvorum votheysturni.
Þann 3. maí s.l., eftir heilan vetur, voru
tilraunaniðurstöður kannaðar. Voru til þess
kvaddir eftirfarandi menn:
Stefán Jasonarson, form. Búnaðarsam-
bands Suðurlands,
Valur Þorvaldsson, ráðunautur hjá Bún-
aðarsambandi Suðurlands,
Páll Árnason, málarameistari, Selfossi,
Kolbeinn Pétursson, forstjóri, Málning
_ h.f„
Óskar Maríusson, efnaverkfræðingur,
Málning h.f.
F R E Y R
305