Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1983, Page 9

Freyr - 15.06.1983, Page 9
selunum kennt um. Fráleitt er að gleypa við öllum sögusögnum, líka þeim sem stimplaðar eru „vísindi" þegar svo þykir henta. Eru hringormar í öllum selum? Er ekki sín sníkjudýrategundin í hverri selategund, rétt eins og er á tegundum fugla og á tegundum landdýra? Eins og allir ættu að vita, er svo með sníkjudýr hvort heldur er innvortis eða útvortis, að sín lúsin og sinn ormurinn er á hverri tegundinni. Þetta verður að vera alveg á hreinu, svo að landselnum sé ekki kennt um sníkjudýr sem lifir í útsel — eða öfugt. Þótt bændur eigi skýlausan rétt varðandi selina, verða þeir að gæta hófs og fjölga sel ekki ótak- markað. Slíkt væri ein tegund rán- yrkju, hliðstætt ofbeit. Nú sækja fiskimenn og fiskiðjumenn fast að selnum og að rétti bænda. Nú er það bændanna að varðveita allan sinn rétt, en um leið að mæta sanngjörnum kröfum gagnaðilans með þeirri lipurð, að leitt geti til sátta og þeirrar lausnar sem yrði beggja hagur. Svínabændur áhyggjufullir vegna birgðasöfnunar á svínakjöti Frá aðalfundi Svínarœklarfélags íslands 1983. Við háborðið laldir frá vinslri: Hörður Harðarson, Laxárdal; Guðbrandur Brynjólfsson, Brúarlandi; Arni Möller, Þórustöð- um, formaður, og Halldór Krislinsson. (Ljósm. A.G.). Aðalfundur Svínaræktarfélags ís- lands var haldinn laugardaginn 30. apríl sl. Fundinn sátu um 20 fé- lagsmenn auk nokkurra gesta. Árni Möller formaður félagsins setti fundinn og skýrði frá helstu málum sem unnið hafði verið að á vegum félagsins á síðastliðnu ári. Þar má fyrst nefna verðlagsmálin, en stjórn félagsins hefur veg og vanda af verðlagningu á svína- kjöti. Frá 1. mars 1982 og fram til 1. mars 1983 hækkaði svínakjöt um 78,5%, sem var nokkuð um- fram almennar verðhækkanir í landinu. Félagið fékk eina milljón króna úr Kjarnfóðursjóði til að verja í byggingu rannsóknahúss á Keldnaholti, en þar verða hafnar ýmsar fóðurtilraunir þegar lokið er við húsið. Þá lýsti Árni þróun svínaræktar- innar á síðastliðnu ári og taldi nú svo komið að horfur væru á of- framleiðslu svínakjöts. Fullorðnum svínum fjölgaði um 384 á síðastliðnu ári. Nú eru þau 1923, en árið 1979 voru það 1500. Það virðist vera nokkuð hæfilegur fjöldi að hafa 1600—1700 fullorð- in svín í landinu, svo að jafnvægi sé á markaðnum. Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambands bænda ávarpaði fundinn og ræddi aðallega um samvinnu sérgreinafélaganna við Stéttarsambandið og gat þess að á vegum Stéttarsambandsins starf- aði Guðmundur Stefánsson bún- aðarhagfræðingur sem hefði sér- staklega verið ráðinn til að annast tengsl milli þessara félaga og Stéttarsambandsins. Pétur Sigtryggsson svínaræktar- ráðunautur gerði grein fyrir skýrsluhaldi í svínaræktinni og hvern árangur það hefur borið. Á fundinum kom fram tillaga þess eðlis að tekið yrði upp sam- starf við Framleiðsluráð landbún- aðarins um framleiðslustjórnun. Sú tillaga var felld með litlum atkvæðamun. Þá var samþykkt á fundinum að stjórn félagsins tæki upp viðræður við afurðasölufélögin um þann vanda, sem nú blasir við vegna bir^ðasöfnunar á svínakjöti. I landinu eru nú 95 bændur með svín, þar af eru 46 með 10 gyltur eða fleiri. Það eru 5 bú með fleiri en 100 gyltur. Stærsta búið á landinu er með 266 gyltur, næst eru tvö bú hvort um sig með 150 gyltur. U.Þ.L. FREYR — 457

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.