Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.06.1983, Qupperneq 24

Freyr - 15.06.1983, Qupperneq 24
Mynd 10. Ytra- og Innra Lón í Kelduhverfi. Flatarmál lónsins er um 2 km2. í Innra-Lóni er dýpi allt að 11 metrar, en í Ytra- Lóni er dýpi 1—2,5 metrar. Á myndinni má sjá að ósinn er staðsettur nálœgt norðausturhorni þess. Loftmynd þessi er tekin 1958. Mynd 11 sýnir hins vegar stöðu óssins 1976. Pá er ósinn staðsettur eins langt til vesturs og frekast er unnt vegna stórgrýtis. ing, þegar hækkaði í Lóni. Stund- um þurfti að moka rauf í gegnum fjörusandskambinn, sem sjórinn hafði hlaðið upp fyrir ósmynnið. Hættan á að ósinn grynntist eða stíflaðist með öllu varð að öðru jöfnu þeim mun meiri sem hann færðist lengra til vesturs. Gera má ráð fyrir, að „ferðalagi“ óssins í austur- eða vesturátt ráði ríkjandi vindáttir og styrkleiki þeirra. í norðvestlægri átt mjakast hann austur á bóginn, en til vesturs í ríkjandi norðaustanátt. Einkum á árinu 1982 hefur ósinn færst tals- vert til austurs, og átti í janúar 1983 eftir um helming leiðarinnar að norðausturhorni Lóns. Mun þetta meginskýring þess, að selta í Innra-Lóni hefur farið vaxandi á árinu 1982, sbr. línurit 4. 3. Blöndurt sjávar og ferskvatns í Ytra-Lóni. Ytra-Lón er tiltölulega grunnt. Mestur hluti þess er um 1.5—2 metrar, en nákvæmar dýptarmæl- ingar á því munu ekki hafa verið gerðar. Þegar stillt er á Ytra-Lóni, sekkur sá sjór, sem þangað berst, strax til botns og leitar svo áfram eftir álnum, eða þar sem dýpi er mest eftir botni, og áfram inn í Innra-Lón. Sé hvasst í veðri, og öldur á Ytra-Lóni því djúpstæðar, blandast sjórinn óhjákvæmilega fersku vatni og verður því „út- þynntur‘% þegar hann kemur að mörkum Innra-Lóns. Þess konar útþynntur sjór er tiltölulega eðlis- léttur og blandast með öðrum hætti vatnsmassanum í Innra-Lóni en ef um lítið blandaðan sjó væri að ræða. Þannig geta langvarandi norðlægir stormar haft þau áhrif að selta minnkar í Innra-Lóni. Slíkir stormar eru að jafnaði tíðari að vetrarlagi en um sumar, og kann þetta að vera meginástæða þess, að í flestum tilvikum, sem könnuð hafa verið, minnkar selta í Innra-Lóni um vetur en vex að sumarlagi. í þessu sambandi er það athyglisvert að í norðvestan illviðrinu í nóvember 1982, en þá var einnig stórstreymt, minnkaði seltan í Innra-Lóni mjög verulega, en tók síðan að vaxa að nýju eftir óveðrið (sjá línurit nr. 4). Sjálf- sagt hefur heildarmagnið af sjó sem barst í Innra-Lón í illviðrinu verið óvenju mikið, en mjög virk blöndun ferskvatns í Ytra-Lóni hefur meira en vegið gegn þessari viðbót, þannig að selta vatnsins sem barst í Innra-Lón var tiltölu- lega lítil og raunar svo lítil, að hún varð til þess að minnka seltumagn þess vatns sem var fyrir. Súrefni. Á töflu 1 eru súrefnismælingar á árinu 1982 gerðar í Innra-Lóni við flotbúr. Súrefni er uppgefið í mg/1. Á töflunni má sjá að súrefni er lágt á 6—8 m dýpi í byrjun ársins. Á vorin og sumrin er vatnið yfir- leitt fullmettað frá yfirborði niður 472 — FfíEYfí

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.