Freyr

Volume

Freyr - 15.06.1983, Page 22

Freyr - 15.06.1983, Page 22
%o (Promille) 25 Linurit 4. Selta mæld á mismunandi dýpi i Lóni i Kelduhverfi á árinu 1982. Línuritin gefa til kynna seltu á 2, 4, 6 og 8 m dýpi á mis- munandi timum ársins. 8 m 6 m 4 m 2 m A \ / \ \ ' \ v \ \ \ \ ' / / N S\ \ \ / ' ' ' \/ s \ y \ / / i v > '' / \/ / / \ '' \ / NX / / \ / \ / / \ / / V/ / / \ / \ / \ / \ / \/ / \ / janúar lebruar mars april mai júni Línurit 4 er fengið með sýnatöku 1—2 i mánuði. júli agust september október nóvember desember 12°—16°C, en yfirborðslagiö er 8°—9°C. Yfir veturinn er hitastig mjög háð lofthita og verður kæl- ingin í frostum mest á 1—3 m dýpi og kólnar þá yfirborðið oft niður undir 0°C, og einstaka sinnum hefur hitastig mælst mjög lágt eftir langvarandi frostakafla og nálgast hættumörk. Selta. Á línuriti 4 má sjá seltu mælda á mismunandi dýpi í Innra-Lóni (2, 4, 6 og 8 m dýpi) á árinu 1982. Ljóst er að selta í Innra-Lóni er vaxandi á árinu 1982. sé miðað við næstu ár á undan. (Sjá grein Ingi- mars Jóhannssonar, 3. tbl. Ægis 1982.). Einkum eru það þrjú at- riði, sem geta haft áhrif í þessu sambandi. 1. Landris. Héðinn Ólafsson, rafvirki að Fjöllum, sem er gagnkunnugur aðstöðu við Lón telur að í jarð- skjálftahrinunum 1975—76 hafi land við Lón risið um 30 cm en nákvæmar mælingar munu þó ekki hafa verið gerðar varðandi þetta atriði. Svo mikið landris hef- ur að sjálfsögðu dregið úr inn- streymi sjávar í Lónið. 2. Staða og lögun óss Lóns er mikilvœg. Mynd 10 sýnir stöðu óssins eins og hún var árið 1958, en þá var útrennslið í norðausturhorni Lóns. Mynd 11 sýnir hins vegar að árið 1976 var ósinn kominn eins langt til vesturs og frekast var unnt, vegna stórgrýtis. í fyrra til- vikinu átti sjórinn greiðan aðgang að Lóni. í norðan og norðaustan áttum rak hafaldan vatnsmassann beint inn í Ytra-Lón og þaðan áfram inn í Innra-Lón. Selta í Lóni hefur væntanlega verið mun meiri en nú er, enda sýnir seltumæling sem Aðalsteinn Sigurðsson fiski- fræðingur gerði árið 1963 30,2%o seltu á 9 m dýpi í Innra-Lóni, sem er langmesta selta, sem mælst hef- ur í Lóni. Þessu var öðru vísi farið á árun- um 1974—80. Þá var ósinn svo vestarlega (sjá mynd 11), að sjór þurfti að berast um 1 km langa kvísl til austurs áður en hann náði Ytra-Lóni. Við slíkar aðstæður er bersýnilegt að að öðru jöfnu flyst miklu minna magn af sjó inn í Lónið en þegar ósinn er nálægt norðausturhorni þess. Þessi munur á sjávarstreymi í Innra-Lóni ásamt landrisi, er án efa meginorsök þess, að selta fór stórminnkandi frá 1963—1981. Fleira kemur hér einnig til, eink- um það að ósinn var misdjúpur. Mikil brim báru sand í hann, jafnvel svo að hann stíflaðist með öllu. Stundum opnaðist hann aftur af sjálfsdáðum fyrir vaxandi þrýst- 470 — FREYR

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.