Freyr

Årgang

Freyr - 15.06.1983, Side 35

Freyr - 15.06.1983, Side 35
leitaði eftir þeim í síma við for- stjóra verksmiðjunnar, en hann sagðist ekki hafa neinar tölur um áburðarkaup einstakra viðskipta- vina eða hvernig þessi skipti væru. En Gunnar Guðbjartsson fyrr- verandi formaður Stéttarsam- bands bænda og stjórnarmaður í Aburðarverksmiðjunni sagði mér að þessi notkun hafi verið talin 15% af heildarnotkun, en þar sem ég þóttist skynja að hluti af þessu væri áætlanir og fremur vantalið setti ég þetta svona fram. Það sem er umfram 15% er því þar komið fyrir minn misskilning og er mér ljúft að viðurkenna það. 3. Um að fé kjarnfóðursjóðs komi ekki til tekna er það að segja að ég hefi ekki orðið var við launamiða frá Kjarnfóðursjóði og mun það hafa vafist fyrir fleirum en mér hvort þær greiðslur eigi að koma á framtal yfirleitt, en það er nú upplýst og er það vel. Um að hækkanir áburðarverðs verði reiknaðar inn í áburðarverð nú fyrsta júní er mér vel kunnugt og sjálfsagt að viðurkenna það. Hitt stendur óhaggað að langt er þangað til síðasta króna upp í áburðarverð hefur skilað sér í gegnum afurðir. Minnkandi ræktun á Rauðum íslenskum kartöflum Á aðalfundi Landssambands kart- öfluframleiðanda sem haldinn var nýlega kom fram að hlutfallslega verður sett niður mun minna af Rauðum íslenskum kartöflum í vor en undanfarin ár. Þetta miðast við sölu á útsæði frá Grænmetis- Molar_________________ Ófyrirsjáanlegar ástæður Nýlega mátti lesa eftirfarandi frétt í erlendu blaði: „Spákonur í Bandaríkjunum koma árlega saman til fundar. Boð- uðum fundi í ár hefur nú verið frestað, af ófyrirsjáanlegum ástæðum." verslun landbúnaðarins. Þá var tekið mið af því hvað hafði verið selt fram til 7. maí. Lang mest var selt af Bintje. Útsæði af því af- brigði var 42,6% af heildarsölu, aðallega var það innflutt útsæði. Gullauga var 15,7%, Helga 5,8% en Rauðar íslenskar 15,7%. Þá voru önnur afbrigði með samtals 19,2% af heildarsölunni. Það voru ýmis innflutt afbrigði s. s. Eyvind- ur, Doré, Diamant og Arkula. Greinilega er mikill áhugi hjá bændum að rækta verksmiðju- Hafmeyja frekar en ísbjörn Eins og kunnugt er hefjast hrognkelsaveiðar nokkru fyrr á Norðurlandi en Suðvesturlandi á hverju ári. Á sínum tíma útvegaði umboðsmaður Flugfélags íslands á Húsavík starfsfólki félagsins í Reykjavík rauðmaga síðari hluta vetrar áður en veiðar hófust sunn- anlands. Eitt vorið gerðist það svo að orðsending kom frá umboðs- manninum á Húsavík um það að nú gæti hann ekki útvegað meiri kartöflur og minnkandi áhugi fyrir Rauðum, enda má gera ráð fyrir að lágmarksstærð á 1. flokks kart- öflum verði heldur óhentug þeim sem rækta það afbrigði, nema til komi nokkur sala í „Perlukartöfl- um“ en það er gert ráð fyrir þeim flokki í nýju flokkunarreglunum. Það eiga að vera kartöflur í stærð- arflokknum 33—35 mm. Magnús Sigurðsson í Birtinga- holti var endurkjörinn formaður Landssambands kartöflufram- leiðanda. rauðmaga þar eð kominn væri hafís um allan sjó. Hins vegar fylgdi orðsendingunni að í staðinn gæti hann e. t. v. útvegað ísbjörn, en það yrði þó ekki gert nema um það yrði beðið í bundnu máli. Upphófust þá miklar yrkingar meðal starfsmanna Flugfélagsins og fylgir hér á eftir ein af þeim vísum. Höfundur hennar er Ulrick Richter þáverandi yfirmaður vöruafgreiðslu félagsins: Það er erfitt að tjónka við ísbjörn og sel því alls konar bragða þeir leita, en hafmeyja kæmi sér helvíti vel, og hafðu hana stóra og feita. Altalað á kaffistofunni FREYR — 483

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.