Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 14

Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 14
Flýtifyrna má byggingaframkvæmdir frá 1995 þó að byggingin hafi ekki verið tekin í notkun. 8. Lögð er meiri áhersla á að skila launamiðum yfir verktaka. 9. Leigutekjur af íbúðarhúsnæði eru skattfrjálsar sem nemur 80% af leigutekjum þó að hámarki 25.980 kr. á mánuði, sem húsnæði er í leigu. Ef kostnaður við leiguhúsnæði er meira en sem nemur 25.980 kr. á mánuði má setja upp rekstrareikning yfir tekjur og gjöld eins og verið hefur. 10. Nýting eldri tapa á móti hagnaði er þrengd, ef veruleg breyting verður á rekstri, t.d. eigenda- skipti. 11. Ellilífeyrisþegar, þ.e.a.s. þeir sem eru 70 ára eða eldri, greiða ekki skatt af 15% af greiðslum úr lífeyrissjóðum. 12. Verðlitlir vinningar í almennum happadrættum og keppnum eru nú undanþegnir skatti. 13. Gjafir, þó ekki tækifærisgjafir til starfsmanna eða viðskiptavina, eru frádráttarbærar þegar verðmæti þeirra er ekki meira en gerist um slíkar gjafir. 14. Tekjutenging eignarskatts var afnumin í fyrra og margir bændur finna fyrir þeirri breytingu, á þá leið að eignarskattur hækkaði frá því sem var. 15. Reiknað endurgjald skal ekki færa á launa- framtal 1996. Tryggingagjald verður reiknað út frá færslu á skattframtal. ló.Beingreiðsla vegna mjólkur og kindakjöts skal færa sem undanþegna veltu á VSK skýrsluna. 17. Virðisaukaskattur af heimteknum afurðum er 14%. Virðisaukaskattur (14%) af innlendum bókum og tímaritum tók gildi 1. júlí 1993. (Erlend tímarit bera 24,5% VSK). 18. Nokkur sveigjanleiki er á því hversu hratt eignir má fyrna niður. Vélar má fyrna um 11 til 15%. Þannig eru sett lágmörk og hámörk, sjá síðar. 19. Keyptan fullvirðisréttur má færa til gjalda á fimm árum. 20. Söluhagnaður, sem dreift er á nokkur ár, er nú hækkaður upp samkvæmt verðbreytingarstuðli. Ef skuldabréf er selt, sem dreifingin byggist á, verður að tekjufæra þann söluhagnað sem þá er ekki búið að færa til tekna. 21 .Tekjuskattur 1995 er 33,15%. 22. Kaup á hiutabréfum koma til lækkunar á tekjum á skattframtali. 23. Húsnæðissparnaðarreikningur mun gefa lægri ávöxtun þar sem skattaafsláttur er nú 10% og lækkar um 5 prósentustig á ári þar til hann fellur niður í árslok 1996. Þannig verður skatta- afslátturinn 5% á næsta ári. 24. Tryggingargjald af landbúnaði, þar með talin (ferðamannaþjónusta), skógrækt og fiskeldi verður 3,63% fyrir árið 1996. 25.Fasteignaleiga. Útleiga tjaldstæða, hótel- og gistiherbergjaleiga varð virðisaukaskattskyld árið 1994, (14%). Færa skal inn reiknuð laun samkvæmt þeirri áætlun sem tryggingargjald er reiknað út frá og síðan kemur fram tap eða hagnaður. Ef færð eru hærri eða lægri reiknuð laun skal láta fylgja skýringar. Reiknað endurgjald á bónda er 651.192 kr. en á hjón 1.302.384 kr. á grundvallarbúi árið 1995. Reikna þarf 14% virðisaukaskatt af heimanot- uðum afurðum og færa á virðisaukaskattsskýrslu. Ef útskattur er hærri en innskattur síðasta tímabil ársins, færist sú upphæð á landbúnaðarframtal sem skuld, annars sem viðskiptakrafa. Endurgreiðslu á kjarnfóðurskatti skal telja fram á tekjuhlið land- búnaðarframtals. Framleiðsluráð landbúnaðarins sendir út afurðamiða yfir þessar greiðslur. Bænda- samtök ísland senda út launamiða vegna framlaga samkvæmt jarðræktarlögum. Framlag til búhátta- breytinga færist til lækkunar á stofnverði þeirra framkvæmda, sem eru samfara búháttabreyting- unni. Fyrningargrunnur þessara eigna verður því lægri sem styrknum nemur. Nær allir frádráttarliðir á skattframtali voru felldir burt árið 1988. Þeir sem eftir standa koma bændum að litlu gagni að undanskildum vaxta- bótum til þeirra sem eru að byggja íbúðarhús eða hafa nýlega keypt jörð. Húsnæðissparnaðarreikn- ingur og kaup á hlutabréfum standa enn. Nú var bætt inn nýjum lið, „Frádráttarbær iðgjöld í lífeyrissjóð". Reglan er sú að færa 50% af greiðslu í lífeyrissjóð til frádráttar á skattframtal, þó að hámarki 2% af reiknuðum launum. Leiðbeiningar ríkisskattstjóra með dæmum, skýra skattframtal mjög vel og því ástæðulaust að fjalla hér um það. Rétt er að benda lesendum á að lesa aðeins þær leiðbeiningar sem tilheyra þeim blöðum, sem verið er að fylla út hverju sinni. Sala á fullvirðisrétti. Sala á fullvirðisrétti milli bænda er nú komin í fast form. Lagagreinin heitir „Niðurfærsla eigna“. Keyptur fullvirðisréttur skal færður niður með jöfnum árlegum fjárhæðum á fimm árum. T.d. keyptur fullvirðisréttur að upphæð 1.400.000 kr. skal færður niður um 280.000 kr. á ári. Hér er því ekki um raunverulega fyrningu að ræða, heldur niðurfærslu eigna. Ekki má verðbæta þessa eign með verðbreytingarstuðli eins og aðrar eignir á 54 FREYR - 2 '96

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.