Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 16
launamiða. Jafnframt skal færa hér allar greiðslur
til þeirra, sem stunda sjálfstæða starfsemi eða
atvinnurekstur en reikningar frá þessum aðilum
eiga að vera á númeruðum eyðublöðum með nafni
og kennitölu. í reit 22 færast greiðslur fyrir vöru-
bflaakstur, t.d. áburðarflutning og gripaflutning. I
reit 30 skrifar bóndi fullt nafn, kennitölu og fullt
heimilisfang. Frekari skýringar eru prentaðar aftan
á launamiða. Hér að framan hefur aðeins verið
minnst á þá reiti, sem bændur nota mest. Athygli
skal vakin á því að reiknuð laun barna yngri en 16
ára skal ekki færa á launamiða. Sú nýbreytni fylgir
þessum launamiðum er að í reit 03 skal færa
helming greidds iðgjalds í lífeyrissjóð frá 1. aprfl
1995. Þessi iðgjöld eru frádráttarbær á skatt-
framtali.
í reit 70 þarf að færa vinnulaun á ný, þ.e.a.s. laun
sem reiknuð er staðgreiðsla af. Afdregin stað-
greiðsla færist í reit 71.
Fyrningarskýrsla.
í almennum búrekstri er árleg fyrning reiknuð
samkv. eftirfarandi reglum:
Lágmark Hámark
Búvélar ........................ 11% 15%
Útihús .......................... 3% 4%
Ræktun......................... 4,5% 6%
Loðdýrabú ..................... 4,5% 6%
Gróðurhús ....................... 6% 8%
Tölvur, skrifstofubúnaður ...... 15% 20%
Borholur ...................... 7,5% 10%
Bændur hafa nokkurt val um fymingarprósentu,
þ.e.a.s. fyrningarprósentan verður að vera á því bili
sem hámark og lágmark gefa tilefni til. Heimilt er
að breyta fyrningarprósentunni árlega.
Almennt eru bifreiðar ekki eign búsins heldur
einkaeign og færast því á skattframtal. Nú má
lækka það verð sem fært er inn á skattframtal, sjá
leiðbeiningar ríkisskattstjóra. Notuð er föst fyrning
(nú 136.837 kr.), sem ríkisskattstjóri gefur upp
árlega og er sú upphæð skráð á eyðublaðið fyrir
rekstur bflsins á bls. 6. Bflar eða önnur einkaeign er
ekki háð ákvæðum um söluhagnað eða sölutap.
Allar eignir í atvinnurekstri, hvort sem það er
landbúnaður eða annar atvinnurekstur, eru hins
vegar háðar ákvæðum um söluhagnað eða sölutap,
þegar og ef eignir eru seldar, sem notaðar eru í
atvinnurekstri.
Gerð fyrningarskýrsiu:
Ekki eru nein tengsl á ntilli fasteignamats og
fymingarskýrslu. Það má sem sagt ekki nota
fasteignamat sem fyrningargrunn fyrir ný útihús.
Aftur á móti er fasteignamatið notað, þegar eignir
eru skráðar á framtalið og gildir það um allar
fasteignir. í þeim tilfellum þegar hús er í byggingu
og það hefur ekki verið metið til fasteignamats, þá
er nýja húsið fært á kostnaðarverði eða réttara sagt
bókfærðu verði. Þá ætti það að vera ljóst að við
gerð fymingarskýrslu kemur fasteignamatið ekkert
við sögu.
Á mynd 1. er sýnd handunnin fymingarskýrsla.
Þar sem töluvert tap er fyrir hendi er valin sú leið
að fyma eignir um lágmarksfymingu. Úthús 3%,
ræktun 4,5% og vélar um 11% og skrifstofuáhöld
um 15%. Dráttarvél sem var keypt er þó fyrnt um
15% til að benda á að fyrna má mishratt, sjá mynd.
Dráttarvél er seld á 258.646 kr. Framreiknað
bókfærð verð er 74.791 kr. og söluhagnaður því
183.856 kr. Fullvirðisréttur var keyptur 1993 á
1.400.000 kr og er færð á fymingarskýrslu.
Niðurfærsla er 280.000 kr. á ári. Ástæða þess að sú
leið er valin að færa keyptan fullvirðisrétt á
fyrningarskýrslu, er sú að betra er að halda utan um
niðurfærsluna. Bókfært verð á framleiðslurétti
560.000 kr. færist til eignar á landbúnaðarskýrslu á
bls. 4.
Nú skal skýrt betur hvernig fymingaskýrslan er
unnin.
Byrjað er á því að færa af gömlu skýrslunni yfír
á þá nýju. Dálkar 5 og 11 á gömlu skýrslunni fara
í dálka 3 og 4 á nýju skýrslunni og tölumar eru
óbreyttar. Síðan eru þessir dálkar margfaldaðir með
verðbólgustuðli ársins, sem er nú 1,0321.
Niðurstöður eru settar í dálka 5 og 6. Með þessari
margföldun er verið að reyna að skrá eignir rétt
miðað við upprunalegt verð. Árleg fyming er síðan
reiknuð af þessari upphæð. Síðan er árleg fyrning
og áður fengnar fyrningar lagðar saman og sú
upphæð færð í dálk 11. í síðasta dálk, nr. 12, er fært
bókfært verð, sem er mismunur á upphæð í dálk nr.
5 og 11. Allar eignir á fymingarskýrslunni eru
meðhöndlaðar á sama hátt nema að því leyti að
árleg fyming er mismunandi há prósenta því að
eignir endast misjafnlega lengi.
Aðrar fyrningar. Fyrna má á móti söluhagnaði, en
það er því aðeins leyfilegt, að búið sé rekið með
hagnaði og ekkert yfirfæranlegt tap sé fyrir hendi.
Nokkur atriði til minnis.
1. Allar eignir á fyrningarskýrslu (þó ekki fram-
leiðsluréttur) skal framreikna með verðbólgu-
stuðli ársins. Hann er 1,0321 fyrir árið 1995.
2. Nýbygging færist á kostnaðarverði samkvæmt
húsbyggingarskýrslu og byrjað er að fyma
bygginguna niður það ár, sem húsið er tekið í
notkun og þá heilsársfyrningu.
3. Ekki má fyrna eignir á söluári, en hins vegar eru
eignir fyrndar á kaupári og þá heilsársfymingu.
56 FREYR - 2 '96