Freyr

Árgangur

Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 22

Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 22
og hvort tveggja færist til gjalda. Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess, að færsla skulda og vaxta á landbúnaðarframtal annars vegar og persónu- framtal hins vegar getur haft töluverða þýðingu skattalega séð og meðhöndlun er ekki alveg eins. Lán sem tekin eru til íbúðarhúsabygginga færast öll á skattframtal en lán sem tekin eru vegna bú- rekstrar, færast á landbúnaðarframtal og vextir og lántökukostnaður sömuleiðis. Lán vegna bíla- kaupa, húsgagnakaupa eða annarra persónulegra nota, færast á skattframtal. Vísitöluhækkun lána, þ.e. sú upphæð, sem lánin hafa hækkað um á árinu, færast til gjalda á landbúnaðarframtali, en sé vísitölulán á skattframtali, færast þar til gjalda aðeins vextir og greidd vísitölulækkun. Á þessu er mikill munur. Ef skuldir eru miklar, getur það orkað tvímælis hvort lánið er tekið vegna búrekstrar eða einkaneyslu, en það verða menn að meta. Þegar búið er að færa inn skuldir og um leið vexti og verðbætur á bls. 4 á landbúnaðarframtali, er vaxtadálkurinn lagður saman og upphæðin sett í reitinn: 7.1, vextir og verðbætur af skuldum vegna búrekstrar á bls. 3. Aðrir liðir skýra sig sjálfir að miklu leyti. Efnahagsyfirlit (sjá mynd 2). Eignir 31/12 1994. Fyrst skal byrja á því að færa inn á dálkinn lengst til hægri „31/12 1994“ af gamla framtalinu á það nýja. í dæminu, sem hér fylgir, eru veltufjármunir 1.922.198 kr. og þeir færast einnig neðst á síðuna eins og ör sýnir. Sama er að segja um skuldir, að þær færast einnig neðst á síðuna. Mismunur á veltufjármunum og skuldum myndar „Stofn til verðbreytingarfærslu“, í þessu dæmi 5.559.063 kr. Þar sem skuldir eru hærri en veltufjármunir reiknast tekjufærsla. Tekjufærslan er 3,21% af þessari upphæð eða 178.446 kr. Tekjufærslan færist síðan á á bls. 5 með öðrum niðurstöðum af landbúnaðarframtalinu. Ef veltu- fjármunir væru hærri en skuldir, myndaðist gjaldfærsla, en ekki tekjufærsla. Eignir 31/12 1995. Veltufjármunir eru í þessu dæmi 1.762.037 kr„ sjá mynd. Þeir myndast af birgðum, helmingi matsverðs bústofns, inneign í kaupfélagi v/bús, inneign í banka og útistandandi skuldum. Það rekstrarfjármagn, sem bundið er í búrekstrinum á að mynda veltufjármuni og er litið svo á að það fé sé óverðtryggt og myndi, að frádregnum skuldum, „stofn til verðbreytingafærslu“ eins og áður hefur verið skýrt frá. Það skiptir því töluverðu máli að veltufjármunir séu ekki vantaldir. Vaxtatekjur af innistæðum færist til tekna á bls. 2. Um áramótin eru afurðir fyrir desembermánuð í sumum tilfellum færðar á reikning ársins 1996 og í þeim tilfellum þarf að færa þá upphæð sem viðskiptakröfu. Ogreiddar afurðir um áramót, sem taldar eru til tekna á afurðamiða, skal færa sem viðskiptakröfu í lið 1.4. Fastafjármunir. Þar færast allar fasteignir (útihús, land, hlunnindi og ræktun), sem búrekstrinum tilheyra á fasteigna- matsverði 1/12 1996 en ekki bókfærðu verði samkvæmt fyrningarskýrslu. Búvélar færast hins vegar á bókfærðu verði samkvæmt fymingar- skýrslu. Helmingur af matsverði bústofns færist undir fastafjármuni en hinn helmingurinn undir veltufjármuni eins og áður er lýst. Keyptur fram- leiðsluréttur færist á bókfærðu verði. Skuldir Áður hefur verið vikið að færslu vaxta og vaxtabóta. Skuldir færast eins og kvittanir segja til um þ.e.a.s. „Eftirstöðvar eftir síðustu greiðslu“ Rétt er að benda á að færa ógreiddan virðisaukaskatt sem skuld um áramót. Innistæða sem mynduð hefur verið til að standa straum af þessari greiðslu VSK 1. mars skal setja í veltufjármuni. B. Uppgjör hreinna tekna af búrekstri, bls. 5. Árlega birtir ríkisskattstjóri viðmiðunarreglur til ákvörðunar á endurgjaldi bænda, maka þeirra og barna. Þær eru birtar í lok þessarar greinar. Eins og fram kemur í leiðbeiningum ríkisskattstjóra skulu bændur að jafnaði færa á landbúnaðar- og skatt- framtal þau reiknuðu laun, sem staðgreiðsla á árinu 1995 hefur verið miðuð við. í hjálögðu dæmi, sjá mynd 3, er hagnaður af búrekstrinum að upphæð 750.516 kr„ eftir að hvort hjónanna hefur reiknað sér í laun 700.000 kr. og bömum 250.000 kr. Yfirfæranlegt tap er 807.482 kr. hjá hvorum aðila. Að frádregnum hagnaði 375.258 kr. er yfir- færanlegt rekstrartap til næsta árs 432.224 kr. hjá hvoru hjóna. Ég vil ráðleggja bændum að loka framtali sínu og reikna sér laun. Almennt séð er ekki ástæða til þess að reikna sér lægri laun en viðmiðunarreglur segja til um. Ef búið gefur ekki þær tekjur, er það rekið með halla en tapið geymist í 5 ár og er verðtryggt. Þegar síðan batnar í ári má nota tapið til þess að lækka hagnaðinn. Þó að það virðist í sumum tilfellum tilgangslítið að safna upp tapi ár eftir ár, getur sú staða komið upp að tapið nýtist. Eldri bændur, sem famir eru að draga saman 62 FREYR - 2 '96

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.