Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 42
Bœndaferð til Norðurlandanna
árið 1953
í viðtali við Svein Skiílason, bónda í
Bræðratungu í Biskupstungum í októberblaði
(10. tbl.) á síðasta ári sagði hann frá bændaferð
sem hann tók þátt í árið 1953, undir fararstjórn
Gísla Kristjánssonar, ritstjóra.
Nokkru eftir að viðtalið birtist barst upp í
hendur undirritaðs hópmynd af þátttakendum í
þessari ferð. Þó að nokkuð sé um liðið frá
birtingu viðtalsins þykir ástæða til að birta
myndina og nafnalista. M.E.
var vika 31. Alls var safnað í 8 vikur
á bæjum með margar hryssur og 6-
7 vikur á bæjum með færri hryssur.
Hryssur voru mældar inn allan
tímann til að tryggja hámarks-
nýtingu úr stóðunum (sýni var hægt
að taka þegar 40 dagar voru liðnir
frá því að þær köstuðu). Þetta
tryggði að nýjar hryssur komu inn í
stað þeirra sem duttu út. Hægt er að
taka blóð úr um það bil 50 hryssum
á dag mest og á bæjum með margar
hryssur var hægt að halda þeirri tölu
nokkuð stöðugri yfir mestallt tíma-
bilið og ná þannig yfir 350 blóð-
tökum.
Mjög mikilvægt er að bændur taki
fola úr stóðunum á vorin og að
stóðhestar séu ekki látnir í fyrr en í
fyrsta lagi síðustu vikuna í maí.
Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir
bæi með fáar hryssur því að með
þessu móti verða blóðgjafahryss-
urnar fleiri og blóðgjafimar hjá
hverri þeirra verða einnig fleiri.
7.2. Kjötframleiðendur hf.
Fyrirtækið Kjötframleiðendur hf.
er eign þriggja búgreinafélaga, þ.e.
Landssambands kúabænda, Félags
hrossabænda og Landssamtaka
sauðfjárbænda. Tilgangurinn með
stofnun þess var m.a. að hafa áhrif á
innlendan kjötmarkað og stuðla að
jafnvægi á honum með einstökum
aðgerðum - í samráði við eigendur
félagsins.
Um þær aðgerðir skulu gilda
eftirfarandi vinnureglur: (Sjá opn-
una á undan).
Gert er ráð fyrir því að Kjöt-
framleiðendur hf. starfi sem sölu-
skrifstofa eða markaðsaðili eigenda
sinna og umbjóðenda, og að sú
umsýsla greiðist með þóknun fyrir
sölustörf eða með framlögum eig-
enda. Frekari ávinningur af starfinu
82 FREYR-2’96