Freyr - 01.02.1996, Qupperneq 24
Reiknað endurgjald bœnda, maka
þeirra og barna tekjuárið 1995
(skattframtal 1996).
Að jafnaði skal færa á skattframtali 1996 þau
reiknuðu laun sem staðgreiðsla á árinu 1995 hefur
miðast við. Séu færð lægri reiknuð laun ber að láta
nauðsynlegar skýringar fylgja skattframtali. í
þessu sambandi vísast til 1. mgr. 59. gr. laga nr.
75/1981, sbr. 6. gr. laga nr. 49/1987.
Viðmiðunarreglur til ákvörðunar á reiknuðu
endurgjaldi bænda og maka þeirra á staðgreiðslu-
árinu 1995 frá 31. desember 1994 eru þessar:
Viðmiðunartekjurfyrir grundvallabúið ákvarðast
þannig:
1. Viðmiðunartekjur bónda, sem stendur einn fyrir
búrekstri með eða án aðkeypts vinnuafls eða í
samrekstri með öðrum en maka, ákvarðast
651.192 kr. í 52 vikur. Mánaðarlaun kr.
54.266.
2. Vinni það hjóna sem ekki stendur fyrir búrekstri
með maka sínum við reksturinn skal meta því
endurgjald með hliðsjón af vinnuframlagi þess,
metið á sama verði og endurgjald bónda.
3. Standi hjón bæði fyrir búrekstrinum skal
reiknað endurgjald hjónanna samtals teljast
tvöfalt endurgjald bónda eða 1.302.384 kr. sem
skiptist milli hjónanna í hlutfalli við vinnu-
framlag hvors um sig.
4. Akvarðaðar viðmiðunartekjur hvers bónda sem
stendur fyrir búi með öðrum en maka sínum
skulu miðaðar við eignarhlutdeild bóndans í
félagsbúinu.
Við ákvörðun viðmiðunartekna bænda skal taka
tillit til þess hvort bóndi nái heildartekjum
grundvallarbúsins. í verðlagsgrundvelli land-
búnaðarafurða er sauðfjárbúi reiknuð 400 ærgildi
en kúabúi 22 kúgildi sem samsvarar 440 ær-
gildum. í blönduðu búi skal því að öllu jöfnu
reikna með 420 ærgildum.
Við ákvörðun heildarærgilda bús er geldneyti
reiknað 8 ærgildi og kálfur 4 ærgildi.
Nái bústofn bónda ekki framangreindum
ærgildafjölda verður að ætla að bóndinn nái ekki
heildartekjum grundvallarbúsins og má þá lækka
reiknað endurgjald í sama hlutfalli og ærgilda-
fjöldi búsins er minni en viðmiðunarærgildatjöldi.
Hámark reiknaðs endurgjald sem skattstjóri
getur ákvarðað skv. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 75/1981
takmarkast við það að fjárhæð þess má ekki
mynda tap sem er hærra en sem nemur
samanlögðum almennum fyrningum skv. 38. gr.
og gjaldfærslu skv. 53. gr. laganna. Hjá elli- og
örorkulífeyrisþegum takmarkast ákvörðun
skattstjóra á reiknuðu endurgjaldi við það að ekki
myndist tap á búrekstrinum.
Reiknað endurgjald barna
Lækka má reiknað endurgjald skv. 1. og 3. tl um
11.450 kr. fyrir hverja viku sem barni (börnum) er
reiknað endurgjald. Samtals má þessi lækkun ekki
nema hærri fjárhæð en samanlagður vikufjöldi
margfaldaður með 11.450 kr. og teljast 16 vinnu-
stundir á 11.450 kr. vera hámark miðað við grund-
vallarbúið.
Reikni bóndi börnum sínum á aldrinum 13-15
ára á tekjuárinu endurgjald fyrir vinnuframlag
þeirra skv. síðasta málslið 2. mgr. 1. tl. A-liðs 7.
gr. laga nr. 75/1981, skal við mat á hámarki því
sem um ræðir í 2. mgr. 59. gr. laganna og draga má
frá sem rekstrarkostnað, miða við meðaltímakaup
frá 286 kr. til 327 kr. eða frá 11.440 kr. til 13.080
á viku.
seglin, sýna oft tap af búrekstri sínum ár eftir ár. Ef
sú staða kemur upp að þeir selja jarðir og fá mikinn
söluhagnað, nýtist tapið og getur komið sér mjög
vel. Nú hefur hins vegar verið gerð sú breyting á
skattalögum að tapið fyrnist eftir 5 ár. Það tap sem
nú er til fyrnist eftir 5 ár ef það er ónotað. Ef
búreksturinn gengur illa er full ástæða til þess að að
fyrna allar eignir um lágmarksfyrningu.
F. Yfirlit yfir ónotað tap
Tap fyrnist á 5 árum og nú þarf að halda utan um
hvert ár. Neðst á bls. 5 er sett upp í dálka fyrir árið
1991 og fyrr, 1992, 1993 og 1994. Tapið 1991 var
793.161, árið 1992 172.244 kr. o.s.frv. Þessar tölur
eru framreiknaðar með verðbreytingarstuðli
(1,0321) og færðar í dálk 3.
Nú er hagnaður af búrekstrinum árið 1995 að
upphæð 750.516 kr. Sá hagnaður dregst frá elsta
tapinu, sjá mynd 3, og þá er eftir 68.105 kr. af eldra
tapinu frá 1991 og fyrr. Tap ársins 1992 (172.244
kr.), færist óhreyft í þessu dæmi til næsta árs.
Þannig er alltaf tekið af elsta tapinu.
Af þessu má sjá að halda þarf utan um eldri töp
þar til þau eru notuð. Alltaf er notað elsta tapið á
móti hagnaði eins og í þessu dæmi.
Tap ársins 1991 og fyrr er þannig nýtanlegt í 5 ár
í fyrsta skipti 1992. Ef það verður ekki notað í
64 FREYR - 2 '96