Freyr - 01.02.1996, Blaðsíða 44
í skort á matvœlum
Það stefnir
Annuð hvert ár er haldin
landbúnaðarsýning á Hellerud-
völlum (Hellerud sletta) skammt
norðan við Ósló. Auk þess sem
þar eru sýndar vélar, búfé o.fl.
eru þar flutt erindi og haldnir
umræðufundir.
A sýningunni á sl. vori flutti
Öistein Dahl, stjórnarformaður
World Watch Institute á Norð-
urlöndum, en hann gegndi áður
hárri stöðu innan norska olíu-
iðnaðarins, erindi um stöðu mat-
vælaframleiðslu í heiminum um
þessar mundir. Framtíðarsýn hans í
þeim efnum er ekki björt. Ef nú
kæmi lélegt kornár, eins og gerðist í
USA árið 1988, mætti vænta
alvarlegs skorts á korni og að
kornverð stórhækkaði.
Fyrir þau lönd þar sem tak-
markanir eru á framleiðslu búvara
eru þetta á sinn hátt jákvæðar
fregnir. Þær gefa þeim vonir um
bjartari framtíð fyrir landbúnað
þeirra.
I erindi sínu hvatti Öistein Dahl til
að frumframleiðslugreinarnar yrðu
efldar og lagði mikla áherslu á að
norska þjóðin yrði sjálfri sér næg
um sem flestar matvörur. Móðir
jörð stendur andspænis djúpstæðum
og flóknum vandamálum. Álagið á
lífkerfið er alltof mikið. Þróunin
stefnir í ranga átt og matvæla-
framleiðsla á jörðinni er ekki sjálf-
bær. Það er samdóma álit fjölmargra
þeirra sem koma nálægt þessum
málum. Hins vegar hafa stjórn-
málamenn enn ekki komið nægilega
auga á þessi sannindi.
Öistein Dahl nefndi ýmsa þætti
sem hafa það í för með sér að
matvælaframleiðsla mun dragast
saman:
• Framleiðslugeta lands er víða
nýtt til hins ýtrasta og mögu-
leikar á að taka nýtt land til
ræktunar eru takmarkaðir.
• Jarðvegur tapast í stærri stíl en
nýr jarðvegur verður til.
• Skortur á hreinu vatni fer vax-
andi, grunnvatnsstaða lækkar á
mikilvægum ræktunarsvæðum.
• Fólki fjölgar of mikið á jörðinni
eða u.þ.b. um 90 milljón manns á
ári.
• Fleiri og fleiri þjóðir og stórir
hópar meðal þjóða sækja stíft í
bætt lífskjör.
Hvað síðastnefnda atriðið varðar
benti Öistein Dahl einkum á Kín-
verja. í Kína batna nú lífskjör
hröðum skrefum á sama tíma og þar
er land tekið í stórum stíl undir
byggð, vegi, flugvelli o.fl. Kjöt-
neysla Kínverja vex nú hratt og til
kjötframleiðslu þarf korn. Um
fjórðungur jarðarbúa eru Kínverjar
og kornbirgðir um þessar mundir
eru hinar minnstu í 20 ár og nægja
einungis til 62 daga neyslu. Minni
kornbirgðir leiða til stórhækkaðs
kornverðs.
Á tímabilum frá því í mars til júlí
1995 hefur kornverð á Lundúna-
markaðnum hækkað um ca 1% á
viku.
Öistein Dahl taldi að fiskveiðar
muni ekki skila meiru. Um 17
mikilvægustu veiðisvæði í heim-
inum eru fullnýtt eða ofnýtt, sumir
fiskstofnar eru við það að hverfa.
Fiskeldi bætir hér nokkuð úr, en til
fiskeldis þarf líka fóður.
Mesta vandamálið í þessu sam-
bandi er þó það að mörg hundruð
milljónir manns hafa ekki efni á að
borga meira fyrir matinn.
Við erum ekki á réttri leið,
umhverfið er víða að komast í þrot
og það birtist í breytingum á veður-
fari þar sem áður óþekkt veður
dynja æ oftar yftr.
Öistein Dahl nefndi hve jörðin
gæti brauðfætt margt fólk út frá
neysluvenjum í einstökum löndum.
• Með matarvenjum Bandaríkja-
manna ber jörðin 2,8 milljarða
manns.
• Með matarvenjum Itala ber
jörðin 5,4 milljarða.
• Með matarvenjum Indverja
brauðfæðir jörðin 11,5 milljarða
manns.
(Endursagt úr Bondevennen nr. 28/29
1995).
Niðurstöður úr skýrslum fjar
rœktarfélaganna árið 1994
Leiðrétting
í stuttri grein í 12. tbl. Freys á
síðasta ári þar sem gerð er grein
fyrir nokkrum helstu niðurstöðum
úr skýrslum fjárræktarfélaganna
árið 1994 eru því miður meinlegar
villur.
I flýti við að koma greininni til
birtingar gerði ég þau mistök að
vinna töflur fyrir hæstu bú eftir
gömlum úreltum forritum, sem því
miður gáfu ranga niðurstöðu í
einstaka tilviki. Það sem leiðrétta
þarf er að í töflu um afurðahæstu
búin á félagsbúið á Vöglum í
Eyjafjarðarsveit að vera í þriðja sæti
en þær 15 ær sem þar voru
skýrslufærðar árið 1994 skiluðu að
meðaltali 2,00 lömbum til nytja og
framleiðsla þeirra að meðaltali 45,5
kg af dilkakjöti. í töflu um stærri
búin eru tölur fyrir einhver búanna
einhverju broti úr kg of háar en röð
búanna þar breytist ekkert. Réttar
töflur verður að finna í Sauðfjár-
ræktinni sem brátt mun koma út.
Beðist er velvirðingar á þessum
leiðu villum sem að öllu leyti verða
að skrifast á reikning undirritaðs.
Jón Viðar Jónmundsson.
84 FREYR - 2. '96