Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.2002, Side 2

Freyr - 01.07.2002, Side 2
Ógnlr gagnvart matvælaframlelðslu Ein mesta ógnun við mat- vælaframleiðslu í heimin- um eru staðbundnir vaxandi þurrkar. I fréttum er jafnt og þétt sagt frá þurrkum í Afríku og matarskorti í kjölfar þess. Um 40% af ræktunarlandi jarðar þarf að vökva til að það gefi uppskeru. Mest er um vökvun akra í Kína, Indlandi og Bandarikjunum. Sums staðar í heiminum hafa akrar ekki verið vökvaðir á réttan hátt, annars vegar hefur saltmagn jarðvegs aukist og hins vegar hefur vökvunin leitt til þess að gmnn- vatnsstaðan hefur lækkað vemlega. A landssvæðum nálægt sjó hefiir það leitt til þess að salt grunnvatn hefur komið upp úr borholunum. I Kína er lækkandi gmnnvatns- staða ógnun við tvo þriðju hluta ræktunarlandsins. Oft er dælt upp mjög gömlu vatni sem endumýjar sig ekki og gerir framtíðarhorfur um ræktun þar óvissar. Þá er mik- ið af yfirborðsvatni notað til vökv- unar víða um heim. Dæmi um það er rennsli til Aralvatnsins, þar sem notkun á áveituvatni við bað- mullarræktun veldur þvi að í það stefnir að vatnið, sem áður var 4,5 milljónir hektarar að stærð, verði horfið árið 2015. Þess er vænst að hlutfall akra, sem em vökvaðir, muni vaxa í framtíðinni en vatnsnotkunin ekki að sama skapi, þar sem nýting vatnsins verði betii með nýrri tækni. Jarðvegseyðing er enn ein ógn- un við matvælaframleiðslu í heiminum. Þar er bæði um að ræða eyðingu af völdum vatns og vinda. Ferillinn er oft sá að skógur er mddur og landið síðan notað til beitar, sem gengur of nærri því, þannig að rótarkerfið, sem bindur jarðveginn saman, lætur undan. Þá tekur vindur og vatn við og eyðir jarðveginum. Aætlað er að árleg jarðvegseyð- ing nemi á bilinu 4-15 milljón hektömm á ári, eftir því við hvaða jarðvegsþykkt er miðað, og alls er talið að 30% af akurlendi jarðar hafi orðið fyrir skemmdum af jarðvegseyðingu. Jarðvegseyðing skýrir hluta af stækkun eyðimarka í heiminum en þær fara vaxandi í öllum heimsálfum, sem nemur 6 milljón hektömm á ári. Ein ógnun við matvælaffam- leiðslu, þó að í minni mæli sé, er að land er tekið undir íbúðar- byggð. Þar eð fólk hefur ffá upp- hafi tekið sér búsetu þar sem unnt er að stunda ræktunarbúskap þá liggur beint við að besta ræktun- arlandið liggur í grennd við þétt- býli. Hver hektari af ökmm sem tekinn er undir íbúðarbyggð í landi með góð ræktunarskilyrði, svo sem í Vestur-Evrópu og víða á Norðurlöndunum, samsvarar mat- vælaffamleiðslu á mörgum hekt- ömm lands í öðmm heimshlutum. Aðeins um 11% af ræktunar- landi jarðar er nýtanlegt eins og það er. Annars staðar er landið of þurrt, of blautt, sífferi er í jörðu, jarðvegslagið er of þunnt eða salt- magn í jörðu hindrar nýtingu hans. Mikil þekking á jarðvegs- vemd og vatnsbúskapi jarðvegs er fyrir hendi. Það sem hins vegar er flöskuhálsinn, er að koma þessari þekkingu á ffamfæri við þá sem þurfa að nýta sér hana. (Unnið upp úr Inemationella, Perspektiv nr. 20/2002) Altalað á kaffistofunni Þá skal efna Um niiðjan júni sl. urðu vega- og brúaskemmdir á austanverðu landinu vegna rigninga og vatnavaxta. Minnti það á að oft hafa orðið skaðar af völdum veðurs hér á landi. A fyrri hluta 18. aldar bjó á Sauðanesi á Langanesi Þorvald- ur, kallaður gamli, Magnússon, f. 1670, d.1740. Hann varð fyr- ir því að fé hans flæddi og bát hans braut í fjöru i ofviðri. Unr það orti hann: í annan bát Mas er að hafa þami mammonsgrát, þó missist nokknó af auði. Þá skal efna í annan bát og ala upp nýja sauði. Heimild: Torfi Jónsson frá Prestbakka, en frá Guðmundi gamla Magnússyni er sagt í bókinni Syrpu úr handritum Gísla Konráðssonar, II. bindi, bls. 80, sem út kom árið 1980 Utgefandi Skuggsjá, en Torfi vann undir útgáfu. | 2 - Freyr 6/2002

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.