Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.2002, Side 7

Freyr - 01.07.2002, Side 7
Frá Kirkjubæjarklaustri, t.v. byggingar Sláturfélags Suðurlands, en gamla Klausturbæinn ber I Systrafoss. (Ljósm. S.Ó.). í Landbroti, Eldvatns í Meðal- landi og Tungufljóts í Skaftár- tungu. Við eigum veiðirétt í Skaftá og leggjum þar lagnet seinni hluta sumars en í ánni er jökulvatn og því ekki hægt að veiða þar á stöng. Það má segja að veiði sé í flestum ám á svæð- inu og hafa bændur af því bú- drýgindi. Má t.d. nefna Geir- landsá, Hörgsá, Vatnamót sem teljast til vatnasvæðis Skaftár. Einnig er veiði í Kúðafljóti og Tungufljóti í Skaftártungu. Svo eiga jarðir í lágsveitunum, Alftaveri og Meðallandi, Qörur og rétt til reka og hann er nokkuð nýttur en þó minna en áður var. Einnig hluti jarða í Landbroti, einhverjar í Fljótshverfí og tvær jarðir í Skaftártungu. Aður var lika töluverð selveiði í Kúðaósi og á fjörunum hér fyrir austan, en hún er lítið stunduð í seinni tíð eftir að selskinn féllu í verði. Ferðaþjónustan ó svæðinu ? Ferðaþjónustan er vaxandi og mjög góð að því leyti að henni fylgir atvinna yfír sumarmánuð- ina. Það var byggt gott hótel á Klaustri, það var hlutafélag á staðnum, Bær hf., sem gerði það. Þama fær fjöldi ungmenna vinnu á sumrin. Núna er það Kaupfélag Amesinga á Selfossi, sem rekur hótelið, en áður var það Flug- leiðahótel og þar á undan Eddu Hótel. Svo er ferðaþjónusta á vegum bœnda ? Hún er töluverð og rekin af miklum myndarskap og er alltaf að aukast. A einum bæ, í Efri- Vík í Landbroti, er eingöngu ferðaþjónusta og svo er einnig búið að byggja mjög myndarlega upp, bæði á Hunkubökkum og Geirlandi. Hér á Kirkjubæjar- klaustri var opnað kaffihús 1. júní í fyrra, sem sýndi sig að fúll þörf var fýrir. Á Hvoli í Fljóts- hverfi var opnað Farfúglaheimili á síðasta ári. Veika hliðin við ferðaþjónust- una er að nýtingartíminn er alltof stuttur, en þá leggja þeir sem hana stunda líka nótt við dag. Er boðið upp á margs konar afþreyingu? I Efri-Vík er golfvöllur og víða er vísað á veiði. Svo em skipu- lagðar daglegar ferðir í Laka og Núpsstaðarskóg. Einnig em ferðir á Skálafellsjökul og Fjallabak á hverjum degi frá Klaustri yfír sumarið Auk þess er ijölmargt annað að skoða í hreppnum, þar má t.d. nefna Systrastapa, Kirkju- gólfíð, Fjaðrárgljúfúr, Dverg- hamra og Tröllshyl svo að eitth- vað sé nefnt. Svo er hægt að aka hring um Meðallandið og Álftaverið. Aðrar búgreinar ? Menn hafa aðeins þreifað fyrir sér í fískeldi, þ.e. bleikjueldi, t.d. fyrirtækið Glæðir í Nýjabæ hér rétt utan við Klaustur. Þar eru góðar aðstæður til fiskeldis, svo em þeir að stækka við sig, en þeir em að byggja aðra stöð á Teygingalæk. Það er ómetanlegt ef fiskeldið gæti skapað þó nokkur störf og í okkar samfélagi er hvert starf dýrmætt, hreppur- inn nær ekki 600 íbúum. Þegar ég var ung bjó hér miklu fleira fólk og samfélagið var þannig sterkara þó svo að þá vantaði ýmis þægindi og þjón- ustu sem nú þykja sjálfsögð. Er einn skóli fyrir allan hrepp- inn? Já, vestan frá Álftaveri og aust- ur að Núpsstað, það var heima- vist en nú er daglegur akstur, það geta lengst orðið rúmir 50 km hvora leið. Það var mikið gæfuspor fyrir þessa fimm hreppa, sem vom þá Álftavers-, Skaftártungu-, Leið- valla-, Kirkjubæjar- og Hörg- landshreppar, að ná saman um byggingu gmnnskóla hér á Klaustri. Það gerðist fyrir 1970, en áður vom litlir skólar í hverj- um hreppi. Við fengum góðan skóla og góða kennara, sem settust að og í kringum þetta myndaðist þorpið á Klaustri. Þetta gerðist töluvert Freyr 6/2002 - 7

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.