Freyr

Årgang

Freyr - 01.07.2002, Side 13

Freyr - 01.07.2002, Side 13
Verkun og geymsla byggs moð própíonsýru - nokkrar níðurstöður tilrauna og reynsla bænda Reynd hafa verið ýmis hjálparefni til þess að stýra verkun byggs. Hvað best hefur gefist að nota própíonsýru. Hún heldur aftur af óæskilegri gerjun svo og starfi myglu- og gersveppa. Tvær leiðir eru einkum farnar: I fyrsta lagi að úða 4-5 lítrum í tonn af ný- skornu byggi sem síðan er sett í loftþéttar umbúðir (síló, poka, tunnur...) en hins vegar að úða til muna meira magni í byggið sem síðan er geymt í opinni stæðu (í bing, stíum, gryfj- um...). Sýrumagnið ræðst þá af þurrkstigi byggsins, og þarf þeim mun minna sem byggið er þurrara og geymslutíminn styttri. Virkni própíonsýru byggist á þrennu; réttu magni miðað við þurrkstig byggsins, mjög vandaðri íblöndun, og fullkomnu hreinlæti við alla meðhöndlun og geymslu. SÚRSUN BYGGS - NOTKUN PRÓPÍONSÝRU Haustið 2000 voru hafnar til- raunir með notkun própíonsýru í bygg. Þá voru þær gerðar í rann- sóknastofústíl á Hvanneyri en í fúllri stærð að Keldudal í Hegra- nesi. Haustið 2001 var tilraunun- um svo fram haldið á báðum stöðum, auk þess sem allmargir bændur í Skagafirði og Langadal verkuðu kom sitt með própíon- sým, að hluta til eða að öllu leyti. Súrsun byggs í stórsekkjum og tunnum hefúr verið algengasta aðferðin hér á landi en er í báð- um tilfellum vinnufrek og geymsla er óömgg. Þurrkun er mjög kostnaðarsöm þar sem ork- an sem þurrkað er við er í flest- um tilfellum olía. Þurrkunar- kostnaðar á Vindheimum var að jafnaði kr. 3,62 á kg koms (85% þe.) haustið 2001 (án VSK) en ætla má að kom hafi verið að jafnaði 65% þurrt þegar það var slegið til þurrkunar. Hvert kg af própíonsýru kostaði um 140 kr. síðasta haust (án VSK). Kostnað- ur við sýmverkun miðað við að nota 12 kg sým á hvert tonn af blautu komi er því 2,40 kr./kg (m.v. 85% þurrt kom) miðað við 65% þe. og 3,05 kr./kg (m.v. 85% þurrt kom) miðað við 50% þe. Þurrkun á svo blautu komi er vart raunhæf vegna kostnaðar. Sýmverkað korn hefúr aftur á móti mun minna geymsluþol en kom sem er þurrkað. Ljóst er að hin mikla aukning í komrækt hér á landi síðustu ár kallar á önnur og afkastameiri vinnubrögð við frágang og verkun á afúrðinni þar sem heimaræktað bygg er víða orðinn stór hluti af fóðurforða búanna. Tilraunin í Keldudal HAUSTIÐ 2000 Með tilrauninni skyldi reyna geymslu súrbyggs í opnum ílát- um og kanna hversu mikið af própíonsým þyrfti til ömggrar geymslu. Hinn 7. september var skorið bygg í tilraunina af sex- raða yrkinu Arve. Þurrefni þess var 53,2%. Própíonsýmnni var blandað í byggið í snigli sem færði það frá sturtuvagni upp í eftir Þórarin Leifsson, Keldudal, Hegranesi og Bjarna Guðmundsson, Landbúnaðar- háskólanum á Hvanneyri 600 1 fiskkör, en í þeim var súr- byggið síðan geymt. Sérstök sýradæla af gerðinni Mini-Minor frá Jetway var notuð til þess að úða sýmnni neðst inn í snigilinn við fyllisvelg hans. Dælan er tengd við venjulegan 12 V raf- geymi og er hönnuð til að ganga ofan í 200 1 tunnur. Rennslismæl- ir var tengdur dælunni svo að hægt væri að fylgjast með sýra- magninu sem notað var. Snigill- inn er 8 m langur en á þeirri leið blandaðist sýran bygginu mjög vel - en það er gmndvallaratriði eins og áður sagði. Lágmarks- lengd á snigli er 6 metrar. Snigill- inn var knúinn vökvamótor er tengdur var við dráttarvélina sem stóð fyrir sturtuvagninum. Sým- magnið var mælt sem nákvæmast svo og byggmagnið sem fór í hvert kar, en það vom 417 kg að meðaltali. Til að blöndun sé ná- kvæm þarf að rennslismæla snig- ilinn og finna út hversu mörg Freyr 6/2002-13 |

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.