Freyr - 01.07.2002, Blaðsíða 22
Mynd 2. Vatnsrás tekur ftjótt við
yfirborðsvatni og skilar því niður í
lokræsi, vatnsleiðandi lag eða út i
næsta skurð.
það 12,2% uppskeruauka að
meðaltali á níu árum og 10,9%
uppskeruauka á níunda árinu. Þá
er eftir að meta óbeinan ávinning
eins og það að auðvelda umferð
og að landið er mun síður ófært í
rigningartíð. Taka skal fram að
mikil vinna og kostnaður fylgir
því að koma 200 - 400 rúmmetr-
um (300 - 600 tonnum) af sandi á
hvem hektara og verður vart
framkvæmt nema þegar jörð er
frosin. Við fyrstu sýn virðist
vera um það mikið magn að ræða
að aðgerð sem þessi sé alltof
fyrirhafnarsöm. Margir bændur
eiga hins vegar öflug tæki sem
henta vel til slíkra verka. Astæða
væri til að reyna þessa aðferð hér
á landi, t.d. á litlar spildur sem
mikið mæðir á.
er stór plógur sem vinnur niður á
50 - 80 sm dýpi og jafhvel
dýpra. I Noregi og víðar, þar sem
50 -80 sm þykkt lag af þéttum
mýrarjarðvegi eða þéttum leir er
ofan á sandi eða fíngerðri möl, þá
hefur djúpplæging reynst vel,
aukið loftun, bætt framræsluna
og gert jarðveginn burðarmeiri.
Norðmenn nota einnig skurðgröf-
ur til þess að blanda lagskiptum
jarðvegi saman.
Djúpplæging var allmikið
reynd hér á landi fýrir nokkrum
áratugum og var reynslan af því
yfírleitt slæm. Astæða þess var sú
að hér á landi er frjósamasti jarð-
vegurinn yfírleitt við yfirborðið.
Með djúpplægingu var þessi hluti
jarðvegsins færður niður á tals-
vert dýpi og oft kom upp ísaldar-
leir eða setlög sem gerðu yfir-
borðið verra til ræktunar en verið
hafði. Hér á landi komust menn
að þeirri niðurstöðu að djúpplæg-
ing hentaði sjaldnast við íslensk-
ar aðstæður. Þrátt fyrir reynslu
fyrri ára og að mjög víða henti
djúpplæging alls ekki hér á landi,
þá má ekki útiloka þessa aðferð
því að til eru aðstæður þar sem
djúpplæging er fyllilega réttlæt-
anleg. Grundvallaratriði er að
meta aðstæður hverju sinni og
kanna vel nokkur jarðvegssnið á
viðkomandi stað áður en þessari
aðferð er beitt.
Jarðvegsblöndun
Blöndun jarðvegs með djúp-
plægingu (skerpiplóg) eða öðrum
aðferðum getur reynst árangurs-
rík til jarðvegsbóta. Þetta á eink-
um við ef jarðvegur er þéttur.
Einnig ef brjóta þarf upp lag-
skiptan jarðveg þar sem mjög
þétt lög hindra vöxt plönturóta og
torvelda streymi vatns að ræsum
eða skurðum. Aðferðin hentar
einnig ef blanda á undirliggjandi
sandi saman við þéttan mýrar-
jarðveg eða þéttan leir. Notaður
Jarðvegslosun
Til þess að bæta bygginguna,
losa um þétt jarðvegslög og
mynda sprungur í gegnum þéttan
jarðveg til að auka streymi vatns
og lofts, þá hefur sk. jarðvegslos-
unartæki (subsoiler) verið notað
erlendis. Notkun slíks tækis er
fastur liður í viðhaldi framræslu
og ræktunar í mörgum löndum.
Sú aðferð hérlendis að losa jarð-
veg með „ripper“ er byggð á
sömu hugmyndum. Erlend
reynsla byggir fyrst og fremst á
því að beita aðferðinni á stein-
efnaríkan jarðveg, en ekki á mýr-
lendi. Mýrlendi hérlendis er hins
vegar frábrugðið öðru mýrlendi
að því leyti að innihalda mun
meira af steinefnum heldur en
annars staðar er algengt (áfok,
aska o.fl.). Því er líklegt að ofan-
greind tækni við jarðvegslosun
komi til greina á mýrartún hér á
landi.
Tæki til jarðvegslosunar
Jarðvegslosunartæki, sem hér
um ræðir, eru til í ýmsum gerð-
um og útfærslum, allt frá því að
vera dregin af léttum dráttarvél-
um og rista fremur grunnt og upp
í stórvirk losunartæki á stærstu
dráttarvélar eða jarðýtur og losun
niður á eins metra dýpi.
Tækið er þannig byggt að neð-
an á nk. blaði/sverði er eins kon-
ar flatur skór eða plata sem lyftir
jarðveginum dálítið upp þegar
blaðið er dregið í gegnum jarð-
veginn og veldur sprungumynd-
un ef rétt er að verki staðið,
ásamt því að mynda vatnsrás þar
sem botnstykkið/skórinn fór i
gegnum jarðveginn. Algeng
vinnsludýpt er á bilinu 50 - 70
cm. Sumar gerðir vinna þó dýpra
ef þörf er á og ef dráttarafl er
nægilegt. Hæfilegt bil á milli rása
er 1-2 m. Ef notuð eru öflug
dráttartæki má jafnvel setja fleiri
(nokkra) anna (blöð/sverð) á
hvert tæki.
Rakastig jarðvegsins
Mikilvægasta atriðið til þess að
árangur náist við jarðvegslosun-
ina er að rakastig jarðvegsins sé
hæfílegt. Neðri hluti þess jarð-
vegs, sem verið er að losa, þarf
að vera orðinn það þurr að
sprungur geti myndast, því að ef
hann er of blautur smyrst hann
saman í kring um tækið og losun-
in verður gagnslaus og jafnvel til
bölvunar með því að skemma þá
| 22 - Freyr 6/2002